16 júní 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mál nr. 177/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 177/2026

Þriðjudaginn 16. júní 2026

A gegn Reykjanesbæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 3. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 13. febrúar 2026, um að synja umsókn hennar um styrk til greiðslu umsóknar fyrir fjölskyldusameiningu.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um styrk að fjárhæð 90.000 kr. frá Reykjanesbæ til greiðslu umsóknar um fjölskyldusameiningu hjá Útlendingastofnun fyrir eiginmann sinn. Umsókn kæranda var synjað og staðfesti áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar þá niðurstöðu með ákvörðun, dags. 13. febrúar 2026.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. mars 2026. Með bréfi, dags. 5. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjanesbæjar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjanesbæjar barst 27. mars 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 30. mars 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi óskað eftir aðstoð eða styrk til að greiða fyrir fjölskyldusameiningu við manninn hennar sem að dvelji nú á B. Kærandi sé ein á Íslandi með þrjú börn en yngsta barnið þeirra sé langveikt. Í byrjun árs hafi nýjar breytingar á gjaldskrá Útlendingastofnunar tekið gildi og því kosti það kæranda 90.000 kr. að greiða fyrir umsókn um sameiningu við manninn hennar í stað 16.000 kr. Kærandi leigi húsnæði sem kosti hana 325.000 kr. á mánuði. Kærandi þiggi fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu að upphæð 204.580 kr. en ásamt því fái hún húsnæðisbætur í hverjum mánuði fyrir u.þ.b. 80.000 kr. Það sem hafi hjálpað kæranda síðastliðna mánuði hafi verið eingreiðsla sveitarfélagsins vegna barnabóta fyrir árið 2025 en nú sé sú upphæð að klárast og hún standi frammi fyrir því að leigja húsnæði sem hún hafi ekki ráð á. Kærandi komist ekki út á atvinnumarkað þar sem tvö yngri börn hennar komist ekki inn á leikskóla í Reykjanesbæ og hún hafi engan til að passa fyrir sig.

Kærandi þurfi á manninum sínum að halda og viti ekki hvað annað hún eigi að gera. Kærandi hafi ekki efni á að greiða fyrir fjölskyldusameiningu. Ástæða þess að maðurinn hennar hafi ekki komið með til Íslands hafi verið sú að þau hafi bara haft efni á þremur flugmiðum, fyrir sig og börnin en hún hafi þá verið ólétt af þeirra þriðja barni. Að sögn kæranda sé staðan mjög erfið. Hún sé líka að bíða eftir félagslegu húsnæði í Reykjanesbæ og hafi miklar áhyggjur af afkomu þeirra. Kærandi óski þess að mál hennar verði skoðað betur og að henni verði veittur styrkur til að hefja umsóknarferli um sameiningu við manninn hennar.

III.  Sjónarmið Reykjanesbæjar

Í greinargerð Reykjanesbæjar kemur fram að kærandi hafi verið nýskráð á Íslandi þann 30. janúar 2025. Hún sé af C uppruna og hafi sótt um vernd á Íslandi árið 2023. Kærandi hafi fengið dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli tímabundins mannúðarleyfis í janúar 2025, það hafi verið endurnýjað í janúar 2026 og gildi nú til janúar 2027. Kærandi sé gift manni sem sé jafnframt af C uppruna en hann búi á B. Kærandi hafi komið til landsins með tveimur eldri börnum sínum og hafi þá verið barnshafandi af því þriðja. Börnin séu […] ára gömul í dag. Ástæða þess að eiginmaðurinn hafi ekki komið með fjölskyldunni 2023 segi kærandi vera vegna þess að það hafi ekki verið til fjármunir fyrir þau öll fyrir flugfargjaldi til Íslands.

Kærandi hafi verið í samræmdri móttökuþjónustu hjá D og hafi færst yfir til Reykjanesbæjar þann 1. september 2025. Hún hafi þá fundið sér leiguhúsnæði í Reykjanesbæ með aðstoð ráðgjafa síns hjá D. Elsta barn kæranda hafi hafið grunnskólagöngu sína fljótlega eftir flutning en yngri börnin séu enn á bið eftir leikskólaplássi. Kæranda sé heimil atvinnuþátttaka en hún hafi verið utan vinnumarkaðar frá því að hún hafi komið til Íslands þar sem að börnin hennar hafi ekki fengið leikskólapláss. Kærandi hafi framfleytt sér og börnum sínum með fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum frá komu til landsins. Fyrst hafi hún fengið aðstoð frá D og svo Reykjanesbæ eftir flutninginn.

Ráðgjafi hjá velferðarsviði Reykjanesbæjar hafi veitt kæranda víðtækan stuðning, m.a. með félagslegri ráðgjöf tengda fjármálum, húsnæðismálum og uppeldismálum. Kærandi segi eiginmann sinn ekki hafa tök á því að taka þátt í fjármögnun á heimilishaldinu sökum atvinnuleysis og lítillar innkomu hans. Hún segi stöðu fjölskyldunnar verða aðra ef eiginmaður hennar gæti verið með þeim á landinu. Þá geti þau sinnt heimilinu saman og þátttaka á vinnumarkaði verði möguleg.

Innkoma kæranda dugi henni ekki til að framfleyta henni og börnum sínum hérlendis. Hún hafi því ekki tök á að greiða fyrir dvalarleyfisumsókn maka og óski eftir stuðningi sveitarfélagsins. Í byrjun árs 2026 hafi gjaldskrá Útlendingastofnunar hækkað umtalsvert. Umsóknargjaldið hafi verið 16.000 kr. fyrir áramót en sé nú 90.000 kr. Greiðslur í formi félagslegrar aðstoðar ríkis eða sveitarfélaga teljist ekki til tryggrar framfærslu skv. 3. mgr. 56. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum virðist maki ekki heldur geta lagt fram fjármagn til að greiða fyrir umsókn sína vegna langtíma atvinnuleysis og hafi ekki getað gert það frá því að kærandi hafi hafið vinnu við umsókn fyrir maka sinn árið 2025.

Reykjanesbær hafi synjað kæranda um styrk að fjárhæð 90.000 kr. til greiðslu á kostnaði við dvalarleyfisumsókn hjá Útlendingastofnun fyrir eiginmann sinn. Reykjanesbær telji umsóknina ekki falla að reglum Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð né heldur leiðbeinandi reglum fyrir sveitarfélög um móttökuþjónustu og aðstoð við félagslega þátttöku flóttafólks. Kærandi hafi áfrýjað synjun velferðarsviðs og hafi málið verið tekið fyrir á áfrýjunarfundi velferðarráðs Reykjanesbæjar þann 13. febrúar 2026 þar sem synjun velferðarsviðs hafi verið staðfest.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Reykjanesbæjar um að synja umsókn kæranda um styrk til greiðslu umsóknar um fjölskyldusameining hjá Útlendingastofnun.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr.

Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Sveitarfélög skuli tryggja að stuðningur við íbúa sem hafi barn á framfæri sé í samræmi við það sem sé barninu fyrir bestu. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.

Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á fjárhagsaðstoð til einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Samkvæmt 1. gr. reglna velferðarsviðs Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð er markmið fjárhagsaðstoðar hjá Reykjanesbæ að styðja við einstaklinga og fjölskyldur til þess að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi þeirra og stuðla að velferð íbúa sveitarfélagsins.

Í 2. gr. framangreindra reglna er kveðið á um lagagrundvöll fjárhagsaðstoðar. Þar kemur fram í 1. mgr. að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Í 3. gr. reglnanna kemur fram sama grundvallarregla og í 19. gr. laga nr. 40/1991 að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.

Í IV. kafla reglna velferðarsviðs Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð er kveðið á um heimildir vegna sérstakra aðstæðna. Að mati nefndarinnar verður ekki séð að styrkur vegna umsóknar fyrir fjölskyldusameiningu falli þar undir.

Við mat á því hvort styrkur vegna umsóknar fyrir fjölskyldusameiningu falli undir reglur Reykjanesbær um fjárhagsaðstoð verður að líta til markmiðs og gildissviðs reglnanna. Reglurnar lúta að því að tryggja einstaklingum lágmarksframfærslu, stuðla að félagslegri virkni og auðvelda þátttöku í samfélaginu. Ekki verður séð af orðalagi reglnanna eða markmiðsákvæðum að þær taki til kostnaðar vegna umsókna um fjölskyldusameiningu.

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur farið yfir gögn málsins og telur ekki ástæðu til að gera athugasemd við framangreint mat Reykjanesbæjar. Þegar af þeirri ástæðu er ákvörðun Reykjanesbæjar, um að synja umsókn kæranda um styrk til greiðslu umsóknar um fjölskyldusameiningu, staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjanesbæjar, dags. 13. febrúar 2026, um að synja umsókn A, um styrk til greiðslu umsóknar um fjölskyldusameiningu, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir