Hoppa yfir valmynd
3. apríl 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur störf og verkefni færast til mennta- og barnamálaráðuneytisins

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynnir áform um nýja þjónustustofnun og viðamiklar breytingar á menntakerfinu í upphafi kjörtímabils - mynd

Þann 1. apríl sl. tóku gildi ný lög um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Um er að ræða nýja þjónustu- og þekkingarstofnun sem starfar í þágu barna og ungmenna á sviði menntamála. Stofnunin þjónustar leik-, grunn- og framhaldsskóla um land allt með áherslu á gæði menntunar og skólaþjónustu.

Með gildistöku laganna var Menntamálastofnun lögð niður og færðust ýmis verkefni yfir til mennta- og barnamálaráðuneytisins. Meðal þeirra verkefna eru:

Ítarlegri upplýsingar um verkefnin og fyrirkomulag þeirra verða birtar á vef Stjórnarráðsins á næstunni.

Þá verður dreifibréf sent til allra grunn- og framhaldsskóla landsins, skólaskrifstofa og sveitarfélaga þar sem kynntar verða breytingar á afgreiðslu undanþága til kennslustarfa.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum