03 júlí 2025
/
Utanríkisráðuneytið

Jafnrétti og valdefling kvenna forsenda þróunar á viðsjárverðum tímum

{image.Description}
UN
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra flytur ávarp sitt á aðalfundi ráðstefnunnar.

Fjármögnun þróunar, skuldamál þróunarríkja og þróunarsamvinna voru í brennidepli á fjórðu ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um fjármögnun þróunar (Financing for Development 4, FfD4) sem lauk í Sevilla á Spáni í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti fundinn fyrir hönd Íslands og flutti ávarp á aðalfundi ráðstefnunnar auk þess að taka þátt í hringborðsumræðum um þróunarsamvinnu.

„Jafnréttismál og efnahagsmál eru nátengd og þannig hefur jafnrétti og valdefling kvenna og stúlkna lagt grunninn að því velsældarríki sem landið okkar er í dag, einungis fimmtíu árum eftir að Ísland var skilgreint sem þróunarríki,“ segir Þorgerður Katrín.  „Með þróunarsamvinnu er Ísland að fjárfesta í velsæld, öryggi og sjálfbærni sem getur af sér stöðugleika, allri heimsbyggðinni til heilla. Sem smáríki hefur Ísland grundvallarhagsmuni af auknum stöðugleika og jöfnuði, bættum mannréttindum og sterkara lýðræði á heimsvísu.“

Niðurskurður kemur harðast niður á fátækustu ríkjum heims

Breytt landslag í þróunarsamvinnu í ljósi niðurskurðar stórra framlagsríkja til málaflokksins á síðustu misserum hefur grafalvarleg áhrif á stöðu fátækustu ríkja heims. Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna fór því fram á miklum umbreytingartímum og veitti sömuleiðis tækifæri til að leggja stóru línurnar í fjármögnun í þágu þróunar á næstu árum. 

Niðurstöðuskjalið, „Compromiso de Sevilla“, sem samþykkt var við upphaf ráðstefnunar, eftir margra mánaða samningaviðræður, inniheldur jákvætt og markvisst orðalag um mörg lykilatriði sem Ísland leggur áherslu á í sinni þróunarsamvinnu, á borð við aukna aðkomu einkageirans og eflingu skattkerfa í þróunarríkjum.

Óásættanleg staða í jafnréttismálum

Auk þátttöku í aðaldagskrá FfD4, tók utanríkisráðherra þátt í tveimur pallborðsumræðum um jafnréttismál. Í öðrum þeirra greindi ráðherra frá reynslu Íslands af því að vera fyrsta ríki heims til að gefa út svokölluð kynjuð skuldabréf (e. Gender bonds), sem dæmi um velheppnaða nýsköpun í fjármögnun í þágu jafnréttismála, m.a. á sviði þróunarsamvinnu, sem brýn þörf sé á og hafi vakið eftirtekt.

Í seinni pallborðsumræðunum lagði utanríkisráðherra áherslu á þá óásættanlega stöðu sem uppi er í jafnréttismálum hvað varðar kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindi. Málaflokkurinn hefur enda sætt umfangsmiklum og kerfisbundnum niðurskurði stórra framlagsríkja að undanförnu í beinu samhengi við bakslagið sem á sér nú stað um allan heim, hvað varðar kvenréttindi, mannréttindi og lýðræði.

Á hliðarlínu ráðstefnunnar átti utanríkisráðherra jafnframt tvíhliða fundi með varaforseta Síerra Leóne, Mohamed Juldeh Jalloh, og varaforseta Malaví, Michael Usi, en ríkin eru tvíhliða samstarfsríki Íslands í þróunarsamvinnu. Þá fundaði utanríkisráðherra með Alberto van Klaveren, utanríkisráðherra Síle, auk þróunarmálaráðherrum Noregs, Åsmund Grøver Aukrust, og Írlands, Neale Richmond.

Aðrir tvíhliða fundir ráðherra voru með Carsten Staur, formanni þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD-DAC), og Ian McFarlane, fulltrúa Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna. Þá náðu saman utanríkisráðherra og Mohammad Mustafa, forsætisráðherra Palestínu, þar sem ráðherra áréttaði stuðning Íslands við palestínsk stjórnvöld og tveggja ríkja lausnina.

Var efnið hjálplegt?