05 febrúar 2026
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið

PMTO-miðstöð fyrir foreldra barna með hegðunarerfiðleika

{image.Description}
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri undirrita samning um PMTO-miðstöð í ráðuneytinu

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri undirrituðu í gær samning um rekstur PMTO-miðstöðvar sem ætlað er að þjóna öllu landinu. PMTO-foreldrafærni er gagnreynt meðferðarúrræði fyrir foreldra barna með samskipta- eða hegðunarerfiðleika sem hefur reynst afar vel hér á landi.

Aðferðin hefur verið notuð hér á landi í 25 ár með góðum árangri. Í dag bjóða tíu sveitarfélag víðs vegar um landið foreldrum uppá PMTO-fræðslu. Árlega fá um 700 foreldrar þjónustu, auk þess að margir skólar njóta góðs af skólaútgáfu aðferðarinnar.

Rannsóknir sýna að foreldrar sem hafa fengið PMTO-þjónustu eru mjög ánægðir, þeir styrkjast í uppeldishlutverki sínu og finna jákvæðar breytingar sem geta skipt sköpum fyrir framtíð barnsins og fjölskyldunnar.

Í samningnum felst að Reykjavíkurborg tekur að sér að reka PMTO-miðstöð sem þjónar landinu öllu. Keðjan, sem er starfseining innan Reykjavíkurborgar sem veitir stuðningsþjónustu fyrir börn, veitir miðstöðinni faglega forystu, í samstarfi við rannsóknarstofu hjá Menntavísindasviði HÍ. Unnið verður að því á samningstímanum að finna miðstöðinni stað til framtíðar.

Foreldrar sem vilja sækja um þjónustuna sækja um hana í sínu sveitarfélagi, ýmist í gegnum skóla barnsins eða hjá velferðar- eða skólaþjónustu sveitarfélagsins.

Mennta- og barnamálaráðuneytið tryggir fjármögnun miðstöðvarinnar með 53 milljóna framlagi sem dreifist yfir gildistíma samningsins. Samningurinn gildir til 31. desember 2027.

„Við viljum valdefla foreldra og grípa snemma inn í þegar börn glíma við áskoranir. PMTO gerir bæði í senn með gagnreyndri lágþröskuldaþjónustu sem við viljum auka aðgengi að,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.

„PMTO-fræðslan hjálpar foreldrum að styðja við jákvæða hegðun barna og takast á við krefjandi áskoranir. Með fræðslunni læra foreldrar að setja skýr mörk á uppbyggilegan hátt. Hún styrkir samskiptin og eykur öryggi og vellíðan barna og skilar öruggum og heilsteyptum einstaklingum til samfélagsins. Það bætir hag okkar allra,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri.

Var efnið hjálplegt?