Utanríkisvarpið - hlaðvarp utanríkisþjónustunnar

Utanríkisvarpið - hlaðvarp utanríkisþjónustunnar - fjallar um íslensku utanríkisstefnuna og verkefni utanríkisþjónustunnar en hún fagnar áttatíu ára afmæli á þessu ári. Alþjóðamál, þróunarsamvinna, utanríkisviðskipti, öryggismál og norðurslóðamál eru á meðal umfjöllunarefna þáttanna og viðmælendurnir koma alls staðar að úr utanríkisþjónustunni.

Hér að neðan má finna alla þætti Utanríkisvarpsins en hlaðvarpið er einnig aðgengilegt í helstu hlaðvarpsveitum, t.d. Spotify, Google Podcasts og Apple Podcasts.