25 júní 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mál nr. 182/2026-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 182/2026

Fimmtudaginn 25. júní 2026

A gegn Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. febrúar 2026, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 17. nóvember 2025 og var umsóknin samþykkt 11. desember 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði látið hjá líða að tilkynna stofnuninni um nauðsynlegar upplýsingar sem höfðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. mars 2026. Með bréfi, dags. 6. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 22. apríl 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi vilji koma því á framfæri að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja hann á tveggja mánaða biðtíma vegna þess að hann hafi ekki komist á fund hjá Vinnumálastofnun föstudaginn 23. janúar 2026 klukkan 11:00, sökum veikinda sé með öllu móti óútskýranleg og ósanngjörn.

Kærandi hafi fengið skilaboð dagana áður þar sem hann hafi verið boðaður til Vinnumálastofnunar og hafi hann svo sannarlega ætlað að mæta á staðinn. Því miður hafi það svo gerst um kvöldið þann 22. janúar 2026 að kærandi hafi farið að finna fyrir veikindum og slappleika. Kærandi hafi hitamælt sig og verið með hátt í 40° hita. Vegna óþæginda, verkja og slappleika hafi svefninn ekki verið mikill þá nóttina en þegar það hafi farið að líða að morgni hafi hann loksins náð að festa svefn. Vekjaraklukka hafi verið stillt fyrir fundinn en vegna svefnleysis sökum veikindanna og slappleika hafi kærandi greinilega sofið fast og ekki vaknað fyrr en upp úr klukkan 12:00. Kærandi hafi þá áttað sig á því að hann hafi misst af fundinum og ætlað sér að hringja strax í Vinnumálastofnun til að láta vita af óförum sínum en þar sem stofnunin loki klukkan 12:00 á föstudögum hafi hann gripið í tómt.

Kærandi hafi síðar leitað til læknis þar sem hann hafi fengið skoðun og staðfestingu á að hann hafi sannarlega verið veikur. Viðkomandi læknir hafi skrifað upp á læknisvottorð fyrir kæranda sem hann hafi svo skilað inn til Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi útskýrt mál sitt eins og hann hafi best getað á íslensku þrátt fyrir að vera þýskumælandi. Eftir að hafa skilað inn bæði gögnum og skýringu á því hvað hafi komið fyrir hafi kærandi fengið þau viðurlög frá Vinnumálastofnun að hann skuli sæta tveggja mánaða biðtíma sem sé óásættanlegt.

Kærandi krefjist þess að mál hans verði endurskoðað með tilliti til veikinda hans þennan umrædda dag og vottorðs sem liggi fyrir. Kærandi greini frá því að hann sé mjög virkur í atvinnuleit sinni og þrái að komast í vinnu og rútínu. Hann hafi mætt samviskusamlega á allt það sem hann hafi verið boðaður á hjá Vinnumálastofnun nema í eitt skipti þegar dóttir hans hafi fótbrotið sig illa og hann þurft að vera með henni á sjúkrahúsi. Þá hafi hann líka sýnt fram á vottorð um að dóttirin hafi verið á sjúkrahúsi.

Launaleysi í tvo mánuði þegar kærandi sé með tvær dætur á framfæri og þurfi að greiða af húsnæði, íþróttum barna og öðru gangi hreinlega ekki upp. Þegar svona mikið sé í húfi hjá honum hefði hann aldrei gert slíkan hlut viljandi að einfaldlega skrópa á fund hjá Vinnumálastofnun.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 17. nóvember 2025. Með erindi, dags. 11. desember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Með tilkynningu, dags. 22. janúar 2026, hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun þann 23. janúar 2026, klukkan 11:00. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Forföll bæri að tilkynna í gegnum samskiptagátt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda á heimasíðu Vinnumálastofnunar, vmst.is. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Umrædd boðun hafi verið send á „Mínar síður“ kæranda, tilkynnt með tölvupósti og með smáskilaboðum í farsímanúmer kæranda, X. Skilaboðin hafi verið móttekin í símtæki kæranda þann 22. janúar 2026, klukkan 10:51. Kærandi hafi hvorki mætti né boðað forföll.

Þann 26. janúar 2026 hafi kærandi hringt í stofnunina og sagst ekki hafa mætt á fund þann 23. janúar 2026 sökum veikinda. Hann hafi ætlað að láta vita af forföllum sínum en hann hafi sofið yfir sig. Jafnframt hafi hann mætt í eigin persónu þann 26. janúar 2026 og sagst vera miður sín á að hafa ekki mætt né boðað forföll. Þann 27. janúar 2026 hafi borist læknisvottorð frá kæranda þar sem fram komi að vegna veikinda hafi kærandi ekki komist til viðtals hjá Vinnumálastofnun þann 23. janúar 2026.

Vinnumálastofnun hafi þann 10. febrúar 2026 óskað eftir skriflegum skýringum á fjarveru kæranda. Kærandi hafi samdægurs skilað inn skriflegum skýringum sem hafi verið eftirfarandi:

„Góðan daginn, ég sem sagt fékk hita á fimmtudeginum og var meira og minna alla nóttina vakandi að drepast úr beinverkjum og 39,4° hita. Þegar ég sofnaði svaf ég meira og minna allan föstudaginn og þegar ég vaknaði sá ég fyrst að ég átti að mæta. Þá var búið að loka hjá ykkur [þegar ég ætlaði] að tilkynna að ég væri með hita. Svo er ég því miður bara með ódýran Kína síma svo ég fæ stundum tilkynningu og stundum ekki. Ég á ekki meira efni til að geta keypt mér almennilegan síma hér á Íslandi. Og hvernig hefði ég átt að vita hvenær ég verð veikur með hita og beinverki? Til að tilkynna ykkur að ég kemst ekki, þið vitið að það er ekki hægt. Held að allir sem eru að vinna hjá ykkur hafi fengið hita og allt þeta, sérstaklega beinverki, kalt og heitt. Manni líður alveg ömurlega. Svo er ég búinn að koma með læknisvottorð þannig að ég er ekki alveg að skilja af hverju þið eru að gera þetta núna. Mér finnst þetta mjög leiðinlegt. Ég hef aldrei klikkað á að koma í viðtal, nema einu sinn i þegar dóttir mín ristar brotnar og ég var á spítala að bíða eftir að hún vaknaði eftir aðgerðina. Ég sendi líka vottorð þá og minnir mig röntgen mynd. Kv.“

Mál kæranda hafi verið tekið fyrir þann 23. febrúar 2026, og kæranda tilkynnt að í ljósi þess að hann hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun tafarlaust um veikindi sín væri það niðurstaða stofnunarinnar að bótaréttur kæranda skyldi felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 3. mars 2026. Kærandi ítreki fyrri skýringar sínar um að hann hafi verið líkamlega ófær um að boða forföll sökum veikinda sinna. Kærandi hafi skráð sig af atvinnuleysisskrá frá og með 16. mars 2026 þar sem hann hafi hafið störf á nýjum vinnustað.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hann hafi ekki sinnt mætingu á boðað vinnumarkaðsúrræði og tilkynningarskyldu sinni gagnvart stofnuninni.

Samkvæmt a. lið 13. gr. og [h. lið] 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit. Í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund Vinnumálastofnunar. Þá liggi jafnframt fyrir að kærandi hafi ekki boðað forföll. Í þeim skýringum sem kærandi hafi lagt fram beri hann við að hafa verið veikur sem stutt sé af læknisvottorði.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. febrúar 2026, varði viðurlög sem kæranda hafi verið gert að sæta á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laganna. Vinnumálastofnun hafi ekki borist tilkynningar um forföll þrátt fyrir að í boðun sem kæranda hafi verið send hafi sérstaklega verið tekið fram að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll skyldu tilkynnast í gegnum „Mínar síður“ atvinnuleitanda.

Kærandi hafi hvorki tilkynnt um fjarveru né sent upplýsingar um veikindi sín fyrr en eftir að upplýsingafundurinn hafi farið fram. Hann hafi ekki náð fullum svefni sökum veikinda sem hann hafi verið að glíma við. Af þeim sökum hafi hann ekki getað boðað forföll sín.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að þær skýringar sem kærandi hafi lagt fram geti ekki talist gildar. Í því samhengi vísist til þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum sínum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sem kærandi hafi hvorki tilkynnt um forföll né um veikindi sín fyrr en eftir að úrræði hafi verið afstaðið hafi hann brugðist skyldum sínum samkvæmt 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 22. janúar 2026 boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun sem var haldinn þann 23. janúar 2026. Kæranda var greint frá því að um skyldumæting væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á tiltekið netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Að endingu var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti ekki á boðaðan upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun þann 23. janúar 2026. Þegar kæranda var inntur eftir skýringum á fjarveru sinni kvaðst hann ekki hafa getað mætt vegna veikinda. Fyrir liggur að kærandi tilkynnti þó ekki Vinnumálastofnun um veikindin fyrr en eftir að fundurinn fór fram. Fyrir úrskurðarnefnd hefur kærandi vísað til þess að hann hafi sofið yfir sig og þegar hann vaknaði hafi hann reynt að hringja í Vinnumálastofnun til að tilkynna veikindi en skrifstofan hafi lokað fyrr um daginn.

Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki strax um upphaf veikinda sinna. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. febrúar 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir