Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2023 Heilbrigðisráðuneytið

39 tillögur viðbragðsteymis að umbótum í bráðaþjónustu á landsvísu

39 tillögur viðbragðsteymis að umbótum í bráðaþjónustu á landsvísu - myndHeilbrigðisráðuneytið

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skipaði viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu í ágúst síðastliðnum. Hlutverk þess var að setja fram tímasetta áætlun til næstu ára um breytingar og umbætur í bráðaþjónustu um allt land. Teymið hefur nú skilað ráðherra umfjöllun sinni um umbætur með 39 tillögum um aðgerðir til skemmri og lengri tíma.

„Þetta eru skýrar og vel rökstuddar tillögur um markvissar aðgerðir til að efla og bæta bráðaþjónustu um allt land. Þannig aukum við öryggi sjúklinga, styðjum markmiðið um að veita rétta þjónustu á réttum stað og jöfnum álag á stofnanir heilbrigðiskerfisins“ segir Willum Þór. Hann segir afar verðmætt að í viðbragðsteyminu hafi unnið saman fulltrúar allra aðila sem koma að bráðaþjónustu og skilað sameiginlegri niðurstöðu og tillögum.

Jón Magnús Kristjánsson sérfræðingur í bráðalækningum leiddi vinnu teymisins og segir samstöðuna í hópnum hafa mikla þýðingu: „Við erum sannfærð um að með því að hrinda þessum tillögum í framkvæmd munum við sjá miklar breytingar á næstu misserum með öruggari, skilvirkari og betri bráðaþjónustu.

Í samræmi við skipunarbréf var megináhersla lögð á móttöku bráðatilvika alls staðar í heilbrigðiskerfinu. Teyminu var skipt í vinnuhópa sem hver um sig fjallaði um og gerði tillögur til umbóta sem snúa að eftirtöldum þáttum:

  • Kortlagningu, verkaskiptingu og stigun bráðaþjónustu á landsvísu
  • Faglegum stuðningi við sjúkraflutninga á landsvísu og móttöku bráðatilvika í dreifðari byggðum
  • Endurskoðun á bráðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu utan dagvinnutíma
  • Skilgreiningu lykilmarkmiða og mælikvarða fyrir þjónustu á bráðamóttökum
  • Aukinni bráðaþjónustu við einstaklinga í heimahúsum eða á hjúkrunarheimilum og mat á áhrifum þess á aðsókn og álag á bráðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu 

Helstu niðurstöður viðbragðsteymisins 

Viðbragðsteymi um bráðaþjónustu telur margvísleg sóknarfæri til að efla og bæta bráðaþjónustu á landsvísu. Í megindráttum snúa tillögur viðbragðsteymisins að því að efla og samræma bráðaþjónustu um allt land, auka samvinnu milli stofnana, skilgreina viðmið um gæði þjónustunnar, styðja við menntun og þjálfun viðbragðsaðila, innleiða skilgreiningar á viðbragðstíma sjúkraflutninga og fleira.

Stofnuð verði bráðafjarheilbrigðismiðstöð: Viðbragðsteymið leggur ríka áherslu á að stórefla faglegan stuðning við alla þá viðbragðsaðila sem sinna bráðaþjónustu um allt land, meðal annars við sjúkraflutninga og ekki síður heilbrigðisstarfsfólk á starfsstöðvum heilbrigðisstofnana í dreifðari byggðum.

Lagt er til miðstöðin sinni 1) læknisfræðilegri stjórnun og ráðgjöf fyrir sjúkraflutninga, 2) bráða-læknisráðgjöf fyrir heilsugæslu í dreifbýli, 3) fjarheilbrigðisþjónustu fyrir sjófarendur, vettvangsliða og björgunarsveitir, auk 4) faglegrar ráðgjafar við Neyðarlínu, meðal annars til 5) ákvörðunar um notkun sjúkraflugs og þyrlu. Verkefnið á sér fyrirmyndir erlendis. Ýtarlega er fjallað um þetta verkefni í meðfylgjandi skýrslu viðbragðsteymisins. 

Tækjakaup til bráðaþjónustu og vegvísun í heilbrigðisþjónustu

Heilbrigðisráðherra hefur þegar ráðstafað tæpum 330 milljónum króna til að bæta tækjabúnað vegna bráðaþjónustu á heilbrigðisstofnunum og heilsugæslustöðvum um allt land. Ákvörðunin byggist á tillögum viðbragðsteymisins um aðgerðir til að jafna aðgengi að bráðaþjónustu um allt land. Einnig er hafin vinna starfshóps um vegvísun í heilbrigðisþjónustu sem ráðherra skipaði í samræmi við tillögur teymisins.  Markmiðið er að tryggja almenningi greiðar og aðgengilegar upplýsingar um hvert leita skuli eftir heilbrigðisþjónustu í samræmi við þörf og aðstæður hvers og eins hverju sinni. Horft er til þess að með samræmdri upplýsingagjöf og aukinni samvinnu þjónustuveitenda megi bæta þjónustu við sjúklinga og dreifa álagi á heilbrigðiskerfið.

Undirbúningur er hafinn að framkvæmd fleiri tillagna viðbragðshópsins og verður greint frá því eftir því sem fram vindur.

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum