Hoppa yfir valmynd

Mannauðsmál

Það er stefna innviðaráðuneytisins að hafa ávallt á að skipa hæfu og áhugasömu starfsfólki sem sýnir frumkvæði í störfum, veitir góða þjónustu og bregst við síbreytilegum þörfum samfélagsins. Í mannauðsstefnu ráðuneytisins er lögð rík áhersla á starfsánægju og heilbrigði starfsfólks, jafnvægi milli vinnu og einkalífs, jafnrétti, góðan aðbúnað á vinnustað, jákvæð samskipti, faglega og styðjandi stjórnun og tækifæri fyrir starfsfólk til símenntunar og þróunar í starfi. 

Starfsmannahópur ráðuneytisins hefur fjölbreyttan bakgrunn hvað varðar menntun og reynslu. Í lok árs 2022 voru 46 einstaklingar í starfi hjá ráðuneytinu, 42 í föstu starfi og fjórir í tímabundnu starfi, auk ráðherra og aðstoðarmanna. Hlutföll kynja eru jöfn 25 konur og 21 karl. Meðalaldur starfsfólks er 50 ár og meðalstarfsaldur 13,2 ár. Ráðuneytið tekur þátt í reglulegum vinnustaðakönnunum sem framkvæmdar eru í öllu Stjórnarráðinu.

Jafnlaunavottun 

Jafnrétti er hornsteinn í mannauðsstefnu ráðuneytisins. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Óháðir úttektaraðilar gera úttekt á jafnlaunakerfi ráðuneytisins á hverju ári og hefur kerfið hlotið vottun árlega frá árinu 2019.

 

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum