25 september 2026
/

Föstudagspóstur 25. september 2026

Heil og sæl,

81. allsherjaþings Sameinuðu þjóðanna var sett í vikunni þar sem 193 leiðtogar samtakanna safnast saman þessa vikuna til að ræða helstu áskoranir í alþjóðasamfélaginu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, hefur í vikunni tekið þátt í fjölmörgum fundum og viðburðum og flutti hún m.a. ávarp á utanríkisráðherrafundi ríkjabandalags um tveggja ríkja lausnina svonefndu milli Ísraels og Palestínu. Málefni Úkraínu settu einnig sitt mark á dagskrá ráðherra í vikunni og sótti hún m.a. sérstakan viðburð um Krím-skaga, sem tilheyrir Úkraínu en Rússland hertók árið 2014, og var þar Volodómír Selenskí, forseti Úkraínu, aðalræðumaður. Ráðherra stýrði umræðum á sérstökum fundi kvenleiðtoga á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í gær og flutti hún einnig ávarp á ráðherrafundi um mikilvægi þess að standa vörð um hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þar að auki flutti ráðherra ávarp á viðburði um hættuna sem stafar af hækkun yfirborðs sjávar sem er gríðarlega mikilvægt hagsmunamál fyrir Ísland.

Hægt er að kynna sér nánar fundi, tvíhliðafundi og viðburði ráðherra í grein utanríkisráðuneytisins.

Meira verður fjallað um þátttöku ráðherra í upphafi 81. allsherjaþingsins í næsta föstudagspósti.

Þorgerður Katrín, utanríkisráðherra, og Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, funduðu í utanríkisráðuneytinu við Austurhöfn á laugardaginn sl. Ráðherrarnir ræddu stöðu mála í Úkraínu í aðdraganda vetrar og áframhaldandi stuðning Íslands við Úkraínu. Sybiha fundaði einnig með utanríkismálanefnd Alþingis.
Þorgerður Katrín, utanríkisráðherra, og Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands, undirrituðu á Akureyri á föstudaginn sl. endurnýjaðan samstarfssamning til fimm ára. Norðurslóðanet Íslands var stofnað 2013 til að vera miðstöð norðurslóðarannsókna og samstarfsvettvangur þeirra sem vinna að málefnum norðurslóða.

Nýja-Delí

Sendiráðsteymið okkar í Nýju-Delí tók þátt í landkynningarferð Visit Iceland í Mumbai og Bangalore ásamt fulltrúum frá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum.

Svo á morgun á sér stað krikketkeppni norrænna sendiráða í Nýju-Delí og íslenska liðið er tilbúið í slaginn!

Osló

Ragnar G. Kristjánsson afhenti í gær Hákoni VIII, Noregskonungi, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Noregi við hátíðlega athöfn í konungshöllinni í Osló.

Kampala

Katrín Einarsdóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Úganda, afhenti Kyeyune Haruna Kasolo, aðstoðarutanríkisráðherra Úganda, skipunarbréf sitt í Kampala í gær.

Genf

63. fundarlota mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna stendur nú yfir. Ungmennafulltrúi Íslands á sviði mannréttinda tók þátt í störfum fastanefndarinnar í mannréttindaráðinu í síðustu viku og flutti ræðu. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, var einnig stödd í mannréttindaráðinu og hlýddi á ræðuna.

Stokkhólmur

Sendiráð Íslands í Stokkhólmi tekur þátt í Bókamessunni í Gautaborg undir merkjum bókmenntakynningarverkefnisins Läs isländska böcker, sem rekið er af sendiráðinu í samstarfi við þýðandann John Swedenmark. Markmið þess er að auka veg íslenskra bókmennra í Svíþjóð, bæði með því að fjölga lesendum en einnnig með því að styrkja samstarf við sænsk forlög og styðja við þau í vinnu sinni við kynningu á íslenskum bókmenntum með það fyrir augum að fjölga útgefnum titlum.
Þátttakan í Bókamessunni er í samstarfi við Miðstöð íslenskra bókmennta og Íslandsstofu, að frumkvæði og undir verkstjórn sendiráðsins.

Tókýó

Ragnar Þorvarðarson, staðgengill sendiherra Íslands í Tókýó, sótti fund EFTA-ríkjanna og ASEAN-ríkja í Manila, höfuðborg Filippseyja í vikunni. Á fundinum var samstarfsáætlun EFTA og ASEAN samþykkt fyrir árin 2026 til 2030 sem miðar að því að styrkja viðskiptatengsl ríkjanna.

Freetown

Fulltrúar sendiráða Íslands og Írlands tóku þátt í eftirlitsferð til að kynna sér framgang Lite Salone verkefnisins sem miðar að því að veita heimilum í afskekktum byggðum aðgang að sjálfbæru rafmagni með sólarrafhlöðum.

Osló

Í vikunni fóru fram Margretedagene í Osló, árlegur samráðsvettvangur um menningar-, öryggis- og varnarmál á vegum Norræna félagsins í Osló og norska hersins.

Ottawa

Auðbjörg Halldórsdóttir, sendiherra Íslands í Kanada, hefur verið á ferð og flugi í vikunni ásamt öðrum norrænum sendiherrum. Fundað var með fylkisstjórn Nýfundnalands og Labradors fylkis, kanadísku landhelgisgæslunni og háskólanum í Nýfundnalandi. Efst á baugi voru orkumál, sjávarútvegsmál, öryggis- og varnarmál á norðurslóðum, viðskipti Kanada og Norðurlanda, og margt fleira.

Kaupmannahöfn

Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og Íslandsstofa skipulögðu þátttöku sendinefndar íslenskra fyrirtækja á Nordic Fintech Week sem stendur nú yfir í Kaupmannahöfn. Pétur Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, tók vel á móti fulltrúum fyrirtækjanna í gær.

Madríd

Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands á Spáni, heimsótti Kanaríeyjar í síðustu viku og fundaði með forseta héraðsstjórnar Kanaríeyja, borgarstjóra Las Palmas de Gran Canaria, og forseta viðskiptaráðs Kanaríeyja. Þar að auki heimsótti sendiherra íslenska fyrirtækið Stormöldu.

Helsinki

Nína Björk Jónsdóttir, sendiherra okkar í Helsinki, tók á móti starfsfólki Menntaskólans við Sund í gær, en hópurinn er í fræðsluferð í Finnlandi

Lilongwe

Sendiráðsteymið okkar fór í vettvangsferð í Nkhotakota-héraði til þess að skoða uppbyggingu miðstöðvar fyrir fórnarlömb kynbundins ofbeldis sem er hluti af íslensku þróunarsamstarfsverkefni í landinu.

Meira verður það ekki í bili!

Bestu kveðjur, Upplýsingadeild.