Hoppa yfir valmynd
30. janúar 2024 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Beint streymi: Kynning á niðurstöðum og úthlutun úr Samstarfi háskóla

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra - mynd

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynnir niðurstöður og úthlutanir úr Samstarfi háskóla 2023 í dag, þriðjudaginn 30. janúar kl. 13:00. Viðburðurinn fer fram í Sykursalnum í Grósku en einnig verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum hér fyrir neðan og á Facebook síðu ráðuneytisins.

Alls bárust 55 umsóknir fyrir tæpa 4 milljarða króna. Áslaug Arna kynnir í dag þau 35 verkefni sem styrkt eru að þessu sinni en heildarfjárhæð styrkja nemur 1.590 milljónum króna. Ætlun styrkjanna er að stuðla að auknu samstarfi háskóla með það að markmiði að auka gæði námsins og samkeppnishæfni skólanna. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á sameiningar háskóla og mun ráðherra fjalla um áætlaðar sameiningar háskóla í kynningu sinni.

Verkefnið Samstarf háskóla er þegar fjármagnað af safnlið háskólastigsins en með því að ráðstafa framlögum af safnliðnum í gegnum Samstarfið verður fjármögnun á háskólastigi gagnsærri en áður.

Nánar um Samstarf háskóla:

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum