Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Þróunarsamvinna
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 201–250 af 272
    Raða eftir:
    14. des. 2020Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, UN Women, Sameinuðu þjóðirnar

    Guðlaugur Þór undirritaði nýjan rammasamning við UN Women

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, og Ms. Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdarstjóri UN Women, skrifuðu í dag undir nýjan rammasamning um stuðning Íslands við UN Women.

    24. nóv. 2020Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Asía, neyð, Utanríkismál

    30 milljónum króna varið til mannúðaraðstoðar í Afganistan

    Íslensk stjórnvöld ætla að leggja jafnvirði þrjátíu milljóna króna til mannúðaraðstoðar í Afganistan. Þetta var tilkynnt í ávarpi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, á tveggja daga framlagaráðstefnu vegna Afganistans sem lauk í dag.

    18. nóv. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Þróunarsamvinna, Sendiráð Íslands í París, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Ísland styður verkefni UNESCO um frjálsa fjölmiðlun í þróunarlöndum

    Ísland hefur gerst aðili að alþjóðaverkefni Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, um frjálsa fjölmiðlun í þróunarlöndum. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra segir að um mikilvægt framlag sé að ræða sem nýtist í baráttunni við kórónuveiruna.

    30. okt. 2020Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna

    Atvinnulífið hvatt til þátttöku í verkefnum í þróunarríkjum

    „Samstarfssjóðurinn skapar bæði ný tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf og íbúa þróunarríkja sem skortir oft tækni og þekkingu til að lyfta sér upp úr fátækt. Með réttum formerkjum geta fyrirtæki í okkar heimshluta lagt mikið af mörkum í þeirri baráttu með því að auka framleiðni og skapa störf, ekki síst meðal kvenna,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

    28. okt. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Netöryggi, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Þrír norrænir fundir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra í dag

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, ræddi viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum, málefni þróunarsamvinnu og öryggis- og varnarmál á þremur norrænum ráðherrafundum sem fram fóru í dag í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Skýrsla Björns Bjarnasonar um norrænt samstarf á sviði utanríkis- og öryggismála var áberandi umræðuefni á fundunum en jafnframt bar endurfjármögnun Norræna þróunarsjóðsins og loftslagsmál á góma.

    28. okt. 2020Utanríkisráðuneytið, Annað, Hjálparstarf, Mið-Austurlönd, Sameinuðu þjóðirnar, Þróunarsamvinna, Fjölþjóðastofnanir

    Viðbótarframlag frá utanríkisráðuneytinu til kvenna í Jemen

    Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að veita Mannfjöldasjóði Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) 40 milljóna króna styrk til mannúðaraðstoðar í þágu kvenna og stúlkna í Jemen. Framlagið er viðbót við áður veittan 25 milljóna króna styrk vegna þeirrar miklu neyðar sem konur og stúlkur búa við í þessu stríðshrjáða landi. Samkvæmt gögnum Sameinuðu þjóðanna deyja tólf konur dag hvern vegna skorts á fæðingarþjónustu og mæðravernd.

    16. okt. 2020Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, DAC

    Mjög jákvæð niðurstaða miðannarrýni DAC á þróunarsamvinnu Íslands

    „Þessi stöðutaka sýnir að við erum á réttri leið og hún er okkur mikil hvatning. Þróunarsamvinna hefur fengið aukið vægi í ráðuneytinu á undanförnum árum og umtalsvert umbótastarf hefur orðið á því sviði. Endurskipulagning ráðuneytisins um síðustu áramót var liður í því starfi og rík áhersla er lögð á nánari útfærslu á þeirri stefnu sem samþykkt var af Alþingi á síðasta ári,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, í tilefni af niðurstöðum miðannarrýni á þróunarsamvinnu Íslands, af hálfu Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC).

    15. okt. 2020Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Þjónustuborð atvinnulífsins og viðskiptavaktin hefja göngu sína

    Í dag undirrituðu Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, Hildur Árnadóttir, stjórnarformaður Íslandsstofu, og Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, samkomulag utanríkisráðuneytisins og Íslandsstofu um stofnun þjónustuborðs atvinnulífsins. Í dag hóf jafnframt sérstök viðskiptavakt utanríkisráðuneytisins formlega göngu sína.

    13. okt. 2020Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Alþjóðabankinn, Utanríkismál

    Heimsfaraldurinn og græn framtíð rædd á ráðherrafundi Alþjóðabankans

    „Það verður ekki litið fram hjá mikilvægi einkageirans við að vernda störf og skapa ný þegar þjóðir vinna sig út úr faraldrinum, og Alþjóðabankinn hefur þar miklu hlutverki að gegna,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra sem tók í dag þátt í ráðherrafundi kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum.

    11. okt. 2020Utanríkisráðuneytið, Annað, Sameinuðu þjóðirnar, Þróunarsamvinna, WFP, Malaví

    COVID-19: Íslendingum þakkað rausnarlegt framlag til Malaví

    „Heimsfaraldurinn hefur þegar haft mikil óbein áhrif á íbúa þróunarríkja og okkur rennur blóðið til skyldunnar að styðja við Malaví í baráttunni gegn afleiðingum farsóttarinnar, sem er elsta samstarfsríki okkar í þróunarsamvinnu og eitt fátækasta ríki heims. Framlagið er hluti af stærra viðbragði ráðuneytisins við faraldrinum sem ráðstafað er til alþjóðlegra samstarfsstofnana,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

    04. okt. 2020Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Áfram afgerandi stuðningur landsmanna við alþjóðasamstarf

    Þátttaka Íslands í alþjóðlegu samstarfi nýtur afgerandi stuðnings meirihluta þjóðarinnar, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem unnin var fyrir utanríkisráðuneytið. Alþjóðastofnanir njóta sömuleiðis mikils stuðnings, en sérstaklega áberandi er ríkur vilji landsmanna til að rækta áfram norrænt samstarf. Þá benda niðurstöðurnar einnig til þess að þjóðin sé afar fylgjandi alþjóðaviðskiptum og þróunarsamvinnu.

    01. okt. 2020Utanríkisráðuneytið, Annað, Hjálparstarf, Íslensk frjáls félagasamtök, neyð, Þróunarsamvinna, Fjölþjóðastofnanir

    Tæplega 190 milljónir í boði fyrir félagasamtök

    Utanríkisráðuneytið hyggst úthluta 186,5 milljónum króna til félagasamtaka á þessu ári vegna verkefna á sviði þróunarsamvinnu og mannúðarmála. Af þessari fjárhæð á að ráðstafa 121 milljón króna til mannúðarverkefna og 62,5 milljónum til þróunarsamvinnuverkefna. Opið er fyrir umsóknir allt árið til mannúðarverkefna, með fyrirvara um að fjárheimildir kunni að vera fullnýttar áður en árið er liðið, en umsóknarfrestur um styrki til þróunarsamvinnuverkefna er til mánudagsins 16. mars.

    10. sep. 2020Utanríkisráðuneytið, Annað, neyð, Sameinuðu þjóðirnar, Þróunarsamvinna, WFP, Fjölþjóðastofnanir

    Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra sendir WFP heillaóskir vegna friðarverðlauna Nóbels

    Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) hlaut í dag friðarverðlaun Nóbels fyrir baráttu stofnunarinnar gegn hungri, fyrir að stuðla að bættum aðstæðum fyrir friði á átakasvæðum, og fyrir aðgerðir til að afstýra því að hungur sé notað sem vopn í átökum. „Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna hefur um langt skeið verið ein af áherslustofnunum Íslands í neyðar- og mannúðaraðstoð og friðarverðlaun Nóbels eru að mínum dómi mjög verðskulduð viðurkenning fyrir ómetanlegt starf á átakasvæðum sem stuðlar að friði,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra sem sendi WFP heillaskeyti í morgun.

    26. ágú. 2020Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Covid-19

    Fundur um áhrif og viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum í Afríku

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í dag þátt í fjarfundi þróunarsamvinnuráðherra Norðurlanda með ráðherrum sjö Afríkuríkja, yfirmönnum sex stofnana Sameinuðu þjóðanna og öðrum samstarfsaðilum. Efnahagsleg og samfélagsleg áhrif og viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum í Afríku voru þar í brennidepli.

    05. jún. 2020Utanríkisráðuneytið, Fjölþjóðastofnanir, Íslensk frjáls félagasamtök, Þróunarsamvinna, UNHCR, WFP, Alþjóðabankinn

    Utanríkisráðuneytið leggur fram 276 milljónir króna til þróunarríkja vegna heimsfaraldursins

    Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að verja 276 milljónum króna til þróunarríkja vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Framlagið deilist á milli stofnana Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðabankans, Alþjóðaráðs Rauða krossins, Alþjóðasambands landsfélaga Rauða krossins og samstarfsþjóða Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu.

    12. apr. 2020Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Sjötti fundur norrænna þróunarsamvinnuráðherra á þessu ári

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók þátt í fjarfundi þróunarsamvinnuráðherra Norðurlanda sem haldinn var í dag. Grænar áherslur í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og jafnt aðgengi að bóluefni við COVID-19 voru í brennidepli á fundinum, sem er sá sjötti sem þeir halda á þessu ári.

    06. apr. 2020Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna

    Heilbrigðismál, græn uppbygging og jafnrétti áherslumál Norðurlandaþjóða í þróunarríkjum

    Norrænir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherrar ræddu á fjarfundi í dag um sameiginlega sýn þjóðanna til enduruppbyggingar í þróunarríkjunum þegar COVID-19 heimsfaraldrinum linnir. Ráðherrarnir voru sammála um að leggja áherslu á þrennt, heilbrigðismál og styrkingu heilbrigðiskerfa, á græna og loftslagsvæna uppbygginu, og á varðveislu framfara í jafnrétti kynjanna, undir yfirskriftinni „Build Back Better and Greener.“

    21. jan. 2020Utanríkisráðuneytið, Annað, Skólar GRÓ, Hjálparstarf, Íslensk frjáls félagasamtök, OECD, Sameinuðu þjóðirnar, Þróunarsamvinna, DAC, Sendiráð Íslands í París, Sendiskrifstofa

    Hvetur Ísland til að leiða áfram jafnréttisbaráttuna

    „Ísland hefur sannarlega verið í forystuhlutverki á sviði jafnréttisbaráttu og ég hvet ykkur til að halda áfram að vera leiðandi á því sviði, öðrum framlagsríkjum til eftirbreytni,“ sagði Susanna Moorehead formaður þróunarsamvinnunefndar OECD, DAC. Hún er stödd hér á landi og flutti erindi á málþingi í Reykjavík í gærkvöldi um framtíð þróunarsamvinnu.

    23. des. 2019Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Alþjóðabankinn, Utanríkismál

    82 milljarðar dala í baráttuna gegn sárafátækt

    Ríki heims hafa heitið Alþjóðaframfarastofnuninni jafnvirði tíu þúsund milljarða króna til að berjast gegn sárafátækt í heiminum. Framlaginu er ætlað til að styrkja grunnviði, auka hagvöxt og efla getuna til að bregðast við áföllum vegna náttúruhamfara og loftslagsbreytinga. Ísland leggur sitt af mörkum.

    16. des. 2019Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál, Heimsmarkmiðin, Sendiráð Íslands í París, Sendiskrifstofa

    Ísland og UNESCO gera samkomulag um Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Audrey Azoulay, aðalframkvæmdastjóri Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna UNESCO, undirrituðu í dag samkomulag um að Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu starfi undir merkjum UNESCO sem sjálfstæð stofnun. Í miðstöðinni koma saman fjórir skólar sem starfræktir hafa verið á Íslandi.

    06. des. 2019Rit og skýrslur, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Mannréttindi sem drifkraftur breytinga

    Mannréttindasinnuð þróunarsamvinna í tvíhliða samstarfi Íslands.

    04. des. 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland á meðal stofnenda mannréttindasjóðs Alþjóðabankans

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á gildi mannréttinda í þróunarsamstarfi í ávarpi sem hann flutti við stofnun nýs mannréttindasjóðs Alþjóðabankans í Washington í kvöld. Vorfundir Alþjóðabankans standa nú yfir.

    12. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Íslensk frjáls félagasamtök, Þróunarsamvinna, Úganda, Hjálparstarf

    Þróunarsamvinna: Sjö íslenskum félagasamtökum falið að ráðstafa rúmum 200 milljónum

    Utanríkisráðuneytið hefur gefið vilyrði fyrir styrkjum til sjö íslenskra félagasamtaka um ráðstöfun rúmlega 210 milljóna króna til verkefna á sviði þróunarsamvinnu. Flest verkefnanna eru langtímaverkefni sem fá árlegar greiðslur frá ráðuneytinu. Hæstu styrkjunum verður varið til verkefna í þremur Afríkuríkjum, Síerra Leóne, Úganda og Tógó.

    20. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Loftslagsmál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á ársfundum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sótti nýafstaðna ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem haldnir voru í Washington DC. Þá undirritaði hann viljayfirlýsingu um mögulegt samstarf við samtökin Conservation International á sviði fiskimála í Kyrrahafsríkjum.

    25. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Skólar GRÓ, Utanríkismál

    Háskólar Sameinuðu þjóðanna verði Þekkingarmiðstöð þróunarlanda

    Þekkingarmiðstöð þróunarlanda (International Centre for Capacity Development) verður nýtt yfirheiti skólanna fjögurra sem hafa um langt árabil verið starfræktir sem skólar Háskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi. Frá og með næstu áramótum bendir allt til þess að skólarnir starfi undir regnhlíf Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) en samningaviðræður milli UNESCO og utanríkisráðuneytisins eru á lokastigi. Áformað er að setja á laggirnar miðstöð á vegum ráðuneytisins sem eigi í samstarfi við og starfi undir merkjum UNESCO, líkt og Vigdísarstofnun - alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar.

    10. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra heimsækir Síerra Leóne

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra er í Síerra Leóne í vinnuheimsókn þar sem hann hefur skoðað þróunarsamvinnuverkefni Íslands í landinu á sviði sjávarútvegs- og jafnréttismála og hitt ráðamenn til að ræða þróunarsamvinnu landanna.

    07. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna

    Marel og Thoregs hljóta styrki úr samstarfssjóði við atvinnulífið

    Tvö verkefni sem byggja á íslensku hugviti og verkþekkingu hafa fengið styrki úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Utanríkisráðuneytið kynnti á síðasta ári nýjan samstarfssjóð við atvinnulífið um heimsmarkmiðin sem ætlaður er samstarfsverkefnum fyrirtækja. Hlutverk sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífs til þróunarsamvinnu, með það að markmiði að stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum hagvexti í fátækum ríkjum. Þetta eru fyrstu styrkirnir sem veittir eru úr sjóðnum.

    15. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, Sameinuðu þjóðirnar

    Ungmenni í forgrunni á fundi um heimsmarkmiðin

    Ísland kynnir á morgun stöðu innleiðingar heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun á árlegum ráðherrafundi í New York. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur þá ávarp fyrir Íslands hönd, en auk þess ávarpa tveir fulltrúar úr ungmennaráði heimsmarkmiðanna fundinn, þau Kristbjörg Mekkín Helgadóttir og Sigurður Einarsson Mäntylä.

    21. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Íslendingar velviljaðir þátttöku í alþjóðasamstarfi

    Þorri Íslendinga er jákvæður í garð alþjóðastofnana og þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi. Þetta er niðurstaða könnunar sem Maskína gerði fyrir utanríkisráðuneytið um viðhorf Íslendinga til alþjóðasamstarfs. Íslendingar eru sérstaklega jákvæðir í garð norræns samstarfs.

    16. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Fjölþjóðastofnanir, Skólar GRÓ, Hjálparstarf, Íslensk frjáls félagasamtök, Malaví, Sameinuðu þjóðirnar, Þróunarsamvinna, Úganda, UN Women, Alþjóðabankinn

    Framtíðarsýn heimsmarkmiðanna grundvöllur nýrrar stefnu í þróunarsamvinnu

    Yfirmarkmið Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu verður að draga úr fátækt og hungri og stuðla að almennri velferð á grundvelli mannréttinda, kynjajafnréttis og sjálfbærrar þróunar, segir í nýsamþykktri þingsályktunartillögu um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands sem gildir fyrir árin 2019 til 2023. „Það hefur verið mér sérstakt kappsmál að eiga samstarf við atvinnulífið og nýta enn betur þá sértæku þekkingu sem við búum yfir á fjölmörgum sviðum við uppbyggingu innviða og atvinnuvega í þróunarríkjum. Nýjum samstarfssjóði við atvinnulífið er ætlað að styrkja verkefni í fátækum ríkjum og þær áherslur endurspeglast vel í stefnunni," segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

    26. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Menntamál, Sendiráð Íslands í París, Sendiskrifstofa

    Ísland og UNESCO gera rammasamning um þróunarsamvinnu

    Ísland og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) hafa gert með sér samstarfssamning á sviði þróunarsamvinnu. Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Xing Qu, aðstoðarframkvæmdastjóri UNESCO, undirrituðu rammasamning þess efnis fyrr í vikunni.

    13. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra ávarpaði þróunarnefndina

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á fjölþjóðlegt samstarf, þar á meðal alþjóðaviðskipti, loftslagsmál, mannauð, mannréttinda- og jafnréttismál, í ávarpi sínu í þróunarnefnd Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðins fyrr í dag. Þá ræddi hann um mikilvægi fjármögnunar þróunar, meðal annars með betri skattheimtu, og að koma í veg fyrir ólöglegt fjármagnsflæði og skattaundanskot.

    06. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Úganda, Malaví, Þróunarsamvinna

    Starfshópur skilar skýrslu um mannréttindamiðaða þróunarsamvinnu

    Öll verkefni og aðgerðir í tvíhliða þróunarsamvinnu eiga að vera í samræmi við meginreglur mannréttinda og byggja á vönduðum greiningum á stöðu mannréttinda, áhrifum inngripa og öðrum viðeigandi þáttum, segir í nýrri skýrslu utanríkisráðuneytisins um mannréttindamiðaða nálgun í tvíhliða þróunarstarfi. Starfshópurinn sem vann skýrsluna leggur til að mótuð verði heildræn stefnumið um mannréttindamiðaða þróunarsamvinnu og áréttar að mannréttindi verði lögð til grundvallar í þróunarsamvinnu með þátttöku íslensks atvinnulífs.

    22. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Malaví, Mósambík, Þróunarsamvinna, Úganda, UNICEF, Afríka

    Íslensk þróunarsamvinna: Vatnsból fyrir hálfa milljón íbúa

    Íslensk stjórnvöld hafa í alþjóðlegri þróunarsamvinnu komið upp vatnsbólum fyrir hálfa milljón íbúa í Afríkuríkjum. „Vatn er undirstaða alls lífs og ekkert bætir líf fátæks fólks meira en greiður aðgangur að hreinu vatni. Við leggjum kapp á að koma upp vatnspóstum í grennd við heimili íbúa í samstarfshéruðum okkar því við vitum að hreint vatn bætir stórkostlega heilsu íbúanna og dregur úr óþarfa tímaeyðslu við vatnsburð,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í tilefni af alþjóðlegum degi vatnsins í dag, 22. mars.

    21. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Fjölþjóðastofnanir, Sameinuðu þjóðirnar, Þróunarsamvinna, Annað

    Íslendingar í lið með FAO gegn ólöglegum fiskveiðum

    „Samstarfið lagar sig einkar vel að pólitískri stefnu Íslands í alþjóðamálum með ríkum áherslum á málefni hafsins. Það gefur okkur tækifæri til að nýta íslenska þekkingu í stórum alþjóðlegum verkefnum. Og bæði íslensk fyrirtæki og íslenskir sérfræðingar fá tækifæri til að leggja sitt af mörkum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra um nýjan samstarfssamning ráðuneytisins við Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO.

    29. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðismál, Heimsmarkmiðin, Mannréttindi, Menntun fyrir alla, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra kynnir sér árangur þróunarsamvinnu í Malaví

    Þróunarsamvinna, mannréttindamál og efnahagsmál á breiðum grunni voru efst á baugi á fundum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra með embættismönnum í Malaví í dag. Guðlaugur Þór heimsækir landið til að kynna sér árangurinn af þriggja áratuga langri þróunarsamvinnu og tekur þátt í opnun nýrrar fæðingarálmu héraðssjúkrahússins í Manochi.

    07. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, Alþjóðabankinn

    Ísland tekur í dag sæti í stjórn Alþjóðabankans

    Geir H. Haarde, fyrrverandi sendiherra Íslands í Washington, tók í dag við stöðu aðalfulltrúa kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna hjá Alþjóðabankanum. Hann kemur til með að stýra skrifstofu kjördæmisins í höfuðstöðvum bankans í Washington um tveggja ára skeið og situr í 25 manna stjórn bankans fyrir hönd kjördæmisins. Ísland er fámennasta aðildarríki bankans sem skipar í stöðu aðalfulltrúa í stjórn hans.

    02. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðismál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Mannréttindamál efst á baugi á fundum með ráðamönnum í Malaví

    Mannréttindamál og tvíhliða þróunarsamvinna voru í brennidepli á fundum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra með forseta og utanríkisráðherra Malaví í dag. Utanríkisráðherra opnaði í gær nýja fæðingardeild í Mangochi-bæ sem gerbyltir fæðingarþjónustu í héraðinu.

    23. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, Sameinuðu þjóðirnar

    Spennandi samstarfsmöguleikar fyrir atvinnulíf í þróunarsamvinnu

    „Samstarfssjóðnum er ætlað að skapa ný tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf með styrkjum í tengslum við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og þróunarsamvinnu. Þátttaka atvinnulífsins í uppbyggingu í þróunarríkjunum er lykilatriði ef við ætlum okkar að ná Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra en utanríkisráðuneytið auglýsir nú í fyrsta sinn eftir umsóknum um styrki sem veittir eru úr nýjum Samstarfssjóði við atvinnulíf um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum.

    10. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Mannréttindi, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Íslands og Danmerkur funduðu í Kaupmannahöfn

    Formennska Íslands í norrænni samvinnu og Norðurskautsráðinu, Brexit og tvíhliða samskipti voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þór Þórðarsonar utanríkisráðherra og Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur í Kaupmannahöfn í gær. Utanríkisráðherra kynnti sér jafnframt fyrirkomulag danskrar þróunarsamvinnu með þátttöku atvinnulífsins og sótti viðburði í tilefni fullveldisafmælis Íslands.

    09. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Fjárlagafrumvarpið: Aukin hagsmunagæsla vegna EES

    Aukin hagsmunagæsla vegna EES-samstarfsins, formennska Íslands í Norðurskautsráðinu og norrænu ráðherranefndinni og aukin framlög til þróunarsamvinnu eru á meðal helstu áherslna á málefnasviði utanríkisráðherra sem birtast í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2019.

    05. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Evrópusamvinna, Þróunarsamvinna, Alþjóðamál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármála- og efnahagsráðherra kjörinn varaformaður eigendanefndar EBRD

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, var kjörinn varaformaður eigendanefndar Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) á ársfundi bankans sem haldinn var við Dauðahafið í Jórdaníu dagana 9-10.maí.

    31. ágú. 2018Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Styrkir til mannúðarverkefna í Sýrlandi

    Utanríkisráðuneytið kallar eftir umsóknum um styrki til mannúðarverkefna borgarasamtaka til að bregðast við neyðarástandi vegna átakanna í Sýrlandi.

    29. ágú. 2018Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Samráðsgátt: þróunarsamvinnustefna 2019-2023

    Utanríkisráðuneytið óskar eftir athugasemdum eða hugmyndum almennings og annarra haghafa um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019–2023

    20. ágú. 2018Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Forsætisráðuneytið

    Elíza Gígja spennt að sjá Úganda með augum unglingsins

    Elíza Gígja Ómarsdóttir fimmtán ára reykvísk stúlka hefur verið valin til að taka þátt í gerð heimildarmyndar um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem utanríkisráðuneytið fyrir hönd íslenskra stjórnvalda stendur að í samvinnu við auglýsingastofuna Hvíta húsið og RÚV. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tilkynnti Elízu Gígju óvænt niðurstöðuna í gær á Víkingsvellinum í Fossvogi. “Fimmtán ára stúlka trúði vart sínum eigin augu og eyrum í dag þegar forsætisráðherra tilkynnti henni óvænt að hún færi fyrir Íslands hönd til Úganda,” sagði í frétt RÚV í gærkvöldi.

    06. júl. 2018Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál, Þróunarsamvinna

    Norðurlönd og Afríkuríki vinni saman að því að tryggja tækifæri fyrir ungt fólk

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á tengsl kynjajafnréttis, friðar og öryggis í erindi sínu í morgun á árlegum fundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Afríkuríkja í Kaupmannahöfn. Hann lagði einnig áherslu á samstarf þjóðanna í þágu ungs fólks.

    02. júl. 2018Þróunarsamvinna, UNICEF, Sameinuðu þjóðirnar, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra á fundum með þremur framkvæmdastjórum SÞ stofnana

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra átti í vikunni fundi með framkvæmdastjórum þriggja stofnana Sameinuðu þjóðanna sem íslensk stjórnvöld eru í samstarfi við, þ.e. Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), Palestínuflóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). Hann undirritaði rammasamning um áframhaldandi stuðning við UNFPA og UNRWA en rammasamningur við UNICEF er nú þegar í gildi.

    11. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, Íslensk frjáls félagasamtök

    Aðkoma atvinnulífs og félagasamtaka mikilvæg í uppbyggingu þróunarríkja

    „Meginmarkmiðið með framlagi Íslands til þróunarsamvinnu er að draga úr fátækt og stuðla að atvinnusköpun og viðvarandi sjálfbærum hagvexti í þróunarlöndum til að leggja grunn að aukinni velsæld. Aðkoma atvinnulífsins – sem býr yfir frumkvæði og margs konar sérþekkingu sem nýst getur við að leysa flókin verkefni – er mikilvægur þáttur í þessari uppbyggingu. Því höfum við nú útfært nýjar leiðir til samstarfs við atvinnulífið á sviði þróunarsamvinnu,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra á fjölmennum opnum fundi í morgun, sem utanríkisráðuneytið stóð fyrir með áherslu á þátttöku fulltrúa atvinnulífsins og fulltrúa félagasamtaka.

    02. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland styrkir stoðir stofnana SÞ með kjarnaframlögum

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra hitti í dag framkvæmdastjóra þriggja stofnana Sameinuðu þjóðanna sem íslensk stjórnvöld eru í samstarfi við, þ.e. Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), Palestínuflóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF).

    02. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Loftslagsmál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Mannréttindi og jafnrétti

    Lýsti stuðningi við áherslur aðalframkvæmdastjóra SÞ

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í gær fund með António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í höfuðstöðvum stofnunarinnar í New York. Hann hitti einnig Miroslav Lajcak, forseta allsherjarþingsins, og Jeffrey Feltman, yfirmann stjórnmáladeildar Sameinuðu þjóðanna.

    • First
    • Prev
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband