25 júní 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mál nr. 221/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 221/2026

Fimmtudaginn 25. júní 2026

A gegn Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dagsett sama dag, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 26. desember 2025 og var umsóknin samþykkt 29. janúar 2026. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. mars 2026, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 19. mars 2026. Með bréfi, dags. 23. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. maí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 6. maí 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi fengið smáskilaboð um kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem hafi átt að eiga sér stað þann 20. febrúar 2026. Kærandi hafi verið með flensu daginn sem hann hafi átt að mæta og hafi vaknað haldandi að það væri 19. febrúar 2026. Þegar kærandi hafi áttað sig á hvaða dagur væri, hálftíma eftir að fundurinn hafi byrjað, hafi hann hringt strax til að láta vita af mistökum sínum. Kæranda hafi verið sagt að senda inn læknisvottorð.

Kærandi hafi farið á læknavaktina, látið skoða sig og fengið nótu frá lækni sem staðfesti að hann væri veikur þann dag. Kærandi hafi síðan sent vottorðið bæði á island.is og á tölvupóst Greiðslustofu ásamt útskýringum á mannlegum mistökum hans. Tveimur vikum síðar hafi kærandi fengið beiðni um að senda gögn sem myndu rökstyðja fjarveru hans, eitthvað sem kærandi taldi sig vera búinn að gera. Kærandi hafi aftur sent læknisvottorðið og hringt ráðvilltur í Vinnumálastofnun. Þjónustufulltrúinn hafi staðfest að stofnunin hefði fengið nótuna þegar hann hafi sent hana fyrst og að þetta hafi líklega óvart verið sent.

Nú hafi kærandi verið að fá skilaboð frá Vinnumálastofnun um að rökstuðningi hans hafi verið hafnað, að nótan sem hann hafi sent hafi ekki verið nóg og að hann fái ekki greiðslu í tvo mánuði. Nú séu tíu dagar í mánaðamót og kærandi þurfi að borga af húsnæðisláni og þurfi að geta lifað á einhverju. Kærandi hafi ekki fengið annað boð um kynningarfund en hann sé tilbúinn að mæta hvenær sem er í staðinn fyrir að vera refsað fyrir að vera veikur. Kærandi hafi misst vinnuna sína í lok desember. Að sögn kæranda sé hann búinn að vera samvinnufús og fylgja fyrirmælum Vinnumálastofnunarinnar eins vel og hann mögulega geti. Hann sé á fullu að sækja um vinnu og staðfesti atvinnuleit í hverjum mánuði. Kærandi greini frá því að hann vilji ekki vera á atvinnuleysisbótum, hann eigi að eiga 30 mánuði inni og að þetta sé léleg framkoma.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 26. desember 2025. Með erindi, dags. 29. janúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að bótaréttur væri 100%.

Þann 10. febrúar 2026 hafi kærandi verið boðaður á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem hafi verið haldinn 11. febrúar 2026. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda þann 10. febrúar 2026, klukkan 08:20. Kærandi hafi sent inn skilaboð í gegnum „Mínar síður“ þann sama dag og hann hafi fengið boðunina, svohljóðandi:

„Góðan daginn, Ég er hjá lækni á svipuðum tíma og veit ekki hvað það mun taka langan tíma, er hægt að færa fundinn?“

Kærandi hafi fengið það svar að hann myndi fá annað boð innan skamms.

Þann 18. febrúar 2026 hafi kærandi aftur verið boðaður á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem hafi verið haldinn þann 20. febrúar 2026, klukkan 11:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að um síðustu boðun væri að ræða og að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 18. febrúar 2026, klukkan 14:17. Kærandi hafi hvorki mætt á fundinn né boðað forföll en það sé skráð símtal frá kæranda þann 20. febrúar 2026, klukkan 12:00, hvar hann hafi sagst vera veikur og hafi verið að vakna og ætli sér að útvega sér vottorð þann sama dag. Sama dag, klukkan 12:05, hafi eftirfarandi orðsending borist frá kæranda:

„Góðan dag, ég biðst innilega afsökunar á að hafa misst af fundinum í dag en ég er búinn að vera heima með flensu og heilaþokan gerði það að verkum að ég fattaði ekki að þá væri föstudagur fyrr en það var of seint. Ég lét vita á undan mér síðast en þá átti ég bókaðan tíma hjá fótalækni og mér var sagt að það væri í góðu lagi en nú var mér sagt í símanum að þetta gæti valdið einhverjum vandamálum fyrir mig án útskýringar.“

Þá hafi kærandi sent tölvupóst þann 20. febrúar 2026 auk læknisvottorðs, dagsettu sama dag, svohljóðandi:

„Gott kvöld

Ég missti óvart af kynningarfundi hjá ykkur í morgun, ég er langt frá því að vera „no call, no show“ týpan og er alveg miður mín. Ég er búinn að vera veikur og af sökum þokuheila vaknaði ég í morgun haldandi að það væri fimmtudagur og fattaði ekki að það væri fundur í dag fyrr en það var of seint. Ég hringdi strax í ykkur þegar ég áttaði mig á þessum klaufaskap og mér var sagt af fulltrúa að senda ykkur nótu frá lækni sem ég set í viðhengi.

Ég biðst velvirðingar á þessu og vil bara að þið vitið að þetta er mjög úr karakter hjá mér og vona að ég fái annað tækifæri.“

Kærandi hafi fengið svar þann 23. febrúar 2026 um að málið yrði skoðað að innsendu læknisvottorði og honum yrði birt ákvörðun stofnunarinnar að því loknu.

Með erindi, dags. 5. mars 2026, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á fjarveru hans á boðaðan kynningarfund. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Frekari skýringar hafi ekki borist frá kæranda en sama dag hafi kærandi aftur sent inn sama læknisvottorð og hefði áður verið móttekið.

Með erindi, dags. 19. mars 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar í tvo mánuði sökum þess að hann hefði ekki mætt á boðaðan kynningarfund. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 19. mars 2026. Kæra til nefndarinnar sé efnislega samhljóma þeim skýringum sem þegar hefðu borist Vinnumálastofnun. Í kæru segist kærandi ekki hafa fengið önnur boð um kynningarfundi.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h.] lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaða kynningarfundi sem haldnir hafi verið af hálfu Vinnumálastofnunar dagana 11. og 20. febrúar 2026. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tilgreindar hafi verið tímasetningar og staðsetning fundanna. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Í 1. mgr. 58. gr. segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á boðaðan kynningarfund 20. febrúar 2026 en þær lúti að því að hann hafi ekki verið áttaður á stað og stund vegna flensueinkenna. Kærandi hafi af þeim sökum ekki getað mætt á boðaða vinnumarkaðsúrræði. Þá hafi kærandi einnig skilað læknisvottorði, dagsettu sama dag og fundurinn hafi verið haldinn, sem hafi einvörðungu innihaldið eftirfarandi staðhæfingu: „Veikur þann 20.02.2026.“

Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að kærandi hafi verið boðaður tæpum tveimur sólarhringum fyrir umræddan fund 20. febrúar 2026. Þá sé jafnframt bent á að boð á úrræði hafi verið sent bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum á skráð símanúmer kæranda. Boðun til umrædds fundar hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess sem tekið hafi verið sérstaklega fram að tilkynningar um forföll skyldu berast án ástæðulausrar tafar. Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga.

Í ljósi alls þess sem hér hafi verið rakið og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að með því að mæta ekki til vinnumarkaðsúrræðis né afboða komu sína hafi kærandi brugðist skyldum sínum og beri því að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar með frumvarpi til laga nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 18. febrúar 2026 boðaður á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem haldinn var þann 20. febrúar 2026. Kærandi hvorki mætti á fundinn né boðaði forföll. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og ef upp kæmu forföll bæri að tilkynna þau á „Mínum síðum“. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ekki yrði hægt að fá nýja boðun en ástæður forfalla yrðu sendar Greiðslustofu til skoðunar þar sem tekin yrði afstaða til mögulegra viðurlaga í formi tímabundinnar eða varanlegrar greiðslustöðvunar. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi ekki áttað sig á því hvaða dagur væri sökum flensueinkenna.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. mars 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir