Markmið og árangur

Hér er fjallað um árangur og ávinning af ráðstöfun fjármuna, skipt eftir málefnasviðum og þeim málaflokkum sem eru á forræði innviðaráðherra. Gerð er grein fyrir árangursmælingu markmiða sem birtust í fjármálaáætlun 2023–2027, auk viðmiða og raunstöðu mælikvarða árið 2023. Einnig eru tilgreindar aðgerðir sem skilgreindar voru í frumvarpi til fjárlaga 2023 og stuðla að framgangi viðkomandi markmiða, ásamt stöðu þeirra í árslok 2023.