26 júní 2025
/
Utanríkisráðuneytið

Sögulegur dómstóll vegna glæpa gegn friði í Úkraínu

{image.Description}
COE
Volodómír Selenskí forseti Úkraínu og Alain Beret, aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins við undirritunina.

Sögulegt skref var stigið í gærkvöldi þegar Volodómír Selenskí, forseti Úkraínu, og Alain Berset, aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins, undirrituðu samning um stofnun sérstaks dómstóls vegna glæpa gegn friði í Úkraínu. Viðburðurinn fór fram í Evrópuráðinu í Strassborg að viðstöddum fulltrúum aðildarríkja. Þá ávarpaði Selenskí einnig  Evrópuráðsþingið, en þingmenn Íslandsdeildar Evrópuráðsins tóku þátt í þinginu þessa viku.

„Evrópuráðið hefur nú stigið enn eitt risaskrefið til að stuðla að réttlæti vegna ólögmætra árása Rússa í Úkraínu. Með stofnun dómstólsins sendum við skýr skilaboð um að við líðum ekki glæpi gegn friði í Evrópu. Nú er að tryggja varanlegan frið,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. 

Dómstóllinn, sem stofnaður er á vettvangi Evrópuráðsins, hefur það hlutverk að draga til ábyrgðar hátt setta leiðtoga sem framið hafa glæpi gegn friði í Úkraínu. Hann er ein af þremur stoðum sem eiga að tryggja að Rússar verði látnir bera ábyrgð á því tjóni sem þeir hafa valdið vegna ólöglegrar innrásar í Úkraínu. Hinar tvær eru tjónaskráin, en stjórn hennar kom saman til fundar í Reykjavík í síðustu viku, og skaðabótanefnd sem stefnt er á að koma á fót bráðlega. Grunnurinn að þessu mikilvæga starfi var lagður með yfirlýsingu á leiðtogafundi Evrópuráðsins sem haldinn var í Reykjavík í maí 2023. 

Ísland var eitt 38 ríkja sem tóku þátt í lagalegum undirbúningi vegna dómstólsins. Næsta skref í þessari vegferð er að aðildarríkjum Evrópuráðsins sem og ríkjum utan þess býðst nú að gerast aðilar að dómstólnum sem sérstöku samkomulagi. Vinnur Ísland nú að undirbúningi þessa fyrir sitt leyti.

Var efnið hjálplegt?