Þjónusta við Íslendinga
Sendiráð Íslands leggur lið þeim Íslendingum sem búsettir eru á Ítalíu, námsmönnum og ferðamönnum.
Verkefni sendiráðsins á sviði borgaraþjónustunnar eru margvísleg og aðstoð sendiráðsins getur verið með ýmsum hætti. Algengast er að fólk leiti til sendiráðsins vegna samskipta við hin ýmsu stig norskrar stjórnsýslu, svo og vegna útgáfu vegabréfa, neyðarvegabréfa o.þ.h.
Þó verkefni borgaraþjónustunnar verði ekki talin hér upp með tæmandi hætti má segja að þeim séu sett ákveðin mörk. Hafa ber í huga að hér er um að ræða aðstoð til íslenskra ríkisborgara, sem að mörgu leyti felst í því að leiðbeina þeim svo þeir geti leyst mál sín sjálfir.
Að gefnu tilefni skal það tekið fram að sendiráðið veitir enga fjárhagsaðstoð af nokkru tagi.
Ökuskírteini
Almennt um ökuskírteini á Íslandi (síða Sýslumannsins í Kópavogi)Nafnbreyting
Nafnbreytingar: Ef umsækjandi hefur tekið upp nýtt eftirnafn eða breytt á einhvern hátt nafni sínu þarf að vera búið að ganga frá tilkynningu um slíkt til Þjóðskrár. Slíkt gerist ekki sjálfkrafa
Umsækjendum er bent á að sannreyna að nafn þeirra sé skráð í Þjóðskrá eins og óskað er að það komi fram í vegabréfi, sé ástæða til að ætla að um misræmi gæti verið að ræða.
Þjónusta ræðismanna
Ræðismenn geta ekki lengur tekið við umsóknum um vegabréf.
Ræðismenn geta eftir sem áður haft milligöngu um útgáfu neyðarvegabréfa.
Ræðismenn Íslands eru einkaaðilar sem hafa tekið að sér að gæta hagsmuna Íslands og Íslendinga í sínu umdæmi. Ræðismenn eru ólaunaðir.
Vegabréfsáritanir
Hjá utanríkisráðuneytinu er að finna upplýsingar um vegabréfsáritanir sem Íslendingar þurfa vegna ferðalaga til einstakra landa.
Um vegabréfsáritanir sem erlendir ríkisborgarar þurfa vegna ferðalaga til Íslands
Sakavottorð
Sótt er um íslensk sakavottorð hjá sýslumönnum á Íslandi.
Sækja um sakavottorðKosningar
Madríd, Spánn
Var efnið hjálplegt?