03. jan. 2022Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið
Úrskurður nr. 6/2022
Ráðuneytið taldi að læknir, sem veitt hafði umsögn sem óháður sérfræðingur vegna meintra mistaka við veitingu heilbrigðisþjónustu, hefði verið vanhæfur til að veita umsögn í málinu, sbr. 6. tölul. 1. mgr. 3. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Vísaði ráðuneytið til þess að læknirinn starfaði á sömu læknastofu og sá læknir, sem kvartað var undan í málinu, auk þess að vera stjórnarformaður stofunnar sem kynni að hafa fjárhagslegra hagsmuna að gæta af niðurstöðu embættis landlæknis. Var málsmeðferð embættis landlæknis í málinu því ómerkt og lagt fyrir embættið að taka málið til nýrrar meðferðar.