Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og sveitarfélagið Hornafjörður semja um móttöku flóttamanna

Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Erla Björg Sigurðardóttir, félagsmálastjóri sveitarfélagsins Hornafjarðar. - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Erla Björg Sigurðardóttir, félagsmálastjóri sveitarfélagsins Hornafjarðar og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, undirrituðu í dag samning um samræmda móttöku flóttafólks. Samkvæmt samningnum mun sveitarfélagið Hornafjörður taka á móti átta flóttamönnum á árinu.

Samræmd móttaka flóttafólks nær til fólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hér á landi. Markmiðið er að tryggja flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur og í hvaða sveitarfélagi það sest að. Lögð er áhersla á nauðsynlega aðstoð til að vinna úr áföllum og fólk fái tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, svo sem með atvinnu, samfélagsfræðslu og námi, þ.m.t. íslenskunámi.

Þetta er fimmti samningurinn sem undirritaður er um samræmda móttöku flóttafólks á skömmum tíma. Auk Hornafjarðar hefur Reykjanesbær undirritað samning við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið sem og Reykjavíkurborg og sveitarfélögin Árborg og Akureyri.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum