Mál nr. 195/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 195/2026
Fimmtudaginn 25. júní 2026
A gegn Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 10. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. janúar 2026, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun á árunum 2024 og 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. janúar 2026, var kæranda tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. júní 2025 til 31. janúar 2026 þar sem hún hefði verið með opna launagreiðendaskrá. Skuld kæranda næmi samtals 1.926.364 kr., án álags. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. maí 2026, var kæranda tilkynnt að fjárhæð ofgreiðslunnar hefði verið ranglega tilkynnt í ákvörðun frá 27. janúar 2026. Skuld kæranda næmi samtals 1.653.232 kr. vegna tímabilsins 1. júní til 30. nóvember 2025.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 10. mars 2026. Með bréfi, dags. 18. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. maí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 6. maí 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi fari fram á að ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. janúar 2026, verði felld úr gildi. Með ákvörðuninni hafi kærandi verið krafin um endurkröfu upp á 1.926.365 kr. vegna tímabilsins júní til lok nóvember þar sem hún hafi verið á launagreiðendaskrá. Samkvæmt launagreiðendaskrá hafi kærandi fengið samtals 350.000 kr. Ákvörðun þessa máls taki hins vegar til mánaðanna á undan sem séu júní til september en kærandi hafi sannarlega ekki fengið greidd nein laun það tímabil samkvæmt launagreiðendaskrá. Ekki komi fram í hinni kærðu ákvörðun hvernig og að hvaða marki þessar greiðslur fari yfir frítekjumark.
Kærandi hafi átt í samskiptum við starfsmann Vinnumálastofnunar eftir að hafa farið á fund með þeim áður en hún hafi farið í að stofna sinn eigin rekstur þar sem hún hafi verið orðin þreytt á að fá ekki atvinnuviðtöl. Eftir mikla umhugsun við að reyna að finna lausn á þessu atvinnuleysi hjá sér hafi kærandi ákveðið að fara út í að reyna að búa til sína eigin starfsemi til að byggja upp feril og hætta á skrá hjá Vinnumálastofnun. Kærandi hafi ráðfært sig við Vinnumálastofnun og sagt starfsmanni hvað hún væri með í huga. Þar sem kærandi hafi ekki átt neinn pening til að borga út og stofna fyrirtæki hafi hún verið að kanna hvort hún gæti verið á atvinnuleysisbótum á meðan hún væri að byggja upp sitt eigið fyrirtæki.
Kærandi hafi verið óviss með hver staðan væri en hafi farið að kanna málið. Kærandi hafi fengið póst eftir að starfsmaðurinn hafi ráðfært sig við lögfræðing hjá Greiðslustofu. Í póstinum hafi starfsmaðurinn skrifað „hér virðist vera töluverð upplýsingaóreiða hjá okkur“ og svo hafi komið fram í tölvupóstinum að kærandi mætti vera eigandi fyrirtækis með slf. kennitölu. Kærandi viti að þarna liggi hennar misskilningur. Kærandi hafi þarna séð grænt ljós um að stofna virðisaukaskattsnúmer og opna launagreiðendaskrá sem hún hafi, að hennar mati, gert óvart þar sem hún hafi hreinlega ekki vitað betur.
Kærandi telji hins vegar að hin kærða ákvörðun sé ekki rétt og óski eftir endurskoðun málsins. Það að einstaklingur sem ætli sér að reyna að gera allt til að búa til atvinnu fái slíka ákvörðun í andlitið og að öllu sé kippt undan sé ljótt mál. Það ætti allavegana að kynna sér málið betur hjá einstaklingnum og gefa fyrst viðvörun eða sekt. Kærandi hafi selt frá sér þau tæki og tól sem hún hafi fjárfest í. Þá hafi hún lokað virðisaukaskattsskrá og launagreiðendaskrá strax.
Kærandi hafi sýnt fram á að henni þyki þetta miður, enda hafi hún verið mjög samviskusöm og lokað strax fyrir allt þar sem um virkilega mikið sjokk hafi verið að ræða. Þetta hafi haft töluverð áhrif á líðan kæranda þar sem hún hafi ekki ætlað sér að lifa lúxuslífi með fyrirtæki samhliða því að þiggja bætur.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. [9. febrúar] 2024. Með erindi, dags. 12. mars 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt með 93% bótarétti.
Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar í janúar 2026 hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með opna launagreiðendaskrá samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta frá 1. júní 2025. Með bréfi, dags. 6. janúar 2026, hafi verið óskað eftir staðfestu afriti af eyðublaðinu RSK 5.04, tilkynningu um afskráningu af launagreiðendaskrá. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila á gögnum og/eða skýringum. Kærandi hafi tilkynnt um 10% hlutastarf með vinnu á eigin kennitölu frá 1. júní 2025.
Erindi hafi borist frá kæranda þann 19. janúar 2026 þar sem fram komi að hún hafi talið sig hafa tilkynnt um allar tekjur sem hún hafi verið með samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Umbeðið eyðublað RSK 5.04 hafi ekki borist frá kæranda. Með bréfi, dags. 27. janúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar, auk þess að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 1. júní 2025 til 31. janúar 2026 þar sem launagreiðendaskrá hennar hafi verið opin allt það tímabil samkvæmt gögnum frá Skattinum. Samtals hafi ofgreiðslan numið 1.926.364 kr., án álags.
Kærandi hafi óskað eftir lokun á launagreiðendaskrá með beiðni, dags. 12. janúar 2026, og hafi Skatturinn afgreitt þá beiðni 4. febrúar 2026. Í afgreiðslu Skattsins komi fram að kærandi hafi verið afskráð af launagreiðendaskrá frá og með 30. nóvember 2025.
Með bréfi, dags. 12. febrúar 2026, hafi mál kæranda verið tekið fyrir að nýju að teknu tilliti til nýrra gagna frá kæranda. Kannað hafi verið hvort og þá hvenær launagreiðendaskrá kæranda hafi verið lokað. Samkvæmt gögnum sem Vinnumálastofnun hafi undir höndum hafi launagreiðendaskrá kæranda verið opin á tímabilinu 1. júní til 31. desember 2025. Kæranda hafi verið tilkynnt að hún hefði fengið greiddar atvinnuleysisbætur frá og með 1. janúar 2026, auk þess sem henni hafi verið tilkynnt að skuld hennar stæði óhögguð þ.e. samtals 1.926.364 kr.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 10. mars 2026. Í kæru bendi kærandi á að ráðgjafar Vinnumálastofnunar hafi gefið henni rangar upplýsingar er varði fyrirkomulag greiðslna atvinnuleysisbóta til þeirra sem starfi í hlutastarfi á eigin kennitölu.
Við vinnslu á greinargerð þessari hafi komið í ljós að kærandi hafi verið ranglega skráð af atvinnuleysisskrá frá 1. júní til 31. desember 2025. Hið rétta sé að kærandi hafi verið með opna launagreiðendaskrá frá 1. júní til 30. nóvember 2025. Af þeim sökum hafi skuld kæranda ranglega verið tilkynnt í ákvörðun, dags. 27. janúar 2026, samtals 1.926.364 kr. Hið rétta sé að kærandi hafi sannarlega fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 1. júní til 30. nóvember 2025, samtals 1.653.232 kr.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta á tímabilinu 1. júní til 31. desember 2025. Þar sem kærandi hafi verið með opna launagreiðendaskrá hjá Skattinum samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta.
Atvinnuleitendur sem hefji rekstur á eigin kennitölu teljist vera sjálfstætt starfandi einstaklingar í skilningi 3. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Greinin sé svohljóðandi:
„Hver sá sem starfar við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í því umfangi að honum sjálfum er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt reglum ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald, skil á staðgreiðslu af reiknuðu endurgjaldi og tryggingargjaldi vegna starfs síns.“
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi opnað launagreiðendaskrá á eigin kennitölu í júní 2025. Tilkynning um opnun hafi verið skráð af Skattinum frá 1. júní 2025. Kærandi hafi tilkynnt um 10% hlutastarf samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta frá og með 1. júní 2025. Samkvæmt tilkynningu kæranda hafi hún starfað á eigin kennitölu í umræddu hlutastarfi.
Samkvæmt f. og g. lið 1. mgr. 18. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli sjálfstætt starfandi einstaklingur hafa stöðvað rekstur sbr. 20. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 20. gr. laganna sé nánar tilgreint hvenær sjálfstætt starfandi einstaklingur hafi stöðvað rekstur. Í 20. gr. laganna segi:
„Sjálfstætt starfandi einstaklingur, sbr. b-lið 3. gr., telst hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt til launagreiðendaskrár ríkisskattstjóra að hann hafi stöðvað rekstur og að öll starfsemi hafi verið stöðvuð. Þegar metið er hvort starfsemi hafi verið stöðvuð skal líta til hreyfinga í virðisaukaskattskrá ríkisskattstjóra. Heimilt er að taka tillit til hreyfinga í virðisaukaskattskrá vegna eignasölu enda hafi sjálfstætt starfandi einstaklingur lagt fram yfirlýsingu þess efnis að hann hyggist hætta rekstri.“
Þá sé 21. gr. laganna svohljóðandi:
„Sjálfstætt starfandi einstaklingur, sbr. b-lið 3. gr., skal leggja fram staðfestingu á því að hann hafi stöðvað rekstur skv. 20. gr. Staðfesting skal fela í sér:
yfirlýsingu um að öll starfsemi hafi verið stöðvuð og ástæður þess, og
afrit af tilkynningu til launagreiðendaskrár ríkisskattstjóra um að rekstur hafi verið stöðvaður, vottorð frá skattyfirvöldum um að skráningarnúmer hans hafi verið tekið af skrá eða önnur viðeigandi gögn frá opinberum aðilum er staðfesta kunna stöðvun rekstrar.“
Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Í athugasemdum með 39. gr. í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna tímabilsins 1. júní til 31. desember 2025.
Í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. segi að fella skuli niður álagið ef hinn tryggði færi rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka sem hafi leitt til skuldamyndunar. Kærandi hafi sannarlega tilkynnt um umrætt starf sitt til Vinnumálastofnunar. Skuld kæranda hafi því verið innheimt án 15% álags. Heildarskuld kæranda hafi verið 1.926.364 kr.
Við vinnslu greinargerðarinnar hafi komið í ljós að skuld kæranda hafi verið ranglega tilgreind í ákvörðun, dags. 12. febrúar 2026. Samkvæmt gögnum frá Skattinum sé ljóst að kærandi hafi verið með opna launagreiðendaskrá frá 1. júní til 30. nóvember 2025 en ekki frá 1. júní til 31. desember 2025, sbr. staðfestingu frá Skattinum sem varði lokun á launagreiðendaskrá. Kærandi hafi því fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 1.653.232 kr. en ekki 1.926.364 kr. Stofnunin hafi leiðrétt skuld kæranda í samræmi við framangreint. Að teknu tilliti til skuldajöfnunar samkvæmt 3. mgr. 39. gr. og leiðréttingar stofnunarinnar standi skuld kæranda nú í 1.270.334 kr.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga á tímabilinu 1. júní til 30. nóvember 2025. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur með álagi, samtals 1.653.232 kr.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. janúar 2026, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur með vísan til þess að kærandi hafi verið með opna launagreiðendaskrá.
Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit, sbr. 14. gr. Sama skilyrði á við um sjálfstætt starfandi einstaklinga, sbr. 1. mgr. 18. gr. laganna. Í 1. mgr. 14. gr. segir að sá teljist vera í virkri atvinnuleit sem uppfylli eftirtalin skilyrði:
a. er fær til flestra almennra starfa,
b. hefur heilsu til að taka starfi eða taka þátt í virkum vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. þó 5. mgr.,
c. hefur frumkvæði að starfsleit og er reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir samkvæmt lögum og kjarasamningum, sbr. 1. gr. laga nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, og uppfyllir skilyrði annarra laga,
d. hefur vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara,
e. er reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi,
f. er reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða vaktavinnu,
g. á ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann telst vera í virkri atvinnuleit nema ákvæði 17. eða 22. gr. eigi við,
h. hefur vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem standa honum til boða, og
i. er reiðubúinn að gefa Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar til að auka líkur hans á að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum.
Eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum sjálfstætt starfandi einstaklinga er að hafa stöðvað rekstur og leggja fram staðfestingu um slíka stöðvun, sbr. f. og g. liði 1. mgr. 18. gr. laga nr. 54/2006. Í 20. gr. laganna kemur fram að sjálfstætt starfandi einstaklingur telst hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt til launagreiðendaskrár Ríkisskattstjóra að hann hafi stöðvað rekstur og að öll starfsemi hafi verið stöðvuð. Enn fremur telst sjálfstætt starfandi einstaklingur hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt skráningarnúmer sitt af skrá, sýnt fram á að atvinnutæki hafi verið seld eða afskráð, reksturinn framseldur öðrum eða hann hafi verið tekinn til gjaldþrotaskipta. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sjálfstætt starfandi einstaklingur leggja fram staðfestingu á því að hann hafi stöðvað rekstur og skal staðfestingin fela í sér yfirlýsingu um að öll starfsemi hafi verið stöðvuð og ástæður þess og afrit af tilkynningu til launagreiðendaskrár Ríkisskattstjóra um að rekstur hafi verið stöðvaður, vottorð frá skattyfirvöldum um að skráningarnúmer hans hafi verið tekið af skrá eða önnur viðeigandi gögn frá opinberum aðilum er staðfesta kunna stöðvun rekstrar.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með opna launagreiðendaskrá samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta frá 1. júní til 30. nóvember 2025. Kærandi uppfyllti því ekki skilyrði þess að vera tryggð samkvæmt lögum nr. 54/2006 á því tímabili og átti því ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Það að kærandi hafi ekki fengið nein laun greidd hluta tímabilsins hefur ekki áhrif þar sem lög nr. 54/2006 eru skýr með það að óheimilt er að hafa opna launagreiðendaskrá og enga undantekningu á því skilyrði að finna í lögunum.
Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:
„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.
Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“
Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og er því ekki ágreiningur um það atriði.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta fyrir tímabilið 1. júní til 30. nóvember 2025, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur til A, fyrir tímabilið 1. júní til 30. nóvember 2025, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir