ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
16 apríl 2004
/
Dómsmálaráðuneytið

Skipun í embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar

Dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði í dag Valtý Sigurðsson héraðsdómara sem forstjóra Fangelsismálastofnunar, frá 1. maí 2004 að telja. Auk Valtýs sóttu um embættið Guðgeir Eyjólfsson sýslumaður, Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari og Sigurður Gísli Gíslason yfirlögfræðingur.

Var efnið hjálplegt?