Bein útsending-Ferðumst saman

Ferðumst saman – morgunverðarfundur um almenningssamgöngur milli byggða

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið býður til morgunverðarfundar um almenningssamgöngur milli byggða landsins fimmtudaginn 28. febrúar. Á fundinum verður fjallað um nýja stefnumótun um almenningssamgöngur fyrir allt landið.

Fundurinn er opinn öllum og verður haldinn í Iðnó við Tjörnina í Reykjavík. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00 en dagskrá hefst kl. 8:30 og stendur til kl. 10.

Dagskrá

  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, setur fundinn.
  • Árni Freyr Stefánsson, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu: „Ferðumst saman – í átt að heildstæðu almenningssamgöngukerfi milli byggða.“
  • Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar: „Mikilvægi almenningssamgangna fyrir landsbyggðina.“
  • Annette Skaarnæs, framkvæmdastjóri markaðsmála hjá EnTur í Noregi: „Entur – connecting public transport across Norway.“
  • Pallborðsumræður með fyrirlesurum.
  • Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri.