Mál nr. 191/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 191/2026
Fimmtudaginn 25. júní 2026
A gegn Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 6. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. febrúar 2026, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 17. september 2024 og var umsóknin samþykkt 4. október 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 6. mars 2026. Með bréfi, dags. 9. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 9. apríl 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi tali hvorki ensku né íslensku. Kærandi hafi verið veikur þegar fundurinn hafi verið hjá Vinnumálastofnun og sé með læknisvottorð sem staðfesti það. Kærandi óski eftir að ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. febrúar 2026, verði felld úr gildi og að hann fái fullar atvinnuleysisbætur.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 17. september 2024. Með erindi, dags. 4. október 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að bótaréttur væri 49%. Kærandi hafi sætt tveggja mánaða viðurlögum vegna ótilkynntra tekna með ákvörðun, dags. 3. desember 2024.
Með tilkynningu, dags. 22. janúar 2026, hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund hjá þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík þann 23. janúar 2026, klukkan 09:00. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll þyrfti að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Umrædd boðun hafi verið send á „Mínar síður“ kæranda með tilkynningu í tölvupósti og með smáskilaboðum í farsímanúmer kæranda, X. Móttaka sé skráð í símtæki kæranda, klukkan 08:17, þann 22. janúar 2026. Engar tilkynningar um forföll hafi borist og kærandi ekki mætt á fundinn.
Vinnumálastofnun hafi þann 10. febrúar 2026 óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda á upplýsingafundi 23. janúar 2026. Kærandi hafi ekki brugðist við beiðni stofnunarinnar um skýringar en hafi skilað skjali til stofnunarinnar þann 12. febrúar 2026 með yfirskriftinni „Læknisvottorð“ sem hafi átt að votta að „viðkomandi þyrfti fjárhagslegan stuðning.“ Kærandi hafi mætt á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar þann sama dag og hafi sagst vera með berkla.
Þann 23. febrúar 2026 hafi kærandi verið upplýstur um að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar í þrjá mánuði á grundvelli 58. gr. og 61. gr. laganna þar sem hann hefði ekki sinnt boðun í vinnumarkaðsúrræði.
Þann 24. febrúar 2026 sé skráð í samskiptasögu kæranda að tölvupósti kæranda, dags. 18. febrúar 2026, hafi verið svarað og skýringar hans hafi verið mótteknar. Enn fremur hafi stofnuninni borist læknisvottorð útgefið þann sama dag, eða 24. febrúar 2026 sem hafi átt að votta að kærandi hafi verið óvinnufær með öllu vegna ótilgreinds sjúkdóms á tímabilinu 23. til 27. janúar 2026. Í vottorðinu greini að tilkynnt hafi verið um veikindin sama dag og útgáfa vottorðsins hafi átt sér stað, eða um mánuði eftir að veikindi hafi verið yfirstaðin.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 6. mars 2026. Skýringar kæranda í kæru séu efnislega þær sömu og hafi legið fyrir eftir vinnslu hinnar kærðu ákvörðunar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hann hafi hvorki sinnt mætingu á boðað vinnumarkaðsúrræði né tilkynningarskyldu sinni gagnvart stofnuninni.
Samkvæmt a. lið 13. gr. og 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að vera í virkri atvinnuleit og í því felist m.a. að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Ákvæðið sé svo hljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund Vinnumálastofnunar sem hafi átt að fara fram á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 23. janúar 2026. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda um boðun á umræddan upplýsingafund. Kærandi hafi ekki boðað forföll vegna veikinda. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið inntur eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 10. febrúar 2026. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Skýringar kæranda á fjarveru á boðað vinnumarkaðsúrræði lúti að því að hann hafi verið að glíma við veikindi þegar það hafi farið fram. Kærandi hafi sent læknisvottorð til stofnunarinnar því til staðfestingar.
Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreind skýring kæranda ekki talist gild í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun bendi á að boð um að mæta í viðtal hafi verið sent bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda með meira en 24 tímum fyrir áætlaðan upplýsingafund. Kærandi hafi ekki tilkynnt um forföll vegna veikinda og hann hafi ekki fært fram gögn sem geti haft áhrif á niðurstöðu í þessu máli. Í fyrsta lagi hafi stofnuninni borist læknisvottorð er staðfesti að kærandi þyrfti á fjárhagsaðstoð að halda. Í öðru lagi hafi kærandi fært fram læknisvottorð um óvinnufærni hans á þeim tíma sem fundurinn hafi farið fram. Læknisvottorðið byggi á skoðun læknis sem hafi farið fram mánuði eftir að atvik hafi átt sér stað. Kærandi hafi hvorki fært fram gögn sem sýni fram á að hann hafi átt lögmætar ástæður fyrir fjarveru eða hvers vegna hann hafi ekki tilkynnt um forföll áður en fundurinn hafi farið fram.
Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga.
Í ljós þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr., beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis. Þar sem um ítrekunaráhrif sé að ræða sé biðtími kæranda þrír mánuðir frá ákvörðunardegi skv. 1. mgr. 61. gr.
Í 1. mgr. [59. gr.] laga um atvinnuleysistryggingar segi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Kærandi hafi áður sætt viðurlögum vegna ótilkynntra tekna í desember 2024 og því komi til beitingar 1. mgr. 61. gr. laganna sem sé svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum sínum, sé það mat Vinnumálastofnunar að sú skýring sem kærandi hafi fært fram eftir að ákvörðun hafi verið tekin verði ekki talin gild í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og með því að hafa ekki uppfyllt skilyrði um mætingu né tilkynna um forföll hafi hann brugðist skyldum sínum samkvæmt 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sem kærandi hafi sætt viðurlögum í desember 2024 komi til beitingar 1. mgr. 61. gr. laganna en þar segi að sá sem hafi sætt niðurfellingu bótaréttar áður, á sama bótatímabili, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum. Kæranda beri því að sæta þriggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta þriggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 22. janúar 2026 boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnunar sem fara átti fram þann 23. janúar 2026. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á „Mínum síðum“ kæranda. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti á fundinn né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi misst af fundinum vegna veikinda. Af fyrirliggjandi gögnum málsins verður þó ekki séð að kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindi sín eins og honum var skylt að gera, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt ákvæðinu ber þeim sem eru tryggðir samkvæmt lögunum að tilkynna stofnuninni án ástæðulausrar tafar um allar þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni þeirra eða aðstæðum að öðru leyti, þar á meðal um tilfallandi veikindi.
Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 3. desember 2024 á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. febrúar 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir