16 júní 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið

Dómi í plastbarkamáli áfrýjað

{image.Description}
Golli

Íslenska ríkið hefur tekið ákvörðun um að áfrýja dómi héraðsdóms í svokölluðu plastbarkamáli til Landsréttar.

Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 21. maí sl. var íslenska ríkið dæmt skaðabótaskylt  vegna plastbarkaaðgerðar sem framkvæmd var á Andemariam Teklesenbet Beyene á Karolinska háskólasjúkrahúsinu árið 2011. Háttsemi læknis Landspítala, sem kom að meðferðinni og vísaði sjúklingnum í hana, var í dómnum talin ein af orsökum tjónsins og á henni bæri íslenska ríkið vinnuveitendaábyrgð.

Læknirinn; Paolo Macchiarini, sem framkvæmdi aðgerðina á Andemariam í Svíþjóð var árið 2023 sakfelldur fyrir að hafa valdið honum og tveimur öðrum einstaklingum sem undirgengust sambærilega aðgerð stórkostlegu líkamstjóni af ásetningi.

Málið vakti á sínum tíma heimsathygli og hefur verið mikið rannsakað, bæði hér á landi og í Svíþjóð. Mikilvægt er að mati ráðuneytisins að svo sérstakt og alvarlegt mál fái umfjöllun á æðra dómstigi og að niðurstaða þess og röksemdir teljist eins óumdeildar og unnt er, ekki einungis fyrir þetta mál heldur sem leiðarljós fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi og heilbrigðisstarfsmenn til framtíðar.

Var efnið hjálplegt?