23 janúar 2025
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Síðbúinn skil ársreiknings

Hinn 23. janúar 2025, var í menningar- og viðskiptaráðuneytinu

kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:

 

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytinu barst erindi, [A], dags. 23. nóvember 2023, f.h. [B] ehf., kt. […] (hér eftir félagið), þar sem borin er fram kæra vegna ákvarðana ársreikningaskrár f.h. ríkisskattstjóra (hér eftir ársreikningaskrá), dags. 1. október 2020 og 4. október 2021, um að leggja stjórnvaldssekt á félagið þar sem ársreikningi fyrir reikningsárin 2019 og 2020 hafi ekki verið skilað.

 

Stjórnsýslukæran er byggð á 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 (hér eftir stjórnsýslulög).

 

Kröfur

Þess er krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi.

 

Málsatvik

Kæranda voru sendar rafrænar tilkynningar um að kæranda bæri að skila ársreikningi til opinberrar birtingar innan tilgreindra tímamarka en tilkynningarnar birtust á þjónustusíðu kæranda hjá ríkisskattstjóra.

 

Fésekt að fjárhæð kr. 600.000 var lögð á kæranda þar sem ársreikningi þess fyrir reikningsárið 2019 hafði ekki verið skilað. Fésekt að fjárhæð kr. 600.000 var einnig lögð á kæranda þar sem ársreikningi þess fyrir reikningsárið 2020 hafði ekki verið skilað.

 

Kærandi hefur nú skilað inn ársreikningum til ársreikningaskrár.

 

Forsendur og niðurstaða

I.

Stjórnsýslukæran barst ráðuneytinu eftir að kærufresti lauk en kærufresti lauk 4. október 2022.

 

II.

Samkvæmt 1. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga skal kæra borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um stjórnvaldsákvörðun, nema lög mæli á annan veg.

 

Samkvæmt 1. mgr. 28. gr. laganna skal vísa frá kæru sem berst að liðnum kærufresti þó er í 1. og 2. tölul. ákvæðisins að finna undantekningar þar frá. Samkvæmt 1. tölul. er má taka kæru til meðferðar eftir að kærufresti lýkur ef afsakanlegt er talið að kæran hafi ekki borist fyrr. Samkvæmt 2. tölul. má taka kæru til meðferðar eftir að kærufresti lýkur ef veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar. Í 2. mgr. sömu greinar segir að kæru skuli þó ekki sinna ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.

 

III.

Af framangreindu er ljóst að stjórnsýslukæran barst ráðuneytinu eftir að kærufresti lauk. Ráðuneytið telur því rétt eins og málið er vaxið að vísa kærunni frá með vísan til 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga enda er ákvæðið skýrt um að ráðuneytið skuli ekki taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðaref meira en ár er liðið frá því ákvörðun var tilkynnt aðila.

 

Með vísan til þess sem að framan greinir er það niðurstaða ráðuneytisins í málinu að vísa frá kæru á ákvörðunum ársreikningaskrár frá 1. október 2020 og 4. október 2021um að leggja á kæranda sekt vegna síðbúinna skila ársreiknings.

 

Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær má rekja til mikilla anna ráðuneytinu.

 

Úrskurðarorð

Kæru á ákvörðunum ársreikningaskrár ríkisskattstjóra, dags. 1. október 2020 og 4. október 2021, um að leggja á sekt vegna síðbúinna skila ársreiknings einkahlutafélagsins [B] ehf. vegna reikningársins 2019 og 2020 er vísað frá_._

Var efnið hjálplegt?