Starfsemi ráðuneytisins á árinu 2023
Fréttaannáll 2023
Húsnæðis- og skipulagsmál
Húsnæðisstefna ásamt aðgerðaáætlun lögð fram í fyrsta sinn
Tillaga til þingsályktunar um húsnæðisstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028 var lögð fram á Alþingi í nóvember 2023. Þetta er í fyrsta sinn sem sett er fram heildstæð stefnumótun í húsnæðismálum á landsvísu sem hefur að leiðarljósi að tryggja að öll búi við húsnæðisöryggi í víðtækum skilningi.
Stórfelld uppbygging hagkvæmra íbúða með stofnframlögum
Í júní voru kynnt áform um stórfellda uppbyggingu hagkvæmra íbúða fyrir tekju- og eignaminni. Stefnt yrði að því að byggja 2.800 íbúðir fyrir þennan hóp á árunum 2023–2025.
Samningar við sveitarfélög um húsnæðisuppbyggingu
Samningar um aukið framboð íbúðarhúsnæðis voru gerðir við Reykjavíkurborg, Mýrdalshrepp og Húnaþing vestra.
Gagnger endurskoðun byggingarreglugerðar
Vorið 2023 var skipaður stýrihópur um breytingar á byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skipulagsmál
Landsskipulagsstefna ásamt aðgerðaáætlun lögð fram
Tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun var lögð fram á Alþingi í nóvember 2023 og samþykkt í maí 2024.
Fyrsta skipulag staðfest til tekur til fjarða og flóa við strendur landsins
Í mars 2023 staðfesti innviðaráðherra tillögur svæðisráða að strandsvæðisskipulagi Austfjarða og Vestfjarða.
Samgöngur
Samgönguáætlun lögð fram
Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun var lögð fram á Alþingi í október 2023. Gert er ráð fyrir að 909 milljörðum króna verði varið til samgangna á fimmtán ára tímabili.
Samgöngumannvirki og fækkun einbreiðra brúa
Unnið var að ýmsum stórframkvæmdum á stofnvegum, meðal annars á Suðurlandsvegi, Kjalarnesi, Reykjanesvegi, Vestfjarðavegi og við Hornafjarðarfljót.
Endurskoðun á tekjuöflun ríkisins af ökutækjum og umferð
Unnið var að aðlögun fjármögnunarkerfisins að orkuskiptum með upptöku kílómetragjalds í stað olíu- og bensíngjalda.
Sveitarstjórnarmál
Ný stefnumótandi áætlun um málefni sveitarfélaga
Þingsályktun um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024–2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028 var samþykkt á Alþingi í desember 2023.
Römpum upp Ísland
Átakinu Römpum upp var haldið áfram af krafti árið 2023. Undir lok ársins var 1.000. rampurinn vígður.
Byggðamál
Byggðaáætlun í fullri virkni
Á árinu var unnið af krafti á grunni aðgerða í byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036, sem hefur það meginmarkmið að jafna tækifæri landsmanna til atvinnu og þjónustu.
Styrkir til að efla byggðir landsins
Tólf verkefni á vegum sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga fengu úthlutað styrkjum að upphæð 130 milljónum króna.
Málefni Grindavíkur
Stjórnvöld stóðu fyrir ýmsum aðgerðum til að styðja við Grindvíkinga vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga frá 10. nóvember 2023.
Tímabundin húsnæðisúrræði
Þann 10. nóvember 2023 voru 1.150 heimili rýmd í Grindavík og tímabundið húsnæði útvegað meðan á óvissunni stóð.
Sértækur húsnæðisstuðningur
Alþingi samþykkti frumvarp um sértækan húsnæðisstuðning til að lækka húsnæðiskostnað Grindvíkinga sem þurfa að leigja húsnæði utan Grindavíkurbæjar.
Framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur
Alþingi samþykkti í maí 2024 lagafrumvarp um sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur. Nefndin tók til starfa 1. júní 2024.