20 nóvember 2025
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Skýrsla verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða 2025

{image.Description}
Hugi Ólafsson

Skýrsla verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða hefur verið gerð aðgengileg á vef Stjórnarráðsins. Í skýrslunni er farið yfir stöðu loftslagsaðgerða og þróun losunar til ársins 2023, ásamt síðustu framreikningum sem skilað var til Evrópusambandsins byggt á aðgerðum sem voru skráðar í framkvæmd vorið 2025. Jafnframt er fjallað um nýsamþykktar loftlagsaðgerðir fyrir tímabilið 2025-2026 og mat á áhrifum þeirra.

Umsýsla loftslagsmála á landsvísu í þeim ríkjum sem Ísland ber sig saman við hefur þroskast mikið frá því að aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda var fyrst gefin út og vekur verkefnisstjórnin í skýrslu sinni athygli á mikilvægi þess að ítarleg kostnaðar- og ábatagreining verði framkvæmd fyrir allar aðgerðir, svo forgangsraða megi aðgerðum betur. Einnig þurfi að taka tillit til mögulegra jákvæðra og neikvæðra áhrifa loftslagsaðgerða á samdrátt eða aukningu í útgjöldum hins opinbera á öðrum sviðum, s.s. vegna bættrar lýðheilsu eða hnignunar líffræðilegrar fjölbreytni og eins sé mikilvægt að móta og meta aðgerðir með tilliti til réttlátra umskipta.

Skýrsla verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða 2025

Var efnið hjálplegt?