05. mar. 2021Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Barnaréttur
Félags- og barnamálaráðherra leggur fram stefnu og aðgerðaáætlun um framkvæmd Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um stefnu og aðgerðaáætlun um Barnvænt Ísland, markvissa framkvæmd Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna.