Hoppa yfir valmynd
Táknmál

Umhverfis- og náttúruverndarmál hafa undanfarin ár og áratugi orðið æ fyrirferðarmeiri stjórnsýsluverkefni, bæði alþjóðlega sem og á innlendum vettvangi. Um allan heim hafa ríki heims aukið við löggjöf og reglusetningu varðandi þessa málaflokka til að tryggja að það sem mannkyn byggir afkomu sína á – jörðin, umhverfið og náttúran – verði ekki fyrir þeim skaða að tilveru mannsins sé ógnað.

Á Íslandi er það umhverfis- og auðlindaráðuneytið sem fer með stærstan hluta þeirra málaflokka sem snúa að umhverfi og náttúruvernd. Í eðli sínu eru þessir málaflokkar þó þverfaglegir þar sem þeir koma inn á flesta þætti mannlegs lífs og því heyra þeir í mörgum tilfellum undir fleiri ráðuneyti eða krefjast samvinnu þvert á ráðuneyti.

Verkefni á sviði umhverfis og náttúruverndar heyra meðal annars undir eftirfarandi málefnasvið í gildandi fjármálaáætlun: Umhverfismál

Umhverfi og náttúruvernd

Umhverfis- og náttúruverndarmál hafa undanfarin ár og áratugi orðið æ fyrirferðarmeiri stjórnsýsluverkefni, bæði alþjóðlega sem og á innlendum vettvangi.  Um allan heim hafa ríki heims aukið við löggjöf og reglusetningu varðandi þessa málaflokka til að tryggja að það sem mannkyn byggir afkomu sína á – jörðin, umhverfið og náttúran – verði ekki fyrir þeim skaða að tilveru mannsins sé ógnað.

Á Íslandi er það umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið sem fer með stærstan hluta þeirra málaflokka sem snúa að umhverfi og náttúruvernd. Í eðli sínu eru þessir málaflokkar þó þverfaglegir þar sem þeir koma inn á flesta þætti mannlegs lífs og því heyra þeir í mörgum tilfellum undir fleiri ráðuneyti eða krefjast samvinnu þvert á ráðuneyti.

Verkefni á sviði umhverfis og náttúruverndar heyra meðal annars undir eftirfarandi málefnasvið í gildandi fjármálaáætlun:

  • Umhverfismál

Sjá einnig:

Lög og reglugerðir

Helstu lög um umhverfismál og náttúruvernd má finna undir kaflanum Umhverfismál í lagasafni Alþingis


Reglugerðir sem falla undir þessi lög má finna á reglugerd.is

Fréttir

Síðast uppfært: 1.2.2022 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum