02 nóvember 2026
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Grænbók um landgræðslu og skógrækt sett í samráðsgátt

{image.Description}
Meðal þess sem grænbókin leggur áherslu á er vernd og endurheimt vistkerfa og framtíð skógræktar. Ljósmynd/Land og skógur

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett grænbók um landgræðslu og skógrækt til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda. Grænbókin er fyrsti áfangi í endurskoðun landsáætlunar um landgræðslu og skógrækt og aðgerðaáætlunar fyrir málaflokkinn.

Grænbókin dregur saman stöðu málaflokksins og metur framgang og árangur gildandi landsáætlunar. Jafnframt er fjallað um helstu áskoranir og tækifæri til næstu ára og sett fram drög að framtíðarsýn, lykilviðfangsefnum og áherslum til umræðu.

Meðal þess sem lögð er áhersla á er vernd og endurheimt vistkerfa, stöðvun landeyðingar og jarðvegsrofs, sjálfbær landnýting og framtíð skógræktar. Þá er lögð áhersla á betri landupplýsingar, vöktun og árangursmat og skýrari verkaskiptingu og framkvæmd í málaflokknum.

Í grænbókinni er jafnframt sett fram mögulegt stefnuval um meðal annars hvata- og stuðningsverkefni, framtíðaráherslur í skógrækt og hlutverk Lands og skógar. Markmiðið er að skapa grundvöll fyrir umræðu um þær breytingar sem kunna að vera nauðsynlegar til að ná markmiðum stjórnvalda um vernd og endurheimt vistkerfa og sjálfbæra landnýtingu.

Núgildandi landsáætlun, Land og líf – stefna og framtíðarsýn í landgræðslu og skógrækt til ársins 2031, var gefin út árið 2022. Samhliða henni var gefin út fimm ára aðgerðaáætlun. Nú er unnið að nýrri landsáætlun til ársins 2036 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2027–2031.

 

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Landgræðsla og skógrækt eru lykilverkfæri til að efla líffræðilega fjölbreytni, endurheimta vistkerfi og styrkja náttúru Íslands til framtíðar. Þá skiptir máli að byggja stefnu á traustri þekkingu og virku samráði við fólk um allt land. Með grænbókinni viljum við koma af stað umræðu um hvernig best sé að ná þessum markmiðum á næstu árum og tryggja að landnýting, náttúruvernd og samfélagslegir hagsmunir fari saman.“

Ráðherra skipaði verkefnisstjórn um endurskoðun landsáætlunarinnar í maí 2026. Verkefnisstjórninni er falið að vinna stöðumat á framkvæmd gildandi landsáætlunar, draga fram helstu viðfangsefni til framtíðar og vinna drög að nýrri stefnu og aðgerðaáætlun. Verkefnisstjórninni er falið að vinna stöðumat á framkvæmd gildandi landsáætlunar, draga fram helstu viðfangsefni til framtíðar og vinna drög að nýrri stefnu og aðgerðaáætlun.

Almenningi, hagaðilum og öðrum áhugasömum er boðið að kynna sér grænbókina og senda inn umsagnir og ábendingar í Samráðsgátt. Að loknu samráði verður unnið úr umsögnum og niðurstöður þeirra nýttar við gerð hvítbókar. Gert er ráð fyrir frekara samráði við gerð hvítbókarinnar, meðal annars með samráðsfundum, áður en endanleg landsáætlun og aðgerðaáætlun verða mótaðar.

Athygli er vakin á að umsagnarfrestur í Samráðsgátt er til og með 4. desember 2026.

Grænbók um landgræðslu og skógrækt

 
 

Var efnið hjálplegt?