23 september 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 412/2026

Hinn 23. september 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 412/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU25120056

Kæra [...] og ólögráða frænda hans

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 10. desember 2025 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir kærandi), og ólögráða frændi hans [...], fd. [...] (hér eftir A), ríkisborgarar Venesúela og Sýrlands, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 25. nóvember 2025, um að synja þeim um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Sýrlandi og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd fyrir sig og A 5. júní 2025. Vegna aldurs A hafi barnavernd Suðurnesja verið kölluð til og hafi m.a. túlkað samtalið. Kærandi og A séu systkinabörn en móðir kæranda sé systir föður A. Framvísaði kærandi skjali til staðfestingar þess að hann mætti ferðast með A. Kvaðst kærandi sækja um alþjóðlega vernd vegna hryðjuverks og slæms ástands í Sýrlandi. Kærandi hafi farið frá Venesúela til Sýrlands árið 2022 vegna ástandsins þar í landi og vegna þess að hann hafi staðið í skuld í Venesúela. Kærandi kvaðst eiga eiginkonu í Sýrlandi. Þá kvaðst hann vera með [...].

A kvaðst sækja um vernd vegna ástandsins í Sýrlandi. Hann kvaðst ekki hafa farið til Venesúela vegna þess að fjölskylda hans hafi farið þaðan og til Sýrlands eftir að hús þeirra hafi verið brennt árið 2023 eða 2024. Kvaðst A ekki vita hverjir hafi staðið að baki brunanum. Foreldrar A hafi ekki getað ferðast með honum til Íslands vegna þess að þau hafi ekki verið með venesúelskt vegabréf. A kvaðst eiga frænda á Íslandi. Þá kvaðst A vera heilsuhraustur.

Kærandi og A kváðu foreldra A hafa fjármagnað ferðalag þeirra til Íslands.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 17. júlí 2025 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá ástæðum flótta síns. Kvaðst hann vera fæddur og uppalinn í [...] í Sýrlandi en hafi flúið til Venesúela 14. maí 1997 þegar hann hafi verið kvaddur í herþjónustu. Kærandi hafi búið í leiguhúsnæði í [...] fylki í Venesúela til ársins 2021 þegar hann hafi flúið til Sýrlands. Kærandi eigi eiginkonu og systur í Sýrlandi og bróður og ættingja í Venesúela. Kærandi kvaðst ekki vera aðili að stjórnmálaflokki eða virkur í þágu tiltekins málsstaðar. Kærandi sé [...] sem sé minnihlutahópur í Venesúela og Sýrlandi. Kærandi kvaðst hafa fengið [...] árið 2019 í Venesúela sem hann hafi fengið viðeigandi meðferð við. Hann hafi einnig farið í [...] og [...] í Venesúela. Þá kvaðst kærandi glíma við [...] en hann væri að öðru leyti heilsuhraustur.

Aðspurður kvaðst kærandi hafa flúið frá Venesúela til Sýrlands árið 2021 vegna þess að hann hafi ítrekað lent í vopnuðu ráni í Venesúela. Árið 2004 hafi kærandi verið að vinna með frænda sínum í búð þegar skotið hafi verið á frænda hans. Þá hafi verið skotið á kæranda árið 2012 þegar hann hafi verið í heimsókn hjá systur sinni. Árið 2020 hafi verið gert rán í verslun sem kærandi hafi starfað í. Einnig kvaðst kærandi standa í skuld við fólk í Venesúela. Aðspurður hafi kærandi þó ekki talið að vopnuðu ránin hafi beinst að honum persónulega. Greindi kærandi þá frá því að hann hafi ekki leitað aðstoðar lögreglu eða yfirvalda vegna framangreinda atvika í Venesúela.

Í Sýrlandi hafi kærandi búið ásamt eiginkonu sinni í þorpinu [...] sem sé á landamærum Deraa og [...]. Kærandi hafi starfað á bóndabæ og ræktað grænmeti. Kærandi kvaðst hafa flúið Sýrland vegna vopnaðra átaka á milli Bedúína og Drúsa í [...] á heimasvæði sínu. Vopnaðir glæpahópar hafi daglega skotið á kæranda og eiginkonu hans og hafi þau þurft að flýja heimili sitt til fjölskyldu eiginkonu hans í [...] eða til systur hans í [...]. Einn daginn þegar nágranni kæranda hafi verið skotinn til bana hafi kærandi ákveðið að flýja Sýrland. Eiginkona kæranda hafi flúið til [...] en hann telji hana ekki örugga þar. Þá greindi kærandi frá því að föður A hafi verið rænt fimm dögum áður.

Kærandi kvaðst óttast glæpahópa í Venesúela og að verða beittur ofbeldi eða settur í fangelsi. Þá óttist hann hryðjuverka- og vopnaða hópa í Sýrlandi. Kærandi telji að hann yrði rændur eða tekinn af lífi yrði honum gert að snúa aftur til annars hvors landsins. Kvað kærandi yfirvöld ekki geta veitt sér aðstoð eða vernd í Venesúela eða í Sýrlandi. Þá telji hann sig ekki geta búið annars staðar í heimaríkjum sínum og verið öruggur.

Aðspurður kvaðst kærandi vera samþykkur því að fara með forsjá A hér á landi til 18 ára aldurs hans. Kærandi kvað fjölskyldur þeirra nánar, þau hafi búið saman í Venesúela og núna í Sýrlandi. A sé frændi hans en faðir A sé bróðursonur móður kæranda.

A mætti til viðtals í Barnahúsi 2. og 15. júlí 2025 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá ástæðum flótta síns. Kvaðst A vera fæddur í [...] í [...] fylki í Venesúela hvar hann hafi búið með móður sinni og föður ásamt tveimur systkinum sínum. Fjölskylda A hafi flutt til [...] í [...] fylki vegna þess að það hafi ekki lengur verið starf í [...] eða arabískt samfélag. Móðir A hafi ekki verið í vinnu en faðir hans hafi leigt húsnæði og selt kjöt. A hafi verið í skóla í Venesúela en kvað aðstæður þar hafa verið slæmar og að hann hafi ekki fengið alvöru menntun þar. Hann hafi þurft að gefa einhverjum í skólanum mat til að fá góða einkunn. Þá hafi hann verið krafinn um að greiða tiltekna upphæð til að fá að fara aftur í grunnskóla í Venesúela eftir að hafa verið í heimsókn í Sýrlandi í eitt ár. Hafi foreldrar hans ekki haft tök á því. A kvað frændur sína hafa verið einu vini sína í Venesúela, hann hafi farið út með þeim eftir skóla en ekki á kvöldin vegna þess að það hafi ekki verið öruggt vegna glæpahópa. Kvað A það hafa verið hættulegt fyrir þau að búa í Venesúela. Eftir að þjófar hafi kveikt í húsi þeirra hafi fjölskylda A ákveðið að flytja til Sýrlands. Fjölskylda A hafi búið hjá föðurafa og föðurömmu hans í bænum [...] í Sýrlandi. A hafi ekki gengið í skóla og foreldrar hans hafi ekki verið í vinnu í Sýrlandi. Foreldrum A hafi þótt aðstæður í Sýrlandi slæmar með nýjum forseta og þau hafi óttast um öryggi og líf A þar í landi. Foreldrar A hafi því ákveðið að hann skyldi flýja Sýrland. Faðir A hafi fjármagnað ferðalag A til Íslands með lánsfé sem A ætli að aðstoða við að endurgreiða. Kvaðst A hafa ferðast til Íslands með föðurbróður sínum.

A kvaðst ekki hafa heyrt í fjölskyldu sinni eftir að gerð hafi verið skotárás í hverfi fjölskyldu hans í Sýrlandi og faðir hans hafi verið tekinn. Fjölskylda hans hafi leitað skjóls hjá frænda þeirra en hann hafi ekki náð sambandi við þau. A kvað fjölskyldu sína tilheyra minnihlutahópi í Sýrlandi vegna stöðu þeirra sem [...] og að þau hafi verið í hættu vegna þess. Þá kvað hann fjölskyldu sína ekki geta flutt á öruggara svæði innan Sýrlands vegna þess að þau hafi ekki efni á því. A kvaðst vera við góða heilsu og hafi almennt ekki þurft að leita til læknis. A kvaðst þó [...] og telji sig þurfa að fara til tannlæknis. Þá kvaðst hann fá [...] ef hann situr lengi.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kæranda og A synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda og A var brottvísað frá landinu og kæranda ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan frests sem honum hafi verið veittur yrði endurkomubann hans fellt niður. Kærandi og A kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 10. desember 2025. Með kæru bárust greinargerðir kæranda og A ásamt fylgiskjölum. Viðbótargögn bárust kærunefnd 30. desember 2025.

3 Greinargerðir til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kæranda og A og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.

Í greinargerðum til kærunefndar er vísað til greinargerðar kæranda og A til Útlendingastofnunar og fylgiskjala hvað málavexti varðar. Málsatvik í greinargerðum séu að mestu í samræmi við frásagnir kæranda og A í viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun og Barnahúsi. Þá er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt.

Í greinargerðum er þess aðallega krafist að kæranda og A verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Er byggt á því að þeir hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi a-liðar 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi og A hafi orðið fyrir líkamlegu og andlegu ofbeldi. Kærandi og A séu [...] sem sé minnihlutahópur í Sýrlandi og tilheyra þeir því þjóðfélags- og trúarhópi, sbr. b-, c-, og d-liður 3. mgr. sömu greinar. [...] hafi verið ofsóttir þar í landi á undanförnum árum og ekkert haldbært liggi fyrir um að ofsóknunum muni linna í fyrirsjáanlegri framtíð þrátt fyrir að vopnahlé eigi að vera í gildi á svæðinu. Föður A hafi verið rænt af heimili sínu á svæðinu og ekki sé vitað um afdrif hans. Stjórnvöldum þar í landi hafi ekki tekist að stilla til friðar og koma í veg fyrir ofbeldið og óljóst sé hvernig ástandið muni þróast. Þá er byggt á því að á heimaslóðum kæranda og A í Sýrlandi standi yfir vopnuð átök þar sem ofbeldi og ofsóknum sé með kerfisbundnum hætti beint gegn Drúsum, bæði í skóla og annars staðar.

Þá kemur fram í greinargerð að óraunhæft og ósanngjarnt sé að ætlast til þess að kærandi og A geti flust til annars svæðis innan Sýrlands, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Er byggt á því að fjölskylda kæranda og A sé öll búsett á umræddu svæði í Sýrlandi og ekkert bendi til þess að þau séu að fara flytja þaðan. Þá sé fjárhagur og félagsleg staða kæranda og fjölskyldu A bágborin. Kærandi sé skuldugur og eignalaus og upp á stórfjölskyldu sína kominn. Þá hafi móðir A neitað sér um læknisþjónustu m.a. vegna fjárhagserfiðleika.

Þá væri það í ósamræmi við lið 106. og 107 í VII. kafla í handbók Flóttamannastofnunar að synja kæranda og A um alþjóðlega vernd á Íslandi á þeirri forsendu að þeir geti verið í Venesúela. Kærandi hafi lagt á flótta frá Venesúela árið 2021 vegna glæpaaldar og vegna þess að hann hafi ekki geta staðið í skilum við skuldunauta sína. Kærandi hafi flúið Venesúela til Sýrlands árið 2021 til að tryggja öryggið sitt. Félagsleg staða kæranda í Venesúela sé bágborin, enda sé hann ættaður frá Sýrlandi og eiginkona hans sé þar stödd í foreldrahúsum.

Þá er byggt á því að þó svo að A sé með venesúelskt vegabréf þá sé hann barn á flótta sem hafi engan að í Venesúela. Þá hafi honum verið gert að greiða gjald að fjárhæð 300 dollara til að fá að halda áfram grunnskólanámi í Venesúela. Félagsleg staða A í Venesúela sé bágborin, enda eigi hann enga fjölskyldu þar í landi. Þá sé það ástand ríkjandi í Venesúela að glæpir séu tíðir og glæpahópar notfæri sér fólk í viðkvæmri stöðu. Jafnframt er byggt á því að A sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, en hann hafi komið hingað til lands sem fylgdarlaust barn, sbr. 12. tölul. sömu greinar. Sé því stjórnvöldum skylt að taka tillit til hans sérþarfa sem einstaklings í slíkri stöðu. Er vísað í því sambandi til 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. nr. 19/2013, 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga, 1. mgr. 3. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003. A sé 15 ára gamall drengur sem sé að flýja stríðsátök og ofsóknir í Sýrlandi. Öryggi A sé best borgið hér á landi enda séu foreldrar hans staddir í Sýrlandi þar sem stríðsástand ríkir og faðir hans hafi verið tekinn af hálfu árásarmanna og ekki sé vitað um afdrif hans.

Verði ekki fallist á aðalkröfu er þess krafist til vara að kæranda og A verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Er byggt á því að kærandi og A eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka verði þeir sendir aftur til [...] í Sýrlandi. Þá eigi kærandi og A einnig á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð vegna ástandsins í [...] í Sýrlandi. Vísað sé til þess að [...] verði fyrir ofsóknum á svæðinu og að undanförnu hafi fleiri hundruð [...] þar verið teknir af lífi. Almennir borgarar, þ.m.t. konur og börn séu tekin af lífi til jafns við þá sem taki til varna. Þá sé einnig byggt á almennu ástandi í Venesúela sem sé alvarlegt og yfirvöld hafi hvorki vilja né getu til að tryggja öryggi kæranda og A.

Til þrautavara er þess krafist að kæranda og A verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er á því byggt í greinargerð að kærandi og A hafi ríka þörf fyrir vernd vegna félagslegra aðstæðna og almennra erfiðra aðstæðna í Venesúela og Sýrlandi, sbr. 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Byggir kærandi á ástæðuríkum ótta við ofsóknir, bæði af hálfu hermanna í stjórnarher Sýrlands og af hálfu annarra hópa, t.a.m. Bedúína. Þá sé A barn sem sé á flótta í sérstaklega viðkvæmri stöðu og hvíli skylda á íslenskum stjórnvöldum að miða ákvörðun sína við það sem barninu sé fyrir bestu. Sé sérstaklega bent á þá staðreynd að móðir A sé í Sýrlandi og föður hans hafi verið rænt. A sé best borgið hér á landi enda geti stjórnvöld gefið honum þann stuðning og öryggi sem hann þurfi á að halda.

Byggja kærandi og A einnig á almennu ástandi í Venesúela og að félagsleg staða þeirra þar í landi sé bágborin. Loks er á því byggt að kærandi og A geti ekki treyst á stjórnvöld í Sýrlandi til að veita þeim skjól og öryggi frá umræddum ofsóknum og ofbeldi. Þrátt fyrir yfirlýsingar þarlendra stjórnvalda um að [...] séu viðurkenndur og verndaður minnihlutahópur hafi ofbeldi og ofsóknir gegn þeim aukist til muna þar í landi af hendi stjórnarhers og annarra hópa.

Í greinargerð eru gerðar athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir. Gerðar eru athugasemdir við það að aðeins sé fjallað um aðstæður kæranda og A í Venesúela þó svo að ekki hafi verið dregið í efa að þeir hafi réttmæta ástæðu til að flýja Sýrland, sbr. 2. mgr. A-liðar 1. gr. flóttamannasamnings.

Þá sé mati Útlendingastofnunar á því að umboð um forsjárskyldu A hafi veitt kæranda heimild til að annast A í Venesúela mótmælt og vísað til þess að tilgangur og markmið umboðsins hafi verið að veita kæranda heimild til að annast A á Íslandi og aðstoða hann við að aðlagast íslensku samfélagi. Um sé að ræða tímabundna ráðstöfun en ekki tryggingu um að kærandi ætli sér að annast A í Venesúela né að kærandi ætli sér yfir höfuð að fara þangað. Það séu ekki hagsmunir A að túlka umrætt umboð með þeim hætti að það veiti kæranda heimild til að annast hann í því landi þaðan sem hann hafi flúið. Auk þess séu möguleikar A í Venesúela enn verri nú en þegar hann hafi flúið þaðan, enda hafi foreldrar hans og aðrir nákomnir flust þaðan til Sýrlands. Yrði A því sendur út í óvissu yrði honum gert að snúa aftur til Venesúela.

Einnig er því mótmælt að foreldrar A geti sameinast honum í Venesúela. Fjárhagur foreldrar A sé hindrun fyrir því að þau geti sameinast A í Venesúela. Þá sé það einnig hindrun að faðir A sé í haldi árásarmanna. Leiðir heildstætt mat á aðstæðum A því til þess að honum sé best borgið á Íslandi.

Þá sé endursending kæranda og A til Venesúela brot gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Vísað er í því sambandi til þess að bandaríska flugmálastofnunin (FAA) hafi nýlega gefið út sérstaka öryggisviðvörun vegna aukinnar hættu í venesúelskri lofthelgi. Þá sé dæmi um að alþjóðleg flugfélög hafi stöðvað áætlunarflugferðir sínar til og frá Venesúela. Mikil spenna ríki milli venesúelskra stjórnvalda og tilgreindra flugfélaga vegna þessa og hafi þarlend stjórnvöld m.a. afturkallað rekstrarleyfi þeirra því félögin hafi neitað að halda áfram áætlunarflugferðum til landsins.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

Vegna athugasemda í greinargerð A vísar kærunefnd til þess að með vísan til 1. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga sé ljóst að það mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum og reglugerð.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

  1. ríkið,

  2. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

  3. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd frænda síns sem annast hann samkvæmt umboði og haldast úrskurðir þeirra því í hendur.

Í greinargerðum kæranda og A er á því byggt að tilgangur umrædds umboðs hafi verið að veita kæranda heimild til að annast A á Íslandi og aðstoða hann við að aðlagast íslensku samfélagi. Um sé að ræða tímabundna ráðstöfun en ekki tryggingu um að kærandi ætli sér að annast A í Venesúela. Sé umboðið því ekki heimild til kæranda til að annast A í Venesúela.

Samkvæmt 12. tölul. 3. gr. laga um útlendinga telst barn fylgdarlaust komi það fylgdarlaust inn á yfirráðasvæði ríkis, svo lengi sem það hefur ekki í reynd verið tekið í umsjá foreldra eða fullorðins einstaklings sem ber ábyrgð á því samkvæmt lögræðislögum. Þetta á einnig við ef barnið er skilið eftir án fylgdar eftir að það kemur á yfirráðasvæði ríkis. Kærunefnd horfir til þess að kæranda var samkvæmt umboði, dags. 19. maí 2025, veitt leyfi til að ferðast með A frá Sýrlandi og samkvæmt umboði, dags. 17. júní 2025, veitt heimild til að annast A hér á landi og koma fram fyrir hönd foreldra hans, m.a. hvað varðar umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi. Með vísan til framangreinds ákvæðis, sbr. og 51. gr. lögræðislaga, er því ljóst að hann er ekki fylgdarlaus í skilningi laga um útlendinga.

Þrátt fyrir að umrætt umboð tilgreini heimild kæranda á Íslandi sérstaklega liggur fyrir að A er venesúelskur ríkisborgari og eðli málsins samkvæmt voru því líkur á því að A yrði sendur þangað yrði niðurstaða íslenskra stjórnvalda að synja umsókn hans. Af gögnum málsins verður ráðið að foreldrar A séu einnig venesúelskir ríkisborgarar og hafi heimild til að dvelja í Venesúela. Bendir því ekkert til annars en að fjölskyldan geti sameinast í Venesúela kjósi þau svo. Þá eru félagsleg úrræði til staðar í Venesúela bæði barnaverndaryfirvöld og alþjóðlegar stofnanir og hjálparsamtök sem unnt er að leita til teljist þörf á því.

5.3 Auðkenni

Umsækjanda um alþjóðlega vernd er skylt að veita atbeina sinn til að upplýsa hver hann er, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi lagt fram venesúelskt vegabréf og útrunnið sýrlenskt vegabréf, ásamt sýrlensku nafnskírteini. A hafi lagt fram venesúelskt vegabréf, auk afrits af sýrlensku nafnskírteini sínu og foreldra sinna. Lagði Útlendingastofnun það til grundvallar að kærandi og A væru venesúelskir og sýrlenskir ríkisborgarar. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi og A séu með ríkisfang bæði í Venesúela og Sýrlandi.

Kærandi hefur borið fyrir sig að hann og A hafi ekki tengsl við Venesúela lengur. Þeir hafi flúið til Íslands frá Sýrlandi þar sem kærandi eigi eiginkonu og A foreldra og systur. Þá telja þeir að Útlendingastofnun hafi ekki tekið fullnægjandi afstöðu til þess hvernig aðstæður þeirra yrðu í Venesúela.

Í málum þar sem umsækjendur um alþjóðlega vernd hafa ríkisfang í fleiri en einu landi er horft til þess hvort umsækjandi geti fært sér í nyt vernd í einhverju af þeim ríkjum þar sem hann hefur ríkisfang. Ef svo er þá er ekki þörf á því að skoða aðstæður í öðrum ríkjum þar sem hann hefur ríkisfang. Í máli þessu hefur Útlendingastofnun skoðað aðstæður kæranda og A í Venesúela og komist að þeirri niðurstöðu þeir geti snúið aftur þangað. Hafa aðstæður kæranda og A í Sýrlandi því ekki komið til skoðunar. Samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga á flóttamaður, skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, samkvæmt umsókn rétt til að fá hér alþjóðlega vernd. Sjónarmið um lítil tengsl kæranda og A við Venesúela hafa ekki áhrif á það hvort miðað verði við aðstæður þeirra í Venesúela eða Sýrlandi.

Þar sem kærandi og A eru ríkisborgarar Venesúela og eins og aðstæðum er háttað í máli þessu telur kærunefnd aðeins þörf á að fjalla um aðstæður kæranda og A í Venesúela sbr. 2. mgr. A.-liðar 1. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
  • ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Country Security Report – Venezuela (OCAS, U.S. Department of State, 12. mars 2025);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • Freedom in the World 2025 – Venezuela (Freedom House, 26. febrúar 2025);
  • Freedom in the World 2026 – Venezuela (Freedom House, 19. mars 2026);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election (Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for human rights (OHCHR), 28. ágúst 2025);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 12. janúar 2026);
  • UNHCR Venezuela Operational update, May 2025 (The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Factsheet April 2025 (The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezuela (Britannica, síðast uppfært 14. júní 2026);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, júlí 2026);
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 29. maí 2026);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024, uppfærð í apríl 2025);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders

(UNCHR, 22. mars 2023);

  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
  • World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025) og
  • World Report 2026 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2026.

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi styrkt völd sín á kostnað löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019 í kjölfar umdeildra forsetakosninga, sem sætt hafi gagnrýni fyrir að vera hvorki óháðar né sanngjarnar. Þrátt fyrir að hluti stjórnarandstöðunnar hafi lýst Juan Guaido yfir sem bráðabirgðaforseta hafi Nicolás Maduro haldið raunverulegum yfirráðum ríkisins með stuðningi öryggissveita. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hafi samningaviðræður milli ríkisstjórnar Maduro og stjórnarandstöðunnar leitt til þess að í desember 2022 hafi bráðabirgðastjórn Juan Guaido verið lögð af. Ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan hafi samþykkt á fundi í Barbados 17. október 2023 að halda forsetakosningar í Venesúela seinni hluta ársins 2024 undir alþjóðlegu eftirliti. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og samningurinn undirritaður með milligöngu Noregs. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan tilnefnt Maríu Corinu Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum, en 30. október s.á. hafi Hæstiréttur Venesúela ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan tilnefnt Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Samkvæmt heimildum fóru forsetakosningar fram í Venesúela 28. júlí 2024 og í kjölfarið hafi landkjörstjórn lýst því yfir að Maduro hafi hlotið endurkjör, á skjön við fullyrðingar stjórnarandstöðunnar. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, aðrar þjóðir og alþjóðlegir aðilar hafi lýst yfir áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspeglaði ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi verið kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar, sem hafi enn ekki verið gert. Í skýrslu Freedom House frá 2026 kemur fram að stjórnarandstaðan hafi sniðgengið þingkosningar í maí 2025 í mótmælaskyni og, líkt og í forsetakosningunum 2024, hafi landskjörstjórnin ekki opinberað niðurstöður kosninganna, hvorki kjörsókn né kosningaúrslit.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld hafi áfram takmarkað borgaraleg réttindi og sótt pólitíska andstæðinga sína til saka án réttlátrar málsmeðferðar. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur fram að handtökur og varðhöld yfirvalda á pólitískum andstæðingum, aðgerðir gegn mótmælum, lokun fjölmiðla og pyndingar og ómannúðleg meðferð ætlaðra og raunverulegra stjórnarandstæðinga grafi undan tjáningarfrelsi og rétti til mótmæla. Í skýrslum Freedom House frá 2024, 2025 og 2026 er það mat staðfest að stjórnvöld hafi lokað nánast öllum rásum fyrir pólitíska mótstöðu og viðhaldið kerfisbundnum takmörkunum á borgaralegum og pólitískum réttindum, þar á meðal með handahófskenndum handtökum og pólitískri misnotkun réttarkerfisins. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína og öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað beitt mótmælendur ofbeldi, þar á meðal barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og væru dómsmálayfirvöld samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með útgáfu afturvirkra handtökuheimilda og fyrirskipana um gæsluvarðhöld án fullnægjandi sönnunargagna.

Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. í skýrslum Human Rights Watch og Freedom House frá 2026, kemur fram að í kjölfar forsetakosninganna árið 2024 hafi stjórnvöld, með aðstoð vopnaðra hópa, haldið áfram að fremja umfangsmikil mannréttindabrot. Í skýrslu Freedom House kemur ennfremur fram að þrátt fyrir að venesúelsk stjórnvöld hafi látið um tvö hundruð pólitíska fanga lausa frá júlí fram í desember 2025 bendi heimildir til þess að rúmlega níu hundruð pólitískir fangar hafi enn verið í haldi í árslok 2025.

Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 kemur fram að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið alvarleg og kerfisbundin mannréttindabrot frá árinu 2014, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæp gegn mannkyni (e. Crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í því skyni að þagga niður andstöðu við ríkisstjórn Maduro og hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) komust að sambærilegri niðurstöðu í skýrslum sínum frá 2020 og 2021, þar sem m.a. er greint frá þúsundum tilvika aftaka án dóms og laga, handahófskenndum handtökum, þvinguðum mannshvörfum og ýmsum aðferðum pyndinga s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 hafi saksóknara Alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) í mars 2022 verið heimilt að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í Venesúela. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að dómstóllinn hafi tilkynnt um áframhaldandi rannsókn meintra glæpa gegn mannkyni í Venesúela og opnun skrifstofu þarlendis í júní 2023. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2026 var rannsóknin enn yfirstandandi árið 2025.

Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað og ásakanir um óréttmætar kosningar aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Aðgerðir hafi m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um slíkt, sem og að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Öryggissveitir hafi verið sendar á heimili einstaklinga og margir handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi kosningaviðburðum stjórnarandstöðunnar, þar á meðal fyrirtækjaeigenda, starfsmanna og fjölskyldna þeirra, m.a. fyrir að útvega ýmis aðföng vegna slíkra viðburða. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, án ákæru og látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmæla hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi jafnframt rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga, aðgerðasinna, blaðamanna og mannréttindasinna, þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka í aðdraganda kosninganna og í kjölfar þeirra. Handtökur og meðferð fanga hafi hvorki farið fram með lögbundnum hætti né hafi verið gætt að réttlátri málsmeðferð. Telji nefndin að stjórnvöld hafi með þessum aðgerðum framið verknað sem geti talist glæpur gegn mannkyni, gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og teljist raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar. Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 28. ágúst 2025, kemur fram að frá því í maí 2024 og fram í apríl 2025 hafi takmarkanir á borgaralegum réttindum almennings í Venesúela aukist enn frekar.

Samkvæmt m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni og hafi yfirvöld stefnt að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins hafi stjórn yfirvalda á öryggissveitum landsins minnkað undanfarin ár og ríkisstjórn Maduro í auknum mæli treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr mótmælum. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir fjölda vopnaðra hópa sem starfa víða um landið og styðja ríkisstjórnina. Þótt óljóst sé að hve miklu leyti yfirvöld hafi formlega stjórn á þessum hópum, hafi þeir tekið þátt í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Nýrri heimildir, m.a. skýrsla Human Rights Watch frá 2026 og upplýsingar á vefsíðu Insight Crime, renna jafnframt stoðum undir hlutverk Colectívos sem hópa sem starfi að undirlagi yfirvalda.

Í skýrslu EUAA frá 2023 og 2026 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Þrátt fyrir fækkun slíkra dauðsfalla á árunum 2018 til 2019 sé það ekki talið til marks um minnkandi ofbeldi í landinu, fremur hafi vopnahópum tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states),sem dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi einnig rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað m.a. vegna erfiðleika við greiðslu lausnargjalda í kjölfar óðaverðbólgu. Nú á síðari árum hafi orðið aukning á glæpum á borð við rán, mannrán og fjárkúgun, einkum í tengslum við lögleiðingu og greiðara aðgengi að erlendum gjaldmiðlum, sem hafi jafnframt leitt til þess að smærri glæpahópar hafa sameinast við stærri glæpasamtök. Samkvæmt skýrslu EUAA frá júlí 2026 hafi áætluð morðtíðni árið 2024 vegna dauðsfalla af völdum ofbeldis verið 26,2 á hverja hundrað þúsund íbúa skv. Venezuealan Observatory of Violence sem sé fækkun frá árinu 2023, sem var 26,8, og enn frekar frá árinu 2022 sem var 40,4.

Samkvæmt skýrslum EUAA frá 2023 og 2026 hafi fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Fjölbreyttir aðilar standi þar að baki, þar á meðal öryggissveitir ríkisins, vopnaðir hópar og skipulögð glæpasamtök. Aðferðirnar séu margvíslegar og feli meðal annars í sér svokölluð verndargjöld, ólögmæta skatta, mannrán gegn lausnargjaldi, hótanir og ofbeldi. Helstu fórnarlömb séu almennir borgarar, fyrirtæki, kaupmenn, flutningafyrirtæki og einstaklingar í viðkvæmri stöðu. Árið 2026 hafi upplýsingar bent til aukinna fjárkúguna og ofbeldis gegn bændum, þar á meðal morðum, íkveikjum og hótunum af hálfu skipulagðra glæpahópa. Einnig hafi meðlimir glæpagengis í Aragua verið handteknir fyrir að hafa kúgað fjölda fyrirtækja. Samhliða efnahagskreppunni hafi sum venesúelsk glæpagengi fært starfsemi sína til annarra ríkja í Suður-Ameríku, en haldi jafnframt áfram að kúga íbúa innanlands, einkum í fátækum hverfum þar sem yfirvöld grípi sjaldan til árangursríkra aðgerða. Fjárkúgun af hálfu öryggissveita ríkisins byggist oft á því að einstaklingar séu stöðvaðir við eftirlitsstöðvar eða handteknir með upplognum ásökunum. Einstaklingum sé síðan boðið að greiða háar fjárhæðir til að forðast ákæru eða langvarandi málsmeðferð. Ef einstaklingar neiti greiðslu geti þeir orðið fyrir frekari kúgun innan réttarkerfisins af hálfu dómara, saksóknara eða annarra embættismanna. Þessi framkvæmd bitni einkum á ungu fólki og eldri einstaklingum, þar sem talið sé að fjölskyldur þeirra geti greitt lausnargjöld sem nemi oft nokkrum þúsundum Bandaríkjadala. Glæpasamtök beiti einnig harðri fjárkúgun og grípi til hefndaraðgerða, svo sem eignaspjalla, þjófnaðar, líkamsárása eða mannrána, ef fórnarlömb greiði ekki. Aðstoð frá yfirvöldum sé almennt takmörkuð vegna útbreiddrar spillingar, samráðs embættismanna við glæpasamtök og veikra stofnana. Þótt til staðar séu staðbundin forvarnarverkefni hafi raunverulegur árangur verið lítill og efnahagsástand landsins, þar á meðal aukin dollaravæðing hagkerfisins, hafi gert fjárkúgun að enn arðbærari tekjulind fyrir skipulagða glæpastarfsemi.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi, að því tilskildu að iðkun trúar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Stjórnarskráin tryggi jafnframt sjálfstæði kirkna í landinu, rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín og banni dreifingu áróðurs gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríki almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í landinu, einstaklingar sæti að jafnaði ekki fordómum vegna trúar sinnar og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Þó hafi verið dæmi um að glæpahópar Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað trúarleiðtogum sem gagnrýnt hafi stjórnvöld.

Samkvæmt skýrslu EASO frá 2020, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, leiddi mikil lækkun olíuverðs í kjölfar þess að Maduro varð forseti árið 2013, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki gagnvart atvinnulífinu, til djúprar niðursveiflu efnahags Venesúela. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind ríkisins og um helmingur tekna ríkissjóðs komið frá olíuvinnslu. Óðaverðbólga og efnahagskreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir hækkanir á lágmarkslaunum hafi meginþorri almennings ekki getað framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Í skýrslunni kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfi og föðurlandskortið (s. Sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda fyrir aðgangi að opinberri aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til eftirlits með íbúum og sumum einstaklingum neitað um aðstoð vegna þess að þeir verið taldir á móti ríkisstjórninni og þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar. Árið 2022 hafi stjórnvöld hafið notkun smáforritsins VenApp, sem geri íbúum kleift að tilkynna truflanir á veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns, en notkun þess krefjist samþykkis fyrir aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því jafnframt tæki til að fylgjast með íbúum. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 hafi flestir íbúar Venesúela þá verið í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Þá hafi rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta eða verið á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2026 hafi tæplega átta milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta frá því árið 2014.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 segir að hagkerfi Venesúela hafi byrjað að sýna merki um bata frá árinu 2021 í kjölfar aukningu á olíuframleiðslu slökunar á ströngum reglum um gjaldeyrismál og leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Þrátt fyrir aukið framboð matvæla og lyfja eftir lægri verðbólgu og rýmkun innflutningsreglna hafi stór hluti íbúa ekki efni á nauðsynjavörum vegna lágra launa. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafa Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hefur aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 er jafnframt fjallað um endurnýjuð stjórnmálasamskipti Venesúela við önnur ríki frá árinu 2022, m.a. enduropnun landamæra við Kólumbíu, endurnýjun stjórnmálasambands við argentínsk yfirvöld og samkomulag stjórnvalda í Venesúela og stjórnarandstöðunnar í nóvember 2022 um aukna mannúðaraðstoð. Samkomulagið hafi falið í sér úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Sameinuðu þjóðunum, Bandaríkjunum og öðrum löndum.

Samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 hafi fólksflutningur yfir landamæri Venesúela verið stöðugur, bæði inn í landið og út úr því. Á landamærum við Kólumbíu hafi fleiri snúið aftur til Venesúela en farið úr landi, en á landamærum við Brasilíu séu fleiri sem leiti þangað en áður í von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria og vegna brottvísana frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins dregið úr kaupmætti og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna, einkum meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega. Flóttamannastofnunin hafi leitast við að aðstoða þá sem verst sé settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri endurkomu fólks til Venesúela. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 er heilbrigðiskerfi Venesúela veikburða. Þótt bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir starfi í landinu hafi aðeins um 3% íbúa tök á að nýta sér einkarekna þjónustu. Opinber sjúkrahús hafi glímt við langvarandi skort á lyfjum, búnaði og starfsfólki, og aðgangur að rafmagni og vatni hafi verið ótryggur. Barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með bólusetningum hafi aukist og heilbrigðiskerfið hafi verið illa í stakk búið til að takast á við Covid-19 faraldurinn. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi árið 2022 stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins sé aðbúnaði áfram ábótavant og mikill skortur á heilbrigðisstarfsfólki, meðal annars vegna þess að það hafi flúið land í miklum mæli. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökunum af hálfu yfirvalda vegna opinberrar gagnrýni á stöðu heilbrigðiskerfisins. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 og 2025 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir íbúa hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafa rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu og yfir níu milljónir ekki haft efni á nauðsynlegum lyfjum eða meðferð. Samkvæmt skýrslum Landinfo frá 2023 og Human Rights Watch frá 2025 hafi Venesúela um árabil glímt við alvarlegan lyfjaskort, þótt aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þau sem geti greitt fyrir það en mörg fái lyf send frá útlöndum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2026 kemur fram að margir hafi neyðst til að grípa til sjálfslyfjameðferðar eða treysta á stuðning fjölskyldu og annarra persónulegra tengslaneta til að afla sér meðferðar.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við sjálfviljuga heimför til Venesúela. Í kjölfarið bárust fregnir af því að sumir hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hafi verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Íslensk stjórnvöld settu sig í samband við þá einstaklinga sem náðist til og óskuðu eftir upplýsingum um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem bárust að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili var kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskur ríkisborgari aðstoð við sjálfviljuga heimför til Venesúela á árinu 2024. Hafi íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela. Þá kemur fram í tölfræði Útlendingastofnunar fyrir árið 2025 að á árinu hafi verið afgreiddar beiðni 345 einstaklinga frá Venesúela um aðstoð við sjálfviljuga heimför.

Heimildum kemur saman um að á árunum 2024 og 2025 hafi bandarísk stjórnvöld haldið áfram viðskiptaþvingunum gegn Venesúela, þar á meðal aðgerðum sem beinst hafi að olíuútflutningi, sjóflutningum og fjármálastarfsemi. Í desember 2025 tilkynnti fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna um nýjar markvissar refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum innan stjórnkerfis Venesúela, ættingjum eiginkonu forsetans, Ciliu Flores, auk fyrirtækja og skipa sem talin hafi verið tengjast ólöglegum olíuflutningum. Nokkur olíuskip hafi verið talin veita stjórnvöldum í Karakas fjárhagslegan stuðning og vera hluti af svokölluðum skuggaflota (e. Shadow-fleet) sem hafi reynt að komast undan refsiaðgerðum Bandaríkjanna. Hinn 7. ágúst 2025 birti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna myndskeið hvar þáverandi dómsmálaráðherra landsins, Pam Bondi, hét því að verðlauna hvern þann sem veitt gæti upplýsingar sem leitt gætu til handtöku Maduro 50 milljónir bandaríkjadollara. Á seinni hluta árs 2025 hafi þrýstingur Bandaríkjanna á Venesúela aukist enn frekar í formi aukinna refsiaðgerða, hernaðarlegra aðgerða og efnahagsþvingana. Samkvæmt fréttatilkynningum fjármála- og dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna í desember 2025 hóf Bandaríkjastjórn átak með það að markmiði að stöðva olíuútflutning sem talinn var styðja við stjórn Maduro og fjármagna stjórnvöld í Karakas. Á sama tíma hafi bandarísk yfirvöld kyrrsett fjölda olíuskipa sem þau hafi talið reyna að komast hjá refsiaðgerðum og flytja olíu ólöglega úr landi. Samkvæmt heimildum, þ. á m. frétt á vefsíðu The Washington Post 16. desember 2025, tilkynnti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, í færslu á Truth Social um algert hafnarbann gegn öllum skipum sem reyndu að flytja olíu til eða frá Venesúela. Í fréttinni er aðgerðinni lýst sem hluta af víðtækari stefnu til að rjúfa flutningsleiðir olíugeirans og auka þrýsting á stjórnvöld í Venesúela.

Í skýrslu EUAA frá júlí 2026 kemur fram að í byrjun árs 2026 hafi verulegar pólitískar breytingar átt sér stað í Venesúela í kjölfar hernaðarinngrips Bandaríkjanna. Hinn 3. janúar 2026 framkvæmdu bandarískir hermenn aðgerð í Karakas sem leiddi til handtöku Nicolás Maduro forseta og eiginkonu hans. Í kjölfarið hafi yfirvöld í Bandaríkjunum lýst því yfir að þau myndu styðja tímabundin umskipti í Venesúela og jafnframt endurskipuleggja samskipti ríkjanna, þar á meðal aflétta hluta viðskiptaþvingana. Fjöldi þeirra sem hafi fallið í aðgerðinni sé ekki ljós, en heimildir bendi til þess að tugir meðlima öryggissveita Venesúela og kúbverskra hermanna hafi látið lífið. Hinn 5. mars 2026 hafi Delcy Rodríguez verið skipuð bráðabirgðaforseti af þjóðþinginu. Þrátt fyrir að stjórnskipan landsins hafi að mörgu leyti haldist óbreytt hafi Rodríguez að sögn tekið nokkra stefnumarkandi fjarlægð frá stjórnarháttum Maduro og hafið náið samstarf við Bandaríkin. Sama dag hafi stjórnmálasambönd ríkjanna verið endurvakin eftir sjö ára hlé og nokkrum dögum síðar hafi Bandaríkin viðurkennt Rodríguez formlega sem forseta.

Í kjölfar valdatökunnar hafi verið gerðar breytingar á framkvæmdavaldinu í Venesúela, hernum og öryggisstofnunum. Meðal annars hafi varnarmálaráðherra verið leystur frá störfum, nýir herforingjar skipaðir og breytingar gerðar á stjórn leyniþjónustunnar og forsetavarðliðsins. Hins vegar hafi kröfum um tafarlausar forseta- og þingkosningar verið hafnað og þeim frestað um óákveðinn tíma. Heimildir bendi til þess að borgaralegt og pólitískt svigrúm hafi aukist eftir brottvikningu Maduro. Skoðanakannanir sýni að meirihluti svarenda telji að borgaraleg réttindi og lýðræðisleg skilyrði hafi batnað. Stjórnmálaflokkar og frjáls félagasamtök hafi endurvakið starfsemi sína, rannsóknir og opinbera gagnrýni, auk þess sem þátttaka í mótmælum hafi aukist. Þrátt fyrir þessar jákvæðu breytingar beiti stjórnvöld sér enn gegn stjórnarandstæðingum og enn sé hætta á mannréttindabrotum af þeirra hálfu.

Þrátt fyrir framangreindar aðgerðir Bandaríkjanna liggur ekki fyrir að almennt öryggi borgara í Venesúela hafi raskast verulega í kjölfarið. Alþjóðlegir fjölmiðlar og opinberar yfirlýsingar bandarískra stjórnvalda hafa ekki greint frá því að viðvarandi átök, almennar óeirðir eða víðtæk mótmæli hafi brotist út í kjölfar aðgerðanna, heldur virðist öryggisástand að mestu hafa haldist stöðugt utan þeirra afmörkuðu hernaðaraðgerða sem framkvæmdar voru í Karakas við handtöku Maduro. Fjölmiðlar hafa greint frá því að stjórnsýsla og opinber þjónusta hafi að meginstefnu haldið áfram starfsemi sinni, þrátt fyrir pólitíska óvissu í kjölfar aðgerðanna. Jafnframt liggja ekki fyrir heimildir um að aðgangur að heilbrigðisþjónustu eða lyfjum hafi almennt verið hindraður. Þá benda heimildir til þess að landamæri Venesúela séu opin og að almenningur geti ferðast til og frá landinu. Að lokum liggja ekki fyrir heimildir sem benda til þess að einstaklingar sem snúi aftur til Venesúela eigi almennt hættu á að verða fyrir handahófskenndri meðferð, auknu eftirliti eða refsiaðgerðum einungis vegna aðgerða Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Venesúela hafi þá unnið að því að láta lausa pólitíska fanga og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu frjálsu félagasamtakanna Foro Penal frá 8. mars 2026, hafði 670 pólitískum föngum verið sleppt frá 8. janúar 2026. Telja samtökin að enn séu um 508 pólitískir fangar í haldi. Ennfremur voru svokölluð sakaruppgjafarlög (e. Amnesty law) samþykkt á venesúelska þjóðþinginu sem vonir standi til að leiði til þess að fjölda pólitískra fanga verði sleppt. Lögin nái þó ekki til þeirra sem hafi verið ákærðir eða sakfelldir fyrir að hvetja til hernaðaraðgerða gegn landinu. Hafa stjórnvöld verið hvött til þess að ganga úr skugga um að aðeins þeir sem hafi verið handteknir fyrir að nýta sér rétt sinn til tjáningar, skoðunar og samkomu/funda njóti verndar laganna en ekki aðilar sem hafi gerst sekir um alvarleg mannréttindabrot og glæpi gegn mannkyni, s.s. herlið á vegum yfirvalda og skæruliða.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi og A byggja umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að þeir eigi á hættu ofsóknir af hálfu ótilgreinds glæpahóps í heimaríki. Einnig byggja þeir á því að þeir séu [...] og tilheyri þjóðfélagshópi sem glæpahópar beini ofsóknum að í Venesúela. Jafnframt byggja þeir á almennu ástandi í Venesúela.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa flúið frá Venesúela til Sýrlands árið 2021 vegna þess að hann hafi þar orðið ítrekað fyrir vopnuðu ráni. Árið 2004 hafi kærandi verið að vinna í búð með frænda sínum þegar skotið hafi verið á frænda hans. Þá hafi verið skotið á kæranda árið 2012 þegar hann hafi verið í heimsókn hjá systur sinni. Árið 2020 hafi verið gert rán í verslun sem kærandi hafi verið að vinna í. Einnig kvaðst kærandi skulda fólki í Venesúela en engin væri þó á eftir honum vegna skuldarinnar. Kærandi kvaðst ekki hafa leitað aðstoðar lögreglu eða yfirvalda vegna framangreindra ofsókna í Venesúela.

A greindi frá því að hafa flúið ásamt fjölskyldu sinni til Sýrlands árið 2024 eftir að þjófar hafi kveikt í húsi þeirra í Venesúela. Það hafi verið óöruggt fyrir hann að fara út á kvöldin í Venesúela vegna glæpahópa. Þá hafi hann ekki fengið að byrja aftur í grunnskóla í Venesúela því foreldrar hans hafi ekki haft tök á því að greiða skólagjöld. A kvaðst hafa flúið frá Sýrlandi vegna þess að foreldrar hans hafi ekki talið hann öruggan þar í landi. Gerð hafi veri skotárás í hverfi fjölskyldu hans í Sýrlandi og föður hans hafi verið rænt.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði A fram ljósmyndir af brunaskemmdu íbúðarhúsnæði og myndbandsupptöku sem sýnir mann á hnjánum umkringdur þremur vopnuðum einkennisklæddum mönnum. Framlagðar ljósmyndir og myndbandsupptaka hafa takmarkað sönnunargildi í málinu enda ekkert sem tengir umrætt húsnæði eða einstaklinga við kæranda eða A.

Að teknu tilliti til þeirra heimilda sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í Venesúela er þó ekki ástæða til að draga í efa að kveikt hafi verið í heimili A og fjölskyldu hans í Venesúela eða að kærandi hafi orðið fyrir vopnuðum ránum í heimaríki af hendi ótilgreindra einstaklinga og að þeir óttist almennt ástand í ríkinu. Heimildir um heimaríki kæranda og A benda til þess að vopnaðir glæpahópar í landinu stundi glæpi á borð við fjárkúgun, eiturlyfjasmygl og mannrán. Ekkert í gögnum málsins eða frásögn kæranda og A bendir þó til þess að þeir eða fjölskyldur þeirra séu sérstakt skotmark glæpahópa eða að þau eigi á hættu að verða fyrir áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Við það mat er m.a. litið til þess að frásögn kæranda ber með sér að um einangruð og óskyld atvik hafi verið að ræða sem hafi ekki beinst að persónu kæranda og hafi ekki haft frekari afleiðingar fyrir hann. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kæranda og A sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Geta kærandi og A því leitað til lögreglu telji þeir tilefni til þess.

Þá byggja kærandi og A á ástæðuríkum ótta við ofsóknir vegna þess að þeir séu [...] og tilheyri því þjóðfélagshópi sem glæpahópar beini spjótum sínum að í Venesúela. Framangreindar heimildir benda til þess að venesúelskir ríkisborgarar af arabískum uppruna fái ekki að neinu leyti öðruvísi meðferð en aðrir í samfélaginu og tilheyri þeir öllum stéttum samfélagsins. Þá kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Stjórnarskráin leggi einnig sérstakt bann við dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Framangreindar heimildir benda til þess að almennt umburðarlyndi ríki gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Ekkert í frásögn kæranda og A bendir til þess að þeir hafi orðið fyrir mismunun sökum trúar sinnar. Aðstæður kæranda og A vegna trúar þeirra eru því ekki þess eðlis að þær eigi undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni A samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki hans. Sjónarmiðum A var nægilega komið á framfæri með framburði kæranda, viðtölum við A og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að A fylgi frænda sínum til Venesúela. A er í fylgd frænda síns sem er heilsuhraustur og vinnufær og nýtur hann stuðnings hans. Eins og áður greinir stendur A til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að A muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska A er það honum fyrir bestu að fylgja frænda sínum til Venesúela.

Efnahagslegar aðstæður teljast almennt ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ekkert í gögnum málsins bendir til þess að annað eigi við í máli kæranda og A.

Þegar frásagnir kæranda og A, upplýsingar um heimaríki þeirra og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra í heimaríki, teljast kærandi og A ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þeir eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærandi og A uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi og A byggja á því að þeir eigi rétt á viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga vegna þess að til staðar sé raunveruleg og yfirvofandi hætta á að þeir verði fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð vegna almenns ástands í heimaríki sem yfirvöld verndi þá ekki fyrir.

Þó öryggisástand í Venesúela sé á ákveðnum svæðum ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafa átök að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu og Brasilíu. Benda almennar heimildir ekki til þess að aðstæður í landinu nái því marki að sérhver einstaklingur sem þangað fari eigi á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og unnið að því í samstarfi við alþjóðasamfélagið að bæta slíka aðstoð. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin hagvöxtur hafi aukist þrátt fyrir viðskiptaþvinganir og vöruframboð aukist að einhverju leyti þrátt fyrri hátt verðlag. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Hvað varðar hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela og handtöku Maduro og eiginkonu hans af hálfu bandarískra stjórnvalda er ekkert sem bendir til þess að þær aðgerðir hafi leitt til þess að aðstæður í landinu hafi versnað fyrir almenning í landinu. Benda heimildir til þess að stjórnvöld hafi brugðist við með því að setja í embætti varaforseta landsins og að stjórn og innviðir landsins séu eins og er stöðugir. Þá hafa ekki brotist út mótmæli eða vopnuðu átök sem eða komið upp önnur atvik sem benda til þess að almennar aðstæður séu slíkar að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreinds verða frekari persónulegir þættir að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda og A er ljóst að þau atvik sem kærandi og A hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kæranda og A sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður þeirra leiði til þess að þeir eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þeir til baka.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsettur í [...] í [...] fylki í Venesúela og A greindi frá því að hafa búið í [...] í [...] fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er [...] fylki í suðvesturhluta Venesúela og [...] fylki í norðausturhluta Venesúela. Landaupplýsingar bera með sér að glæpahópar séu með virka starfsemi á námusvæðum í [...] fylki og berjist m.a. við öryggissveitir ríkisins um yfirráð svæðanna. Þá þekkist dæmi um það að meðlimir öryggissveita starfi með glæpahópunum. Samkvæmt gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér bera upplýsingar um heimaríki kæranda með sér að lögreglan sé að vinna í því að uppræta ólöglegan námugröft í heimaborg og fylki kæranda. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda og A. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærandi og A hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi og A eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kæranda og A, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og A í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og A séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi og A uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi og A eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þeir ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í Venesúela síðustu ár þá sé hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök.

Hinn 24. júní 2026 urðu tveir öflugir jarðskjálftar og töluverður fjöldi eftirskjálfta í mið-norðurhluta Venesúela. Í 21. ástandsskýrslu Skrifstofu Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu mannúðarmála (OCHA) vegna jarðskjálftanna, dags. 14. júlí 2026, kemur fram að þau fylki sem verst hafi orðið úti vegna skjálftanna séu La Guaira, Distrito Capital, Miranda, Carabobo, Yaracuy, Falcón og aðliggjandi svæði. Nokkur þúsund manns hafi látist í jarðskjálftunum sjálfum eða í kjölfar þeirra og á sautjánda þúsund manns hafi slasast. Jarðskjálftarnir hafi leitt til skemmda á yfir 2.500 innviðum, þ. á m. 38 heilsugæslustöðvum. Í skýrslunni kemur fram að venesúelsk stjórnvöld, með aðstoð og í samstarfi við undirstofnanir Sameinuðu þjóðanna og samstarfssamtök þeirra, séu að bregðast við afleiðingum af völdum jarðskjálftanna með fjölþættum aðgerðum, m.a. leitar- og björgunaraðgerðum og mannúðaraðstoð, og muni halda áfram að auka umfang þeirrar aðstoðar á þeim svæðum sem hafi orðið fyrir áhrifum skjálftanna. Þá hafi fjöldi hjálparsamtaka, frjálsra félagasamtaka og annarra ríkja veitt aðstoð sína. Benda upplýsingar um aðstæður í heimaríki kæranda, því ekki til þess að almennar aðstæður þar í landi nái því alvarleikastigi að venesúelskir ríkisborgarar teljist hafa ríka þörf fyrir vernd í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa fengið [...] árið 2019 sem hann hafi fengið viðeigandi meðferð við í Venesúela. Þá hafi hann farið í [...] og í [...]. Kærandi kvaðst hafa haft aðgang að viðeigandi meðferð við kvillum sínum í Venesúela. Jafnframt kvaðst hann glíma við [...] en hann væri að öðru leyti heilsuhraustur.

A kvaðst vera við góða heilsu og hafi ekki oft þurft að leita til læknis. A kvaðst þó [...] og taldi sig þurfa að fara til tannlæknis. Þá kvaðst hann fá [...] ef hann situr lengi. Aðspurður kvaðst hann ekki treysta læknum í Sýrlandi vegna þess að þeir væru ekki mjög reyndir og það kostaði peninga að leita til læknis þar í landi.

Við meðferð málsins hjá kærunefnd útlendingamála lagði kærandi fram [...], sem ber með sér vera lýsing á meðferð og eftirliti læknis sem kærandi hafi verið í eftir aðgerð vegna [...]. Þar kemur m.a. fram að kærandi hafi fengið viðeigandi meðferð sem hafi skilað árangri og að mikilvægt sé að meðferð og eftirlit haldi áfram. Einnig lagði kærandi fram samskiptaseðil frá Göngudeild sóttvarna, dags. 5. júní 2025 til 16. júní 2025, þar sem m.a. kemur fram að kærandi hafi ekki áhyggjur af líkamlegri eða andlegri heilsu sinni og taki ekki lyf að staðaldri.

Af framburði kæranda og A og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þeir glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi eða A þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þeir geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þá verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærandi og A hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þeir muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærandi og A því ekki sýnt fram á að þeir hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa búið í leiguhúsnæði í [...] fylki í Venesúela og starfað í verslun til ársins 2021 þegar hann hafi flúið til Sýrlands. Kærandi kvaðst eiga eiginkonu í Sýrlandi og bróður og ættingja í Venesúela sem hann væri í samskiptum við. A kvaðst hafa búið með móður sinni, föður og tveimur systkinum í [...] í [...] fylki í Venesúela þar til þau hafi flúið til Sýrlands árið 2024. A kvað móður sína ekki hafa verið í vinnu í Venesúela en faðir hans hafi leigt húsnæði og selt kjöt. Þá hafi A verið í grunnskóla í Venesúela en kvaðst hafa verið krafinn um tiltekna upphæð til að hefja aftur nám þegar hann hafi snúið aftur til Venesúela eftir að hafa verið í heimsókn í Sýrlandi í eitt ár. Foreldrar hans hafi ekki haft efni á að greiða fyrir það. Þá kvaðst A eiga frænda í Venesúela.

Kærandi og A hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að kærandi hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi sé heilsuhraustur og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kæranda og A við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna A og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður A í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og A í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann og A hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda og A dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Með ákvæði a-liðar 5. gr. breytingarlaga nr. 12/2026, sem voru samþykkt á Alþingi 16. febrúar 2026, var lögum um útlendinga breytt á þann veg að ákvæði 2. mgr. 74. gr. laganna var felld brott. Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laga nr. 12/2026 öðluðust lögin þegar gildi en í 2. mgr. 10. gr. kemur fram að ákvæði a-liðar 5. gr. gildi ekki um meðferð umsókna sem hafi náð tímamörkum 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku laganna. Lögin voru birt í Stjórnartíðindum 6. mars 2026 og öðluðust þá gildi.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd fyrir sig og A 5. júní 2025 og hafði málsmeðferð í málum þeirra þá ekki náð tímamörkum ákvæðis 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku breytingalaganna og á ákvæðið því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kæranda og A falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að þau eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda og A. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda og A þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsóknum kæranda og A um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þeir því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimild kæranda og A til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum og A frá Íslandi og ákvarða kæranda endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst vera með tengsl við Ísland og önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Kærandi taldi brottvísun og endurkomubann ósanngjarna ráðstöfun. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kæranda og A og endurkomubann kæranda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda og A til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi hann landið innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellant leave Iceland voluntarily within 15 days, his re-entry ban will be revoked.

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,

Vera Dögg Guðmundsdóttir

Var efnið hjálplegt?