Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 101–150 af 892
    Raða eftir:
    02. nóv. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Fyrirliggjandi upplýsingar um afhendingu bóluefna

    Ísland hefur samið við fimm lyfjaframleiðendur um bóluefni gegn COVID-19. Bóluefni þriggja þeirra eru komin með markaðsleyfi og bólusetning með þeim hafin hér á landi. Samningar Íslands um þessi þrjú bóluefni, þ.e. Pfizer, AstraZeneca og Moderna, kveða á um skammta sem duga til að bólusetja 304.000 einstaklinga. Samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum um afhendingu þessara bóluefna er gert ráð fyrir að í lok mars hafi Íslandi borist bóluefni fyrir samtals um 45.000 einstaklinga.

    28. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Sóttkví og einangrun – reglur um styttri tíma

    Sóttvarnalæknir hefur lokið endurskoðun á reglum um sóttkví og einangrun vegna Covid-19 og er niðurstaðan sú að stytta megi einangrun smitaðra og sóttkví þeirra sem hafa verið útsettir fyrir Covid, án þess að auka hættu á útbreiðslu veirunnar. Heilbrigðisráðherra hefur gert breytingu á reglugerð nr. 1100/2021 þessa efnis, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Að uppfylltum skilyrðum getur tími í einangrun orðið skemmstur sjö dagar. Almenn krafa um dvöl í sóttkví styttist úr sjö dögum í fimm, að því gefnu að henni ljúki með neikvæðri niðurstöðu úr PCR prófi. Ef einstaklingur undirgengst ekki PCR próf til að ljúka sóttkví þarf hann að sæta henni í 14 daga. Reglugerðin tekur gildi frá og með 29. október og taka breyttar reglur einnig til þeirra sem þegar eru í sóttkví eða einangrun.

    27. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu virkjuð – heilbrigðisstarfsfólk óskast á skrá

    Vegna fjölgunar COVID-19 smita hefur verið ákveðið að virkja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Þetta er nauðsynlegt viðbragð til að mæta mönnunarvanda sem skapast getur vegna veikinda eða tímabundinnar sóttkvíar heilbrigðisstarfsfólks ef smit kemur upp á heilbrigðisstofnunum, líkt og gerst hefur á Landspítala þar sem deild 12G er nú í sóttkví. Biðlað er til heilbrigðisstarfsfólks sem hefur tök á að veita tímabundið liðsinni ef á reynir um að skrá sig í bakvarðasveitina. Á Landspítala vantar nú einkum hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða.

    25. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Staða bólusetninga, horfur og næstu skref

    Smitum af völdum Covid-19 hér á landi hefur fjölgað nokkuð undanfarið og þróun í ýmsum ríkjum Evrópu þar sem fjölgun smita er enn hraðari og sjúkrahúsinnlögnum fjölgar ört, kallar á stöðumat hér. Vitað er að bólusetning gegn veirunni veitir góða vörn og ver fólk fyrir alvarlegum veikindum. Um 76% landsmanna eru nú fullbólusett en til að fyrirbyggja hraðari útbreiðslu og mikil veikindi hér þarf að gera enn betur. Um 34.400 einstaklingar 12 ára og eldri eru óbólusettir.

    21. okt. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Minni þörf fyrir sértækan stuðning samhliða efnahagsbata

    Samhliða augljósum efnahagsbata að undanförnu hefur dregið úr sértækum stuðningi ríkissjóðs við rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og færri sækja um þau úrræði sem enn eru virk.

    19. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Verulegar afléttingar innanlandstakmarkana strax og að fullu 18. nóvember

    Almennar fjöldatakmarkanir verða 2.000 manns, grímuskyldu verður aflétt, opnunartími veitingastaða lengdur um klukkustund og skráningarskyldu gesta aflétt. Regla um nándarmörk verður áfram 1 metri. Þetta er megininntak breytinga á reglugerð um samkomutakmarkanir sem tekur gildi 20. október samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra. Stefnt er að fullri afléttingu samkomutakmarkana innanlands frá og með 18. nóvember.

    09. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Hraðpróf vegna viðburða

    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur nú opnað fyrir hraðpróf vegna viðburða á Suðurlandsbraut 34.​

    09. okt. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Lyfjamál, Matvælasjóður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Heilbrigðisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Mikilvægt að takmarka útbreiðslu sýklalyfjaónæmis

    Á árinu 2019 undirrituðu Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, yfirlýsingu um sameiginlegt átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi. Í kjölfarið skipuðu ráðherrarnir stýrihóp um varnir gegn sýklalyfjaónæmum bakteríum sem vinnur að framgangi aðgerðaáætlunar sem markar stefnu stjórnvalda í málaflokknum. Auk þess settu ráðherrarnir á fót Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóð sem fjármagnar verkefni í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi, fjármögnuðu nýjar stöður sérfræðinga í sýklalyfjaónæmi í þremur stofnunum auk fleiri verkefna. Ríkisstjórnin lýsti því yfir á árinu 2019 að hún ætli að vera í fararbroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.

    08. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Gildandi samkomutakmarkanir innanlands framlengdar um tvær vikur

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis að framlengja gildandi reglugerð um samkomutakmarkanir um tvær vikur, þ.e. til og með 27. ágúst. Áfram verður því kveðið á um 200 manna fjöldatakmarkanir, 1 metra nálægðarreglu m.a. í verslunum og öðru opinberu húsnæði og óbreyttar reglur um grímunotkun. Meðfylgjandi minnisblað sóttvarnalæknis með tillögu um framlengingu samkomutakmarkana ásamt áhættumati var rætt á fundi ríkisstjórnar í dag.

    08. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Bólusetningar 12-15 ára barna hefjast í ágúst

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að gefa börnum á aldrinum 12 til 15 ára kost á bólusetningu við Covid-19 með það að markmiði að veita þeim vörn gegn sjúkdómnum. Bólusett verður með bóluefni Pfizer þar sem meiri reynsla er fyrirliggjandi um bólusetningar þessa aldurshóps með því efni en bóluefni Moderna sem einnig hefur fengið markaðsleyfi til notkunar fyrir börn á þessum aldri. Ef allir þiggja boð um bólusetningu þarf um 35.000 bóluefnaskammta til að fullbólusetja allan aldurshópinn. Miðað við birgðir af Pfizer og afhendingaráætlanir á næstu vikum ætti að vera unnt að ljúka bólusetningu hópsins með síðari bólusetningu um miðjan september.

    08. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Framvinda aðgerða til að styðja við heilbrigðiskerfið í heimsfaraldri

    Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við Landspítala, heilbrigðisstofnanir og fleiri aðila, vinnur nú að ýmsum aðgerðum sem miða að því að styðja við Landspítala, styrkja getu hans til að takast á við kórónaveirufaraldurinn og sinna annarri mikilvægri þjónustu við sjúklinga. Ráðuneytið hefur fengið til starfa tímabundið Vilborgu Hauksdóttur, fyrrverandi skrifstofustjóra í ráðuneytinu, til að liðsinna við áætlanir og framkvæmd þessara aðgerða í samvinnu við hlutaðeigandi stjórnendur og ábyrgðaraðila.

    08. okt. 2021Líf og heilsa, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Óskað eftir fleirum á skrá í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

    Um 120 einstaklingar úr tíu heilbrigðisstéttum eru nú skráðir í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Heilbrigðisstofnanir, einkum Landspítali, eru nú undir miklu álagi vegna Covid-19 og því þörf á frekari stuðningi við mönnun. Heilbrigðisráðuneytið hvetur heilbrigðisstarfsfólk sem vill og getur ráðið sig til tímabundinna starfa í heilbrigðisþjónustu ef eftir því er óskað, til að skrá sig í bakvarðasveitina. Sérstaklega er óskað eftir hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum og læknum á skrá.

    06. okt. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún á norrænum ráðherrafundi um aukið samstarf í tengslum við COVID-19 heimsfaraldurinn

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sat norrænan ráðherrafund um aukið samstarf Norðurlandanna í tengslum við COVID-19 heimsfaraldurinn. Ráðherrarnir ræddu þar um rannsóknir og nýsköpun á heilbrigðissviði, m.a. möguleikana á samstarfi um þróun og framleiðslu bóluefna og líftæknilyfja.

    05. okt. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Svæðisbundnar samkomutakmarkanir vegna hópsmits í Skagafirði

    Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð sem kveður á um svæðisbundnar takmarkanir á samkomum í sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi. Í stuttu máli felur reglugerðin í sér að þær afléttingar á landsvísu sem tóku gildi í dag eiga ekki við á þessu svæði. Þar gilda áfram sömu takmarkanir og verið hafa undanfarnar vikur, tímabundið til og með 16. maí næstkomandi.

    02. okt. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Sex milljarðar greiddir í tekjufallsstyrki

    Síðastliðinn mánuð hafa yfir 1.000 rekstraraðilar fengið greidda rúma sex milljarða króna í tekjufallsstyrki vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, en alls hafa tugir milljarða verið greiddir í fjölbreyttan stuðning í úrræðum ríkisstjórnarinnar vegna faraldursins.

    28. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Breyttar reglur um takmarkanir á landamærunum 1. október

    Felld verður niður krafa um að einstaklingar með tengsl við Ísland þurfi að framvísa vottorði um neikvætt Covid próf við komu til landsins. Farþegar í tengiflugi sem ekki fara út fyrir landamærastöð verða einnig undanþegnir framvísun slíks vottorðs. Sem fyrr þurfa þeir sem eru með tengsl við Ísland að fara í sýnatöku eftir komu til landsins, að undanskildum börnum sem fædd eru 2005 eða síðar. Þetta er meginefni breytinga á takmörkunum á landamærum vegna Covid-19 sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og er gert ráð fyrir að þær gildi til 6. nóvember næstkomandi.

    27. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Covid-19, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Orka, Sameinuðu þjóðirnar, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Loftslagsmál og mannréttindi efst á baugi í ræðu ráðherra á allsherjarþinginu

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, talaði fyrir aðgerðum í loftslagsmálum, jafnari dreifingu bóluefna og mikilvægi mannréttinda og alþjóðalaga fyrir hagsæld og framþróun ríkja í ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag.

    23. sep. 2021Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19

    Mundu að hnerra í regnbogann: Bók um skólastarf og COVID-19

    Heimsfaraldur COVID-19 hefur haft fjölþætt áhrif á skóla- og frístundastarf hér á landi. Í bókinni Mundu að hnerra í regnbogann, sem nú er komin út, er að finna persónulegar frásagnir skólafólks; kennara, nemenda, stjórnenda og annars starfsfólks skóla á öllum skólastigum, af viðburðaríkum en krefjandi tíma vegna COVID-19

    22. sep. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Stuðningur vegna niðurfellingar viðburða á vegum íþrótta- og æskulýðsfélaga

    Á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag var fjármála- og efnhagsráðuneytinu ásamt mennta- og menningarmálaráðuneytinu falið að greina vanda aðila í íþrótta- og æskulýðsstarfi sem hafa þurft að aflýsa viðburðum vegna sóttvarnarráðstafna. Þar er litið til viðburða sem hafa verið mikilvægar tekjuöflunarleiðir í starfinu.

    21. sep. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Covid-19, Heimsmarkmiðin, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Sameinuðu þjóðirnar, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Mannréttindi og jafnrétti

    UNGA76: Sjálfbær auðlindanýting, loftslagsmál og mannréttindi leiðarstefin

    Nú stendur yfir 76. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York sem sett var með formlegum hætti í síðustu viku. Að þessu sinni verður þingið blanda af fjarfundum og beinni þátttöku vegna heimsfaraldursins. Íslenskir ráðamenn taka þátt í þinginu og hliðarviðburðum með fjarfundabúnaði og myndabandsupptökum.

    17. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Aukið aðgengi að hraðprófum með kostnaðarþátttöku ríkisins

    Ráðherra hefur ákveðið með reglugerð að sjúkratryggingar taki þátt í kostnaði við töku hraðprófa hjá einkaaðilum, frá og með 20. september. Markmiðið er að auka aðgengi almennings að hraðprófum þar sem fleiri aðilum verður kleift að bjóða þessa þjónustu, notendum að kostnaðarlausu, óháð tilgangi prófanna.

    14. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum frá og með 15. september

    Heilbrigðisráðherra kynnti nýjar tilslakanir á sóttvarnarráðstöfunum á fundi ríkisstjórnar í morgun, en þær eru í samræmi við tillögur sóttvarnarlæknis. Reglugerð þessa efnis tekur gildi 15. september og gildir til 6. október.

    14. sep. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Nýsköpun, Covid-19

    Sjúkrahúss-app, fjarvöktun vegna krabbameina og Gagnaþon fyrir umhverfið meðal nýsköpunarverkefna hins opinbera

    Nýsköpun hjá hinu opinbera hefur aukist að undanförnu og mikill meirihluti svarenda hjá ríkinu hefur innleitt allavega eitt nýsköpunarverkefni síðustu tvö ár. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Nýsköpunarvoginni, sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur látið framkvæma í annað sinn.

    12. sep. 2021Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Lilja Dögg heimsótti Ferðamálastofu

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra, heimsótti í vikunni starfsstöð Ferðamálastofu í Reykjavík. Ráðherra fundaði þar með Skarphéðni Berg Steinarssyni ferðamálastjóra, og öðru starfsfólki stofnunarinnar, kynnti sér verkefnin sem fram undan eru og ræddi um framtíðarsýn sína fyrir greinina.

    09. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Fyrstu áfangaskýrslur um óbein áhrif COVID-19

    Fyrstu áfangaskýrslur tveggja stýrihópa, sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skipaði í nóvember 2020 til að vakta óbein áhrif COVID-19, eru nú komnar út. Stýrihópunum er ætlað að kanna annars vegar áhrif á lýðheilsu og hins vegar á geðheilsu landsmanna.

    06. sep. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Nýsköpun

    1.000 störf skapast vegna fjárfestingarátaks

    Áætlað er að fjárfestingarátak sem ráðist var í með fjáraukalögum í fyrravor til að mæta heimsfaraldri kórónuveiru hafi skapað um 1.000 störf, sem samsvarar um 0,5% af fjölda fólks á vinnumarkaði. Framhaldsfjárfestingarátak fyrir 100 milljarða króna til ársins 2025 hefst á þessu ári.

    04. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Um 2,4% fullorðinna bólusett á einum degi

    Í gær 8. apríl voru rúmlega 6.630 einstaklingar bólusettir við COVID-19, þar af 2.330 með bóluefni Pfizer/BioNTech og 4301 með bóluefni Oxford/AstraZeneca. Þetta er stærsti bólusetningardagur á Íslandi vegna COVID-19 frá upphafi. Þessi fjöldi nemur tæplega 2,4% þeirra 280 þúsund einstaklinga sem til stendur að bólusetja við COVID-19.

    04. sep. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Ísland þátttakandi í innleiðingu samræmdra vottorða á Evrópska efnahagssvæðinu

    Hafin er vinna sem miðar að því að taka inn í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið tillögu að reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um samræmt vottorðakerfi vegna COVID-19, svokölluð græn vottorð. Markmiðið er að greiða fyrir frjálsri för og tryggja um leið örugg ferðalög milli landa. Stefnt er að því að reglugerð um græn vottorð geti tekið gildi seinni hlutann í júní næstkomandi. Fjallað var um málið á fundi ríkisstjórnar í dag.

    04. sep. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna búgreina

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna í garðyrkju, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar nr. 1273/2020 um stuðning við garðyrkju, þróunarverkefna í sauðfjár- og nautgriparækt, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar um almennan stuðning í landbúnaði. Athygli er vakin á að umsýsla með styrkjunum fluttist um sl. áramót frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

    04. sep. 2021Félags- og fjölskyldumál, Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sókn fyrir námsmenn: Sumarnám og sumarstörf 2021

    Fjölbreytt sumarnám og sumarstörf verða í boði fyrir ungt fólk og atvinnuleitendur í sumar, sem lið í aðgerðum stjórnvalda til þess að stuðla að virkni og framtíðarsókn fyrir íslenskt atvinnulíf.

    03. sep. 2021Atvinnuvegir, Umhverfi og náttúruvernd, Byggðamál, Covid-19, Ferðaþjónusta, Landgræðsla og skógrækt, Atvinnuvegaráðuneytið

    Kynningarfundur í dag: Ráðherrar kynna úthlutun ársins úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og Landsáætlun um uppbyggingu innviða

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra munu kynna úthlutun ársins 2021 úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og Landsáætlun um uppbyggingu innviða á sameiginlegum fundi á morgun þriðjudag, 9. mars. Kynningin hefst kl. 13:30 og verður haldin í Norræna húsinu.

    03. sep. 2021Rit og skýrslur, Menntamál, Covid-19, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nám og líðan framhaldsskólanema á tímum COVID-19

    mars 2021 / Mennta- og barnamálaráðuneytið Nám og líðan framhaldsskólanema á tímum COVID-19 Niðurstöður könnunar á líðan, námi og aðstæðum framhaldsskólanema sem lögð var fyrir veturinn 2020. Könnunin var unnin af Sambandi íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) í samvinnu við mennta-og menningarmálaráðuneytið

    01. sep. 2021Innviðaráðuneytið, Covid-19, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti

    Samið um flugsamgöngur til Boston út mars

    Gerður hefur verið nýr samningur við Icelandair um að tryggja lágmarksflug til Bandaríkjanna til og með 31. mars.

    31. ágú. 2021Covid-19, Forsætisráðuneytið

    Nefnd greinir áfallastjórnun stjórnvalda vegna COVID-19

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa þriggja manna nefnd sem vinna á úttekt á viðbrögðum stjórnvalda við COVID-19. Meginverkefni nefndarinnar verður að greina áfallastjórnun vegna faraldursins.

    31. ágú. 2021Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherra frestar gjalddaga fyrstu afborgana úr Ferðaábyrgðasjóði

    Hlutverk Ferðaábyrgðasjóðs er að veita ferðaskrifstofum lán til að endurgreiða ferðamönnum greiðslur vegna ferða sem var aflýst eða þær afpantaðar á tímabilinu 12. mars til og með 31. júlí 2020. Umfang lánveitinga sjóðsins nemur um 3,2 milljörðum króna.

    27. ágú. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Ársfjórðungsuppgjör

    Afkoma ríkissjóðs 27 milljörðum betri en áætlað var - horfur um bætta afkomu á árinu

    Afkoma ríkissjóðs fyrstu sex mánuði ársins er 27 milljörðum króna betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Afkomubatinn skýrist af sterkari tekjuvexti en búist hafði verið við. Þetta kom fram í nýbirtu hálfsársuppgjöri Fjársýslunnar.

    27. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Ráðstöfun rúmlega 100 milljóna króna til geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungt fólk

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðstafa 102 milljónum króna í tiltekin þverfagleg átaksverkefni á vegum Landspítala sem miða að því að efla geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungt fólk. Meðal þessara verkefna eru gagnreynd námskeið í félagsfærni hjá BUGL (Barna- og unglingageðdeild Landspítala), fjölgun greiningarviðtala hjá BUGL fyrir börn með mögulega röskun á einhverfurófi samfara öðrum geðrænum vanda til að stytta bið eftir greiningu, auk markvissra aðgerða til að stytta bið eftir þjónustu þunglyndis- og kvíðateymis geðþjónustu Landspítala, þjónustu átröskunarteymisins og þjónustu áfallateymisins. ​

    26. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum frá og með 28. ágúst

    Fjöldatakmarkanir miðast áfram við 200 manns og reglur um 1 metra nálægðarmörk og grímuskyldu verða óbreyttar. Aftur á móti verður sund- og baðstöðum, heilsu- og líkamsræktarstöðvum heimilt að taka á móti leyfðum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi, eins metra regla felld niður meðal áhorfenda á íþróttaviðburðum og í sviðslistum, auk fleiri tilslakana sem nánar eru raktar hér að neðan. Heilbrigðisráðherra kynnti þessar breytingar á fundi ríkisstjórnar í morgun og eru þær í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Reglugerð þessa efnis tekur gildi 28. ágúst og gildir til 17. september.

    24. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Ný reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri

    Ný reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19 hefur tekið gildi. Með reglugerðinni er einstaklingum sem eru metnir minna útsettir fyrir COVID-19 veirunni heimilað að sæta smitgát í stað sóttkvíar í samræmi við endurskoðaðar leiðbeiningar sóttvarnalæknis.

    23. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Hraðpróf og sjálfspróf

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að breyta reglugerð nr. 415/2004 sem fjallar m.a. um hraðpróf. Breytingin er unnin í samráði við sóttvarnalækni.

    13. ágú. 2021Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Leiðbeiningar um sóttvarnir í skólastarfi haustið 2021

    Með hliðsjón af reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum veitir mennta- og menningarmálaráðuneyti nánari leiðbeiningar til skóla um áhrif gildandi sóttvarnaráðstafana á mismunandi skólastigum.

    05. ágú. 2021Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ísland gefur öndunarvélar til Indlands

    Í ljósi alvarlegrar stöðu kórónuveirufaraldursins á Indlandi hafa þarlend stjórnvöld þegið boð íslenskra stjórnvalda um að senda 17 öndunarvélar til Indlands. Öndunarvélarnar eru gjöf frá Landspítala og verða þær fluttar, með milligöngu heilbrigðisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins, á vegum almannavarna Evrópusambandsins sem Ísland tekur þátt í á grundvelli EES-samstarfsins.

    05. ágú. 2021Covid-19, Menntamál

    Meira frelsi í skólastarfi: Tilslakanir á sóttvörnum frá 10. maí

    „Við gleðjumst yfir því að slakað verður á sóttvarnaráðstöfunum fyrir skólasamfélagið og að bólusetningum framlínufólks þar miðar vel,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

    04. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Aðgerðir á landamærum - breytt skilyrði um dvöl í sóttkví

    Skýrari kröfur verða gerðar um skilyrði fyrir heimasóttkví varðandi húsnæði og umgengnisreglur. Þeir sem ekki geta verið í heimasóttkví sem uppfyllir sett skilyrði þurfa að fara í sóttvarnahús en ekkert gjald verður tekið fyrir dvölina. Þetta er meðal efnis reglugerðar heilbrigðisráðherra sem tekur gildi 9. apríl og byggist á tillögum sóttvarnalæknis. Meginmarkmiðið er að lágmarka eins og kostur er líkur á því að smit berist inn í landið, með þeim aðgerðum sem sóttvarnalög heimila. Með reglugerðinni er felld úr gildi reglugerð nr. 355/2021 sem tók gildi 1. apríl og þar með ákvæði um skyldu einstaklinga af hááhættusvæðum til að dvelja í sóttkví í sóttvarnahúsi sem héraðsdómur úrskurðaði að ekki væri fullnægjandi lagastoð fyrir.

    04. ágú. 2021Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Covid-19

    Níu af hverjum tíu öldruðum telja andlega heilsu sína góða

    Fimmta sinn sem könnun á högum og líðan aldraðra er lögð fyrir.

    04. ágú. 2021Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kristján Þór opnaði Mælaborð landbúnaðarins

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði Mælaborð landbúnaðarins á opnum streymisfundi í dag. Mælaborðið er aðgengilegt á vefnum www.mælaborðlandbúnaðarins.is​​

    04. ágú. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    11 milljarðar greiddir í tekjufalls- og viðspyrnustyrki

    Um ellefu milljarðar króna hafa nú verið greiddir í tekjufalls- og viðspyrnustyrki en þeim er ætlað að aðstoða rekstraraðila, þ.m.t. einyrkja, sem hafa orðið fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

    02. ágú. 2021Atvinnuvegir, Líf og heilsa, Covid-19, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Almannaöryggi, Atvinnuvegaráðuneytið

    Kristján Þór kynnir skýrslu um fæðuöryggi Íslands

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, býður til opins fundar um skýrslu Landbúnaðarháskóla Íslands um fæðuöryggi á Íslandi fimmtudaginn 11. febrúar kl 10:15.

    02. ágú. 2021Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breyting á sóttvarnalögum samþykkt á Alþingi

    Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra til breytinga á sóttvarnalögum var samþykkt á Alþingi í liðinni viku með öllum greiddum atkvæðum. Með lagabreytingunni er kveðið skýrar á um til hvaða ráðstafana er heimilt að grípa vegna farsóttarhættu og útbreiðslu smits, í hvaða tilvikum og með tilliti til meðalhófssjónarmiða. Markmið breytinganna er að tryggja að slíkar skerðingar á stjórnarskrárvörðum réttindum fólks styðjist við viðhlítandi lagaheimild og séu ekki framkvæmdar nema í þágu almannahagsmuna eða til verndar heilsu eða réttindum annarra. Með lagabreytingunni er kveðið á um að meðan á sóttvarnaaðgerðum stendur skuli ráðherra upplýsa Alþingi um sóttvarnaaðgerðir með mánaðarlegri skýrslugjöf hafi aðgerð varað lengur en í tvo mánuði.

    01. ágú. 2021Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Úrræði vegna faraldurs: Aðgerðir vegna atvinnuástands, fólk í viðkvæmri stöðu og gagnvart sveitarfélögum

    janúar 2021 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Úrræði vegna faraldurs: Aðgerðir vegna atvinnuástands, fólk í viðkvæmri stöðu og gagnvart sveitarfélögum Úrræði vegna faraldurs: Aðgerðir vegna atvinnuástands, fólk í viðkvæmri stöðu og gagnvart sveitarfélögum

    • First
    • Prev
    • 1
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband