Hoppa yfir valmynd
2. júní 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Streymi af samráðsfundi um framtíðarskipan skólaþjónustu

Yfir fjögur hundruð hafa skráð sig á samráðsfund mennta- og barnamálaráðherra um framtíðarskipulag skólaþjónustu á Íslandi nk. mánudag 5. júní kl. 10:00–16:00 í Silfurbergi í Hörpu. Fundurinn markar þann síðasta í opna samráðsferlinu og er nýtt skipulag skólaþjónustu að taka á sig mynd. Honum verður verður streymt á vef Stjórnarráðsins með táknmálstúlkun.

Á fundinum verða kynntar niðurstöður þjóðfundar um framtíð skólaþjónustu og þjóðfunda í héraði sem haldnir voru í mars sl. Markmið fundarins er að fá endurgjöf sem flestra aðila úr skólakerfinu og annarra áhugasamra til að móta heppilegustu útfærsluna. Niðurstöðurnar verða nýttar við gerð frumvarps til laga um heildstæða skólaþjónustu á Íslandi sem stefnt er að því að birta í samráðsgátt í haust.

Samráðsferlið hófst í nóvember á opnum kynningarfundi um áform um ný heildarlög um skólaþjónustu með vel á þriðja hundrað þátttakendum. Í vetur tóku m.a. um þrjú hundruð manns þátt í rafrænum samráðsfundum og hafa meira en þúsund börn og ungmenni tekið þátt í ferlinu með fjölbreyttum hætti. Yfir fjögur hundruð manns sóttu þjóðfund um framtíð skólaþjónustu í Hörpu 6. mars sl. Í kjölfarið voru jafnframt haldnir þjóðfundir heima í héraði víða um land. Þátttakan hefur verið vonum framar og þakkar mennta- og barnamálaráðuneytið fyrir framlag allra þeirra sem komið hafa að vinnunni.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum