Yfirlýsing frá norrænu ráðherranefndinni: Norrænt hagvaxtarbandalag
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, samþykkti í gær, ásamt norrænum atvinnuvegaráðherrum og öðrum samstarfsráðherrum, yfirlýsingu um að efla samkeppnishæfni Norðurlanda á heimsvísu.
Yfirlýsingin byggir á nýrri skýrslu um samkeppnishæfni Norðurlanda, Greining á samkeppnishæfni frá norrænu sjónarhorni, sem unnin var í kjölfar umræðu um hnignandi samkeppnishæfni Evrópu gagnvart Bandaríkjunum. Í skýrslunni kemur fram að norrænu ríkin séu meðal samkeppnishæfustu ríkja heims, séu leiðandi hagvaxtarsvæði í Evrópu sem getur vísað veginn að aukinni samkeppnishæfni. Norræna samfélagsmódelið hefur sýnt að unnt er að samræma samkeppnishæfni og félagsleg sjónarmið, umhverfis- og loftslagssjónarmið og jafnréttissjónarmið.
Í skýrslunni segir meðal annars að Norðurlöndin standi enn sterkt á grunni mikillar atvinnuþátttöku, sterkra stofnana, trausts, öflugs mannauðs og traustra opinberra fjármála. Forskot þeirra hefur þó minnkað á undanförnum árum. Megináskorun ríkjanna lýtur að því hvert fjármagni, sérþekkingu og innviðum er beint. Of lítið rennur til rannsókna og þróunar, stafrænna lausna, hugverka og fyrirtækja með mikla vaxtarmöguleika.
Sé horft til nýsköpunnar á Norðulöndum dregur skýrslan m.a. fram eftirfarandi:
- Sterkur grunnur: Norðurlönd búa að mikilli framleiðni, öflugum rannsóknum, nýsköpun, trausti og sterkum stofnunum.
- Hægari framleiðnivöxtur: Frá árinu 2000 hefur framleiðni aukist um 25% á Norðurlöndum, samanborið við 43% í Bandaríkjunum.
- Fótfesta á alþjóðamörkuðum: Svæðið stendur vel í að skapa þekkingu og sprotafyrirtæki, en á erfiðara með að byggja upp fyrirtæki sem vaxa á heimsvísu.
- Skortur á áhættufjármagni: Aðgengi að áhættufjármagni er einn helsti flöskuhálsinn fyrir vöxt nýsköpunarfyrirtækja á Norðurlöndum og nema um 0,11% af landsframleiðslu á Norðurlöndum, á móti 0,91% í Bandaríkjunum.
- Viðnámsþróttur verður sífellt mikilvægari: Mikilvægi alþjóðaviðskipta kallar á öruggari aðfangakeðjur og minni viðkvæmni gagnvart ytri áföllum.
Staða Íslands
Ísland deilir mörgum styrkleikum nágranna sinna en stendur jafnframt veikar að vígi á nokkrum mælikvörðum. Þannig kemur fram í greiningunni að aðeins um 160 einkaleyfisumsóknir hafi verið á hverja milljón íbúa á Íslandi árið 2024, en meðaltal Norðurlandanna hafi verið 572 umsóknir. Reglubyrði á Íslandi er meiri en á öðrum Norðurlöndum auk þess sem smæð hagkerfisins og tiltölulega háar opinberar skuldir árið 2024 auka næmni fyrir ytri áföllum. Á móti kemur forskot í orkumálum, ekki síst gnægð endurnýjanlegrar raforku, sem kallar á hraðari uppbyggingu framleiðslu- og flutningsgetu.
Tengsl við atvinnustefnu Íslands
Skýrslan styður í megindráttum við áherslur í atvinnustefnu stjórnvalda, þ.e. að helsta áskorun Íslands felist ekki í veikum grunnstoðum heldur í því að nýta styrkleikana betur til aukinnar framleiðni og verðmætasköpunar. Það verði gert með því að nýta menntun, rannsóknir, orku og fjármagn með skilvirkari hætti til að auka framleiðni og fjölbreytni í útflutningi. Aðgerðir atvinnustefnunnar á sviði nýsköpunar og fjármögnunar, einföldunar regluverks, sérhæfðs vinnuafls og orkuinnviða beinast að þessum sömu flöskuhálsum.
Norrænt hagvaxtarbandalag
Í yfirlýsingunni er lögð áhersla á mikilvægi þess að ríkin sameinist um að viðhalda forystustöðu sinni og stuðla að frekari framförum:
„Þetta á einkum við um aðgerðir til að auka sjálfstæði á mikilvægum sviðum, efla nýsköpun og laða að fjárfestingar í framtíðartækni. Það á einnig við um umskipti í átt að hreinni tækni og vinnu við að draga úr stjórnsýslulegri byrði fyrirtækja, til dæmis með aukinni sjálfvirkni og stafvæðingu í tengslum við upplýsingagjöf fyrirtækja um rekstur og sjálfbærni. Við úrlausn þessara áskorana sjáum við mikla möguleika í öflugra norrænu samstarfi og sterkari stöðu Norðurlanda í Evrópu. Þess vegna ætlum við að þróa norrænt hagvaxtarbandalag þar sem norrænu ríkin, atvinnulífið og aðrir viðeigandi aðilar vinna náið saman að áþreifanlegum verkefnum sem geta eflt samkeppnishæfni Norðurlanda, aukið samþættingu markaða og stuðlað að áfallaþolnari virðiskeðjum.“ Sjá nánar hér.
Norrænu ríkin vilja með yfirlýsingunni hrinda af stað sameiginlegum verkefnum sem miða að því að:
auka aðgengi norrænna fyrirtækja að áhættufjármagni,
efla stöðu norrænna fyrirtækja á sviði tækni framtíðarinnar,
vinna að þróun iðnaðar sem eykur viðnámsþrótt og varnargetu,
efla getu Norðurlanda til að vinna mikilvæg hráefni,
hraða grænum umskiptum og rafvæðingu,
draga úr stjórnsýslubyrði fyrirtækja með stafvæðingu og aukinni sjálfvirkni.
Samkeppnishæfni Norðurlanda
Ráðherra tók einnig þátt í ráðstefnu um samkeppnishæfni á Norðurlöndunum þar sem skýrslan og yfirlýsing ráðherrana var til umræðu. Ráðherra tók m.a. þátt í pallborðsumræðum undir yfirskriftinni „Er aukið norrænt samstarf lykillinn að samkeppnishæfni til framtíðar?“ Í máli sínu lagði ráðherra áherslu á að norræna módelið væri áfram einn af helstu styrkleikum Norðurlandanna. Jafnframt benti hann á að ekki væri hægt að ganga að því vísu að þeir yfirburðir sem við búum við í dag tryggi sömu stöðu á morgun. Verkefnið fram undan sé því að nýta þessa styrkleika til framtíðarvaxtar, með því að beina fjármagni og þekkingu að leiðum til að auka framleiðni sem auðvelda fyrirtækjum að vaxa bæði innan Norðurlandanna og á alþjóðlegum mörkuðum. Þannig megi nýta betur mannauð og orkuforskot svæðisins.