Mál nr. 193/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 193/2026
Fimmtudaginn 25. júní 2026
A gegn Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 9. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. mars 2026, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar og að innheimta ofgreiddar bætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. júlí 2025 og var umsóknin samþykkt 7. ágúst 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. mars 2026, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar þar sem hún stundaði nám samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Kæranda var einnig tilkynnt að henni bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að fjárhæð 377.640 kr., að meðtöldu 15% álagi.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. mars 2026. Með bréfi, dags. 10. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 8. apríl 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. apríl 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi krefjist þess að endurkrafa verði endurreiknuð og lækkuð. Einnig að 15% álag verði fellt niður þar sem kærandi hafi tilkynnt nám sitt og ekki staðfest atvinnuleit áður en febrúargreiðslan hafi komið inn. Kærandi vilji einnig að febrúarhluti verði felldur niður því hún hafi verið búin að afskrá sig. Hún mótmæli sérstaklega því sem hafi verið greitt eftir tilkynningu og 15% álaginu. Kærandi sé búin að biðja um sundurliðun og útskýringu á því hvers vegna hún þurfi að borga svona háa upphæð.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysistryggingar þann 1. júlí 2025. Í umsókn kæranda hafi komið fram að hún væri ekki skráð í nám, hefði ekki verið skráð í nám á fyrri námsönn og væri ekki skráð í nám á næstu námsönn. Samhliða umsókn um atvinnuleysisbætur hafi kærandi skilað inn afriti af skólavottorði þar sem fram hafi komið að kærandi væri skráð í námsleyfi frá B á almanaksárinu 2025. Með erindi, dags. 7. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt með 79% bótarétt.
Við reglubundið eftirlit hafi komið í ljós að kærandi væri skráð í 30 ECTS-eininga nám á vorönn 2026 við B. Með erindi, dags. 6. febrúar 2026, hafi verið óskað eftir því að kærandi myndi skila skólavottorðum þar sem umfang náms hennar væri tilgreint ásamt skýringum á því hvers vegna hún hefði ekki upplýst Vinnumálastofnun um nám sitt. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að veita stofnuninni umbeðin gögn. Skýringar hafi borist frá kæranda þann 6. febrúar 2026 þar sem kærandi hafi sagst vera komin með 20% vinnu og væri í námi sem hún hafi gleymt að tilkynna. Jafnframt hafi kærandi afskráð sig af atvinnuleysisbótum frá og með 9. febrúar 2026 og hafi kærandi tilgreint að ástæða afskráningar væri sú að hún væri farin í nám. Ekkert skólavottorð hafi borist frá kæranda.
Með erindi, dags. 4. mars 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hún hafi stundað nám samhliða greiðslu atvinnuleysistrygginga hefði hún fengið ofgreiddar atvinnuleysistryggingar á tímabilinu 5. janúar til 8. febrúar 2026, samtals 377.640 kr., að meðtöldu 15% álagi sem yrði innheimt samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá hafi kæranda jafnframt verið tilkynnt að greiðslur til hennar væru stöðvaðar á grundvelli 52. gr. laganna.
Þann 6. og 9. mars 2026 hafi skriflegar skýringar borist frá kæranda þar sem hún hafi farið fram á endurútreikning á skuld og að hún bæri ekki 15% álag. Með erindi, dags. [13. mars] 2026 hafi mál kæranda verið tekið fyrir að nýju að teknu tilliti til nýrra gagna. Það hafi verið mat Vinnumálastofnunar að staðfesta fyrri ákvörðun, dags. 4. mars 2026.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 9. mars 2026. Í kæru til nefndarinnar fari kærandi fram á að skuld verði lækkuð, að 15% álag verði fellt niður og að febrúarhluti kröfunnar verði felldur niður því að hún hafi á þeim tíma verið búin að afskrá sig af atvinnuleysisskrá.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Í c. lið 3. gr. laganna sé að finna eftirfarandi skilgreiningu á námi:
„Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“
Í 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé nánar kveðið á um nám. Í 1. mgr. 52. gr. segi orðrétt:
„Hver sá sem stundar nám, sbr. c. lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.“
Ljóst sé af ákvæði 1. mgr. 52. gr. að það sé ekki tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar að tryggja námsmönnum framfærslu á meðan þeir stundi nám. Í athugasemdum með 52. gr. í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé tiltekið að það sé meginregla að námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum hvort sem um sé að ræða fjarnám, dag- eða kvöldskóla.
Í 2. til 5. mgr. 52. gr. laganna séu undanþágur frá 1. mgr. sömu greinar. Ákvæði 2. mgr. fjalli um að heimilt sé að stunda að hámarki 12 eininga nám á námsönn samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta og í 3. mgr. sé til að dreifa heimild til Vinnumálastofnunar að greiða atvinnuleysisbætur til atvinnuleitanda til að stunda að hámarki 20 eininga nám sem sé ólánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Í 4. mgr. sé til að dreifa heimild til að stunda ólánshæft nám, sem skipulagt sé samhliða vinnu, án skerðingar á atvinnuleysisbótum svo lengi sem námið hindri ekki virka atvinnuleit né þátttöku á vinnumarkaði. Samkvæmt úthlutunarreglum Menntasjóðs námsmanna teljist nám kæranda við B lánshæft til framfærslu og falli því ekki að undanþágunni sem fram komi í 4. mgr. 52. gr. laganna.
Þá sé í 5. mgr. ákvæðisins tekið fram að atvinnuleitanda sé ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem sé yfirstandandi við starfslok hans eða þegar hann missi starf sitt að hluta, sbr. 17. gr. án þess að það komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga. Sú undanþága eigi ekki heldur við í máli kæranda enda liggi fyrir að hún hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga í júlí 2025 og umrædd önn hafi ekki hafist fyrr en í byrjun árs 2026.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi verið skráð í 30 eininga nám á vorönn 2026 við B á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga. Í kæru fari kærandi fram á að 15% álag á skuld hennar verði fellt niður og að hún þurfi ekki að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún hafi fengið greiddar í febrúar 2026. Í því samhengi bendi hún á að hún hafi afskráð sig af atvinnuleysisbótum í febrúar og tilkynnt um námið áður en hún hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur í febrúar 2026.
Í ljósi þess að kærandi stundi 30 eininga nám við B á vorönn 2026 sé ljóst að nám hennar falli ekki að neinni undanþágu sem sé til að dreifa í 2. til 4. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með vísan til 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé því ljóst að kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 5. janúar 2026 til og með 8. febrúar 2026. Í 39. gr. laganna sé fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Í 2. mgr. 39. gr. segi orðrétt:
„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“
Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Í athugasemdum með 39. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir greiðslu atvinnuleysistrygginga á tímabilinu 5. janúar til 8. febrúar 2026, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals 377.640 kr. að meðtöldu álagi, sbr. 2. mgr. 39. gr. laganna.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. mars 2026, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar bætur með vísan til þess að hún hafi stundað nám samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur.
Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám en þar segir:
„Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.
Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.
Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingarhlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.
Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.
Þrátt fyrir 1.–4. mgr. skal hinum tryggða ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem er yfirstandandi við starfslok hans eða þegar hann missir starf sitt að hluta, sbr. 17. gr., án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga.“
Í c. lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum en þar segir:
„Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“
Í athugasemdum við ákvæði 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.
Þegar sótt er um atvinnuleysisbætur er umsækjandi spurður hvort hann sé skráður í nám á umsóknardegi, hvort hann hafi verið skráður í nám á síðustu námsönn eða sé skráður í nám á næstu námsönn. Þá er upplýst að almennt sé ekki heimilt að vera í námi samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Í staðfestingu á móttöku umsóknarinnar var kærandi upplýst um ýmis réttindi og skyldur og jafnframt greint frá því að ítarlegri upplýsingar hvað það varðar væri að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var skráð í samtals 30 ECTS-einingar við B á vorönn 2026 en upplýsti Vinnumálastofnun ekki um námið.
Með vísan til framangreindra upplýsinga sem kæranda voru veittar telur úrskurðarnefndin ljóst að hún hefði mátt vita að henni bæri að upplýsa Vinnumálastofnun um nám sitt. Þar sem Vinnumálastofnun hafði ekki vitneskju um nám kæranda fékk hún greiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 5. janúar til 8. febrúar 2026 án þess að eiga rétt til þeirra, sbr. framangreinda meginreglu um að námsmenn séu ekki tryggðir samkvæmt lögum nr. 54/2006.
Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um nám sitt er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki sé tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. mars 2026, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir