ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
17 febrúar 2009
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Aðstoðarmaður viðskiptaráðherra

Helga Valfells hefur verið ráðin aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. Hún hóf störf í gær, 16. febrúar.

Helga er fædd árið 1964. Hún er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, BA í bókmenntum og hagfræði frá Harvard University og MBA frá London Business School. Helga hefur m.a. unnið fyrir Merrill Lynch, Útflutningsráð og fyrir eigið ráðgjafafyrirtæki.

Viðskiptaráðuneytinu, 17. febrúar 2009



Var efnið hjálplegt?