2. október 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Föstudagspóstur 2. október 2026

Heil og sæl,

líkt og greint var frá í síðasta Föstudagspósti þá var 81. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sett í síðustu viku og flutti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, þar ávarp á laugardaginn.

 

Varnarmálafundur Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force, JEF) stendur nú yfir í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn og lýkur í dag. Sameiginlega viðbragðssveitin er samstarfsvettvangur líktþenkjandi Norður-Evrópuríkja um öryggis- og varnarmál með áherslu á norðurslóðir, Norður-Atlantshafið og Eystrasaltið.

Meira verður fjallað um fundinn í næsta föstudagspósti.

Að lokum er vakin athygli á því að ráðherra birti greinina Réttindi eiga að vera raunveruleg í Vísi í gær, 1. október.

Sendiráð Íslands í Tókýó, Japan, tók þátt í Tourism EXPO Japan, stórri ráðstefnu ferðaþjónustufyrirtækja, og var þar með kynningarbás um Ísland og viðskiptatækifæri á Íslandi ásamt fyrirtækjunum Iceland Travel og Víking Travel. Yfir 1.200 manns heimsóttu básinn!

Ekki nóg með það, þá var fjallað sérstaklega um Ísland, íslenska matarmenningu og íslenskar gæðaútflutningsvörur í japönsku tímariti í vikunni. Að sjálfsögðu brá sendiherra fyrir sem fulltrúi lands og þjóðar þar í landi.

Íslensk þekking á nýtingu jarðhita var í fyrirrúmi á Spáni þar sem sendiráðsteymið okkar tók þátt í opnunarathöfn nýs jarðhitaverkefnis á vegum Reykjavík Geothermal og spænska fyrirtækisins Grupo DISA á Tenerife. Um er að ræða fyrstu háhitarannsóknarboranir af þessu tagi á Spáni.

Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands á Spáni, flutti ávarp á viðburðinum ásamt forseta héraðsstjórnar Kanaríeyja og Joan Groizard, aðstoðarorkumálaráðherra Spánar, auk annarra.

Það er gaman að segja frá því að sendiráðsteymið okkar í Nýju-Delí lenti í öðru sæti í árlegri Krikket-keppni norrænna sendiráða í Nýju-Delí!

Eitt ár er liðið frá því að fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna og Indlands tók formlega gildi og í tilefni þess skrifaði Benedikt Höskuldsson grein í blaðinu The Hindu um árangur samningsins og þau fjölmörgu tækifæri sem í honum leynast fyrir fyrirtæki.

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands gagnvart Evrópusambandinu, sótti óformlegan fund orkumálaráðherra Evrópusambandsríkja í Dublin í síðustu viku fyrir hönd Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Á fundinum tóku fulltrúar EES-EFTA ríkjanna, Sviss, Úkraínu, Moldóvu, Svartfjallalands, Bretlands og Kanada.

Sendiráð Norðurlanda í Berlín stóðu fyrir norrænni tónlistarhátíð í síðustu viku í Fellashus, sameiginlegu sendiráðsbyggingu Norðurlanda í Berlín. Það var enginn skortur á góðum tónlistaratriðum og meðal þeirra var íslenskt og færeyskt tríó!

 

Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Póllandi, flutti ávarp á opnunarviðburði Green Transition Program, sem er verkefni á vegum Íslands og Uppbyggingarsjóðs Noregs þar í landi sem stuðlar að grænum umbótum og orkuskiptum í samstarfsríkjum okkar í Evrópu.
Sendiráð Íslands í Freetown, Síerra Leóne, deilir upplýsingum um árangursríkt þróunarsamvinnuverkefni i í Bonthe-héraði. Verkefnið snýr að heimaræktuðum skólamáltíðum og hafa yfir 40 þúsund grunnskólanemar notið góðs af næringarríkum skólamat vegna verkefnisins. Á sama tíma og verkefnið skaffar næringaríkar og góðar máltíðir fyrir grunnskólabörn styður verkefnið við heimarækt og fiskveiði og skapar því atvinnu á svæðinu.

Food & Fun matreiðsluhátíðin í Turku, Finnlandi, hófst í gær. Food & Fun hátíðin á rætur að rekja til Íslands árið 2002 og hefur hátíðin síðan verið haldin í fjölmörgum borgum Evrópu, þar á meðal í Turku frá árinu 2012. Meðal fjölmagra matreiðslumeistara sem taka þátt í hátíðinni í ár er íslenski matreiðslumeistarinn Friðgeir Eiríksson.

Nína Björk Jónsdóttir, sendiherra okkar í Finnlandi, opnaði hátíðina og fengu gestir opnunarviðburðarins að gæða sér á ljúffengum réttum að hætti Friðgeirs.

Starfsfólk sendiráðs Íslands í París var boðið að hlýða á ávörp Leó 14. Páfa og Emmanuel Marcon, Frakklandsforseta, í Élysée-höllinni og hjá UNESCO, ásamt Khaled El-Enany, framkvæmdastjóra UNESCO.

Einnig í vikunni stóðu sendiráð Íslands og Noregs fyrir sérstakri sýningu á tónleikakvikmyndinni Under, í samstarfi við framleiðendur myndarinnar og sjónvarpstöðina ARTE.

Ráðstefnan Pathways to Peace Conference on Returning Ukrainian Children, Detained Civilians, and Prisoners of War var haldin í Toronot í vikunni. Auðbjörg Halldórsdóttir, sendherra Íslands í Kanada, sótti ráðstefnuna ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, sendiherra Íslands í London, en Þórdís sótti ráðstefnuna í hlutverki sínu sem sérstakur erindreki Evrópuráðsins í málefnum úkraínskra barna.

Auðbjörg, sendiherra, áréttaði stuðning Íslands við Úkraínu og aðgerðir úkraínskra stjórnvalda til þess að endurheimta úkraínsk börn sem hafa verið numin á brott af rússneskum stjórnvöldum eftir að innrásarstríð Rússlands hófst árið 2022.

Sendiráðsteymið okkar í Lilongwe, Malaví, deilir upplýsingum um mikilvægt þróunarsamvinnuverkefni í samstarfi við Go Fund a Girl Child samtakanna sem vinna að því að skapa örugg umhverfi þar sem ungar stúlkur og konur í dreifbýli og á jaðarsvæðum borga hljóta stuðning. Verkefnið stuðlar einnig að félagslegri og efnahagslegri þróun og valdeflingu kvenna í viðkvæmri stöðu.

Meira verður það ekki í bili!

Bestu kveðjur, Upplýsingadeild.