06. feb. 2017Húsnæðis- og mannvirkjamál, Skipulagsmál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Aðgerðir stjórnvalda í húsnæðismálum kynntar
Félags- og jafnréttismálaráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra kynntu í dag nýjan sáttmála um húsnæðismál með 14 aðgerðum til að bregðast við þeim vanda sem er á húsnæðismarkaði. Við sama tækifæri undirrituðu fjármála- og efnahagsráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík viljayfirlýsingu um aukið framboð lóða.