Hoppa yfir valmynd

Framlög til stjórnmálaflokka

Í lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra er kveðið á um árlega úthlutun fjár úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka. Greiðslurnar eru eru samkvæmt ákvörðun fjárlaga hverju sinni. 

Stjórnmálasamtök sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn á þing eða náð að lágmarki 2,5% atkvæða eiga rétt til framlaga. Það framlag skiptist hlutfallslega milli flokka eftir atkvæðamagni í næstliðnum kosningum. Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með framkvæmd greiðslna á þessu framlagi.

Þá geta stjórnmálasamtök sem bjóða fram í öllum kjördæmum í kosningum til Alþingis að loknum kosningum sótt um sérstakan fjárstyrk úr ríkissjóði til að mæta útlögðum kostnaði við kosningabaráttu, að hámarki 4,5 milljónir króna. Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að kosningar fóru fram. 

Umsóknum um fjárstyrk vegna kosningabaráttu skal beint til dómsmálaráðuneytisins.

Skilyrði úthlutunar á fé úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka er að viðkomandi samtök hafi áður fullnægt upplýsingaskyldu sinni til Ríkisendurskoðunar.

Ennfremur fá þingflokkar árlega úthlutað fé úr ríkissjóði til starfsemi sinnar, samkvæmt ákvörðun á fjárlögum hverju sinni. Alþingi sér um framkvæmd þessarar úthlutunar.

Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka fyrir árið 2024

  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2023
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasmtaka 2022
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2021
  • Framlög úr ríkssjóði til stjórnmálasamtaka 2020
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2019
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2018
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2017
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2016
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2015
  • Framlög ríkisins til stjórnmálasamtaka 2014
  • Framlög ríkisins til stjórnmálaflokka 2010-2013
  • Síðast uppfært: 7.10.2024
    Var efnið hjálplegt?
    Takk fyrir

    Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

    Af hverju ekki?

    Hafa samband

    Ábending / fyrirspurn
    Ruslvörn
    Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

    Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

    Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta