Vegabréf og nafnskírteini

Hægt er að sækja um vegabréf og nafnskírteini hjá sendiráði Íslands í Róm.

Almenn afgreiðsla sendiráðsins er opin alla virka daga frá kl. 09:30 til 16:00.

Afgreiðslutími fyrir umsóknir um vegabréf og nafnskírteini er eftir samkomulagi. 
Hafa þarf samband við sendiráð: [email protected]

Tímabókanir skulu gerðar með góðum fyrirvara og mikilvægt er að mæta stundvíslega.

Gjaldskrá borgaraþjónustu.

Vegabréf og nafnskírteini eru einu persónuskilríkin sem gefin eru út af íslenskum yfirvöldum. Vegabréf eru einu íslensku ferðaskilríkin sem vissa er fyrir að öll önnur ríki viðurkenni sem gild ferðaskilríki. Nafnskírteini eru hins vegar eingöngu viðurkennd sem gild ferðaskilríki innan ríkja Evrópska efnahagssvæðisins. Því þurfa Íslendingar ávallt að ferðast með vegabréf þegar ferðast er til ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Hér undir má finna nánari upplýsingar um umsóknarferli vegna útgáfu skilríkja barna, neyðarvegabréf og fleira.

 

Umsóknarstaðir vegabréfa erlendis eru í flestum sendiskrifstofum Íslands sem og aðalræðisskrifstofum. Öll vegabréf eru gefin út af Þjóðskrá.

Þjóðskrá Íslands sendir vegabréf og nafnskírteini með DHL.

Umsækjandi þarf alltaf að mæta í eigin persónu á umsóknarstað og skal panta tíma fyrir fram. Mynd fyrir vegabréf er tekin á staðnum.

Eftirfarandi þarf að hafa með sér:

  • Eldra vegabréf
  • Staðfesting á greiðslu ef greitt hefur verið fyrir fram

 

Athugið! Vegabréf eru aldrei endurútgefin né afgreidd í gegnum netið. Ekki er hægt að framlengja gildistíma vegabréfa.

Vegabréf sem tilkynnt hafa verið sem glötuð eru skráð í Schengen og Interpol upplýsingakerfin og eru þar með ónothæf.

Börn undir 18 ára aldri þurfa eigin vegabréf. Ef tveir aðilar fara með forsjá barns þurfa báðir aðilar að samþykkja útgáfu vegabréfsins.

Áður en komið er á umsóknarstað þarf að fylla út eyðublað um samþykki forsjáraðila vegna útgáfu vegabréfs fyrir einstakling undir 18 ára aldri. Eyðublaðið (V-951) skal vera útfyllt, vottað og útprentað við komu í sendiráðið. Það varðar sektum eða fangelsi allt að sex mánuðum ef gefnar eru rangar upplýsingar um forsjá barns í þeim tilgangi að gefið verði út vegabréf til þess án samþykkis forsjárforeldris.

Fari einn með forsjá barns er undirskrift þess foreldris nægjanleg vegna umsóknar enda staðfesti Þjóðskrá Íslands að viðkomandi fari aðili einn með forsjá.

Til að forðast tafir í útgáfu vegabréfs er þó vakin athygli foreldra sem fara einir með forsjá, að gangi þeir í hjúskap þarf enn fremur samþykki stjúpforeldris.

Taki þeir, aftur á móti, upp sambúð þarf samþykki sambúðarforeldris eftir að sambúðin hefur verið skráð í Þjóðskrá í samfellt eitt ár. Samkvæmt 10. gr. laga nr. 136/1998 um vegabréf er refsivert að gefa upp rangar upplýsingar.

Ef minnsta óvissa er um forræði þess sem leggur fram umsókn um vegabréf barns, verða upplýsingar staðreyndar eftir fremsta megni.

Börn yngri en 12 ára eru undanþegin fingrafaratöku.

Eingöngu er heimilt að gefa út vegabréf samkvæmt umsókn annars forsjárforeldris þegar hitt forsjárforeldrið er ófært um að veita samþykki sitt vegna sjúkdóms, fjarvistar eða annarra sérstakra aðstæðna að undangenginni athugun á umræddum aðstæðum og mati á því hvort hætta sé á að barn verði fært úr landi með ólögmætum hætti. Fullyrðingar um að annað foreldrið sé erlendis þar sem ekki náist í það eru ekki fullnægjandi grundvöllur. Sjá nánar á vefsíðu Þjóðskrár.

Neyðarvegabréf eru eingöngu gefið út til þess að aðstoða íslenska ríkisborgara í neyð við að komast til Íslands eða til næsta áfangastaðar þar sem hægt er að sækja um fullgilt vegabréf. Því er gildistími þeirra mjög stuttur. Mikilvægt er að hafa samband við sendiráðið til þess að kanna hvort grundvöllur sé fyrir útgáfu neyðarvegabréfs.

Athugið! Þar sem neyðarvegabréf eru aðeins gefin út í neyðartilvikum þarf að senda inn formlega umsókn í gegnum tölvupóst til sendiráðsins á netfang [email protected] með eftirfarandi upplýsingum:

  • Nafn
  • Kennitala
  • Ástæða umsóknar
  • Hvenær er verið að fara
  • Hvert er verið að fara
  • Til hversu langs tíma
  • Staðfesting á ferð (flugmiði)
  • Nánari upplýsingar um neyðarvegabréf er hægt að finna neðar á síðunni.

 

Sendiskrifstofur Íslands og ræðismenn geta gefið út neyðarvegabréf (Emergency Passport) til íslenskra ríkisborgara þegar það á við.

Ítrekun: Neyðarvegabréf eru eingöngu gefið út til þess að aðstoða íslenska ríkisborgara í neyð við að komast til Íslands eða til næsta áfangastaðar þar sem hægt er að sækja um fullgilt vegabréf. Því er gildistími þeirra mjög stuttur. Mikilvægt er að hafa samband við sendiráðið til þess að kanna hvort grundvöllur sé fyrir útgáfu neyðarvegabréfs.

Neyðarvegabréf eru handskrifuð og ekki tölvulesanleg og hafa þar af leiðandi mun lægri öryggisstaðal en almenn vegabréf.

Gildistími neyðarvegabréfs miðar almennt við að handhafi komist heim eða á næsta umsóknarstað. Handhafa neyðarvegabréfs ber að skila því til lögreglu eftir notkun.

Óvíst er að neyðarvegabréf dugi alls staðar til að fá landgöngu, t.d. heimila Bandaríkin ekki landgöngu á neyðarvegabréfi án áritunar - einungis heimferð.

Tilkynna skal lögreglu, Þjóðskrá Íslands eða sendimönnum Íslands erlendis þegar í stað ef vegabréf glatast. Vegabréf sem tilkynnt hafa verið glötuð eru skráð í Schengen og Interpol upplýsingakerfin og eru þar með ónothæf.

 

Ef umsókn um neyðarvegabréf er samþykkt, þá skal umsækjandi:

Mæta í eigin persónu á umsóknarstað (sendiráð Íslands eða hjá ræðismanni).

Sanna deili á sér með eldra vegabréfi eða öðrum persónuskilríkjum.

Koma með tvær passamyndir af sér.

Fylla út umsóknareyðublað um neyðarvegabréf hjá sendiskrifstofu eða ræðismanni.

Greiða fyrir vegabréf skv. lögum um aukatekjur ríkissjóðs nr. 88/1991.

Mynd í neyðarvegabréfi skal uppfylla eftirtalin skilyrði:

  • Myndin skal vera andlitsmynd, tekin þannig að andlit snúi beint að myndavél og bæði augu sjáist.
  • Myndin skal vera jafnlýst, bakgrunnur ljósgrár, hlutlaus og án skugga.
  • Umsækjandi má ekki bera dökk gleraugu eða gleraugu með speglun.
  • Umsækjandi má ekki bera höfuðfat. Þó má heimila slíkt ef umsækjandi fer fram á það af trúarlegum ástæðum.
  • Ljósmyndin má ekki vera eldri en sex mánaða gömul.

 

Ef umsækjandi hefur breytt nafni sínu erlendis þarf að vera búið að fá staðfest að nýtt nafn hafi verið skráð hjá Þjóðskrá Íslands áður en sótt er um nýtt vegabréf.

Slíkt gerist ekki sjálfkrafa þó makar taki upp nafn hvors annars við hjónavígslu erlendis.

Við vekjum athygli á 12. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt þar sem fram kemur að íslenskur ríkisborgari, sem fæddur er erlendis og hefur aldrei haft lögheimili á Íslandi, geti, við ákveðnar aðstæður, misst íslenskan ríkisborgararétt við 22 ára aldur. Til að halda ríkisborgararéttinum þarf viðkomandi að sækja sérstaklega um það.

Nánari upplýsingar má finna á vef Þjóðskrár Íslands.

Var efnið hjálplegt?