07. feb. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál
Ráðherrarnir ræddu öryggismál
Tvíhliða samskipti Íslands og Danmerkur, öryggismál og leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins í næstu viku voru meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, og Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur, sem fram fór á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í dag.