1. júní 2025 /
Innviðaráðuneytið

Drög að stefnu um virka ferðamáta og smáfarartæki

Starfshópur sem innviðaráðherra skipaði hefur skilað drögum að stefnu um virka ferðamáta og smáfarartæki. Starfshópurinn byggði tillögur sínar á greiningu á stöðu og þörfum, alþjóðlegum fyrirmyndum og víðtæku samráði við hagaðila.

Í skýrslu starfshópsins er sett fram tillaga að eftirfarandi framtíðarsýn:

„Ísland er samfélag sem styður við fjölbreytta ferðamáta. Öruggir innviðir fyrir gangandi, hjólandi og smáfarartæki stuðla að raunhæfu vali á milli fjölbreyttra samgöngukosta. Umhverfi virkra ferðamáta er aðlaðandi og aðgengilegt, allt árið um kring.“

Lagt er til að þrjú meginmarkmið varði leiðina að þessari framtíðarsýn:

  • Öryggi – fækka slysum á óvörðum vegfarendum.
  • Aðgengi – auka aðgengi allra að fjölbreyttum samgöngukostum.
  • Skilningur – efla gagnkvæman skilning og virðingu á milli notenda ólíkra ferðamáta.

Starfshópurinn leggur til ítarlega aðgerðaáætlun með stefnunni með fimmtán aðskildum aðgerðum sem miða m.a. að því að bæta innviði, efla vetrarþjónustu, samræma hönnunarviðmið og skipulag og styðja við fræðslu og upplýsingagjöf.