9. október 2026 /
Dómsmálaráðuneytið
Skýrslu vegna fjórðu allsherjarúttektar mannréttindaráðs SÞ skilað
Skýrslu Íslands vegna fjórðu allsherjarúttektar mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála (Universal Periodic Review – UPR) hefur verið skilað.
Í skýrslunni er farið yfir hvernig íslensk stjórnvöld hafa fylgt eftir þeim tilmælum sem Ísland samþykkti í síðustu úttekt árið 2022 og helstu þróun á sviði mannréttinda frá þeim tíma. Kaflaskipting skýrslunnar tekur mið af efni tilmælanna.
Stýrihópur Stjórnarráðsins um mannréttindi hefur haldið utan um gerð skýrslunnar en fulltrúar allra ráðuneyta eiga sæti í hópnum. Skýrslan verður lögð til grundvallar við fyrirtöku Íslands hjá mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í janúar.
Á mannréttindavef dómsmálaráðuneytisins má nálgast nánari upplýsingar um allsherjarúttekt Sameinuðu þjóðanna.