Hoppa yfir valmynd
Slice 1Created with Sketch.
Ásmundur Einar Daðason - mennta- og barnamálaráðherra

Ásmundur Einar Daðason

mennta- og barnamálaráðherra

Æviágrip

Ásmundur Einar Daðason er mennta- og barnamálaráðherra frá 28. nóvember 2021. Hann gegndi embætti félags- og barnamálaráðherra 1. janúar 201928. nóvember 2021, áður félags- og jafnréttismálaráðherra frá 30. nóvember 2017. 

Fæddur í Reykjavík 29. október 1982. Foreldrar: Daði Einarsson (fæddur 26. maí 1953) bóndi og Anna Sigríður Guðmundsdóttir (fædd 26. febrúar 1960). Maki: Sunna Birna Helgadóttir (fædd 17. október 1978). Foreldrar: Helgi Torfason og Ella B. Bjarnarson. Dætur: Aðalheiður Ella (2006), Júlía Hlín (2008), Auður Helga (2015).

Búfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri 2002. B.Sc.-próf í almennum búvísindum frá Landbúnaðarháskóla Íslands 2007.

Starfaði við landbúnað í hlutastarfi til ársins 2009. Rak eigið innflutnings- og sölufyrirtæki með vörur fyrir landbúnað til 2011.

Í stúdentaráði Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri, 20012002, formaður 20042005. Formaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu 20052010. Formaður svæðisfélags Vinstri hreyfingarinnar  græns framboðs í Dölum 2005–2007. Í háskólaráði Landbúnaðarháskóla Íslands 2009–2013. Í stjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms frá 2015 (formaður kvennaráðs Skallagríms 2015–2017, almennur stjórnarmaður frá 2017).

Alþingismaður Norðvesturkjördæmis 2009–2016 og síðan 2017 (Vinstrihreyfinginn - grænt framboð, utan flokka, Framsóknarflokkur).

Félagsmálaráðherra 2017–2021.

Formaður þingflokks Framsóknarmanna 2015–2016.

Allsherjarnefnd 2009–2010, fjárlaganefnd 2009–2011 og 2013–2016, menntamálanefnd 2009–2010, sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd 2009 og 2010–2011, félags- og tryggingamálanefnd 2010–2011, samgöngunefnd 2011, umhverfis- og samgöngunefnd 2011–2013, utanríkismálanefnd 2013–2015.

Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2009–2011, Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 2013–2016.

 

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum