Starfsreglur fyrir fjármálastöðugleikaráð

Hlutverk fjármálastöðugleikaráðs

Fjármálastöðugleikaráð er formlegur samstarfsvettvangur stjórnvalda um fjármálastöðugleika, sbr. lög nr. 66/2014 um fjármálastöðugleikaráð. Reglulegt samráð og upplýsingaskipti milli ráðherra og Seðlabanka Íslands eru til þess fallin að efla og varðveita fjármálastöðugleika, auka viðnámsþrótt fjármálakerfisins, sporna gegn uppsöfnun kerfisáhættu og stuðla að samhæfðum viðbrögðum við sérstakar aðstæður.

Skipan fjármálastöðugleikaráðs

Í ráðinu sitja:
  1. Fjármála- og efnahagsráðherra
  2. Seðlabankastjóri

Fjármála- og efnahagsráðherra er formaður ráðsins.

Starfsemi ráðsins og undirbúningur funda

Umsýsla fjármálastöðugleikaráðs er í höndum skrifstofu fjármálamarkaðar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, þ.m.t. boðun funda, skráning gagna og skjölun. Skrifstofan annast undirbúning funda í samstarfi við Seðlabanka Íslands.

Formaður kallar ráðið saman þrisvar á ári og oftar ef þörf krefur. Ráðið ákveður dagsetningar funda næsta árs eigi síðar en 30. nóvember ár hvert. Fundir fjármálastöðugleikaráðs skulu fara fram í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og að jafnaði haldnir innan tveggja vikna frá fundi fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands. Óski ráðsmaður eftir breytingum á fundartíma skal hann tilkynna það ritara ráðsins og annar fundartími er þá ákveðinn í samráði við báða ráðsmenn.

Ritari lætur ráðsmönnum í té dagskrá og fundargögn að jafnaði með fjögurra daga fyrirvara. Seðlabanki Íslands veitir ráðinu þær upplýsingar sem ráðið óskar eftir til að sinna hlutverki sínu.

Skipulag funda fjármálastöðugleikaráðs

Formaður stýrir fundum fjármálastöðugleikaráðs. Fundina sitja ráðsmenn og ritari en með samþykki ráðsmanna er heimilt að fleiri sitji fundina.

Fundir ráðsins skulu að jafnaði byggja á eftirfarandi skipulagi:

  1. Kynning á og umræður um greiningu Seðlabanka Íslands á fjármálastöðugleika og stöðu þjóðarbúsins þannig að ráðsmenn geti vaktað mögulegt efnahagslegt ójafnvægi, áhættu í fjármálakerfinu, óæskilega hvata eða annað sem gæti raskað fjármálastöðugleika.
  2. Kynning Seðlabanka Íslands á virkum þjóðhagsvarúðartækjum og árangri af beitingu þeirra og umræður, eftir því sem tilefni er til.
  3. Grein gerð fyrir ákvörðunum skilavalds Seðlabankans frá síðasta fundi ráðsins.
  4. Önnur mál.
  5. Samþykkt fréttatilkynningar eða annars efnis til birtingar.

Ef fjármálastöðugleika telst raskað og ráðið kemur saman sem formlegur samstarfsvettvangur stjórnvalda, sbr. 6. gr. laga 66/2014, skal skipulag funda taka mið af þeim sérstöku aðstæðum.

Þegar tilefni er til getur ráðið óskað eftir að sérfræðingar utan ráðuneytisins og Seðlabankans eða fulltrúar fyrirtækja leggi ráðinu til upplýsingar og/eða taki eftir atvikum þátt í fundum ráðsins.

Heimilt er að halda fund í gegnum fjarfundarbúnað að fengnu samþykki fundarmanna.

Gagnsæi

Ritari fjármálastöðugleikaráðs heldur fundargerð og skráir viðveru ráðsmanna og gesta á fundum ráðsins í gerðabók. Í fundargerð skal skrá þau mál sem voru til umfjöllunar, umræður og ákvarðanir. Fundargerð sendist ráðsmönnum til yfirlestrar og samþykktar að jafnaði viku eftir fund. Ráðsmenn skulu koma athugasemdum við fundargerð til ritara ráðsins innan viku frá móttöku, enda skal fundargerð gerð opinber innan eins mánaðar frá fundi ráðsins, sbr. 10. gr. laganna. Eftir samþykkt ráðsmanna undirritar formaður fundargerðina.

Þagnarskylda

Ráðsmenn og gestir funda ráðsins eru bundnir þagnarskyldu um störf þess og upplýsingar sem koma fram á fundum nefndarinnar.

Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

Endurskoðun starfsreglna

Ráðsmenn geta lagt fram skriflegar tillögur að breytingum á reglum þessum. Skulu tillögur teknar fyrir á fundi ráðsins, enda hafi þær borist ritara með a.m.k. viku fyrirvara.

Samþykkt á fundi fjármálastöðugleikaráðs 8. október 2026.

Var efnið hjálplegt?