23 september 2019
Ísland tekur þátt í gagnrýni á Sádi-Arabíu
Ísland var í hópi ríkja sem í dag gagnrýndi ástand mannréttindamála í Sádí-Arabíu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Fastafulltrúi Ástralíu flutti ávarpið að þessu sinni og tók þar við keflinu af fastafulltrúa Íslands sem flutti yfirlýsingu fyrir hönd hópsins fyrr á árinu.