Atvinnuvegaráðherra fundaði með forstjóra Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna
Hanna Katrín Friðriksson heimsótti í gær Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu Þjóðanna (FAO) og átti þar fund með forstjóra stofnunarinnar Dr. Qu Dongyu.
Á fundinum ræddu þau meðal annars fæðuöryggi, fiskveiðar og matvælaframleiðslu. Forstjórinn þakkaði fyrir þá aðstoð sem Ísland hefur veitt FAO er varðar fiskveiðistjórnun, eftirlit með fiskveiðum og nýtingu á afla. Einnig ræddu þau um fiskeldi sem bæði töldu mikilvægt að eftirlit væri með slíkri starfsemi og að hafa þyrfti sjálfbærni að leiðarljósi í þeim málum. Næringarríkur fiskur væri mikilvægur og gæta þyrfti að gæðum. Dr. Qu Dongyu heimsótti Ísland nýverið og fékk þá góða innsýn í íslenskan sjávarútveg. Hann var afar ánægður með móttökurnar og sagðist hafa upplifað Íslendinga sem afar auðmjúka þjóð. Í lok fundarins færði Hanna Katrín forstjóranum bókagjöf með íslenskum mataruppskriftum.
Að fundi loknum sat Hanna Katrín kynningu hjá nokkrum framkvæmdastjórum FAO þar sem hún fékk innsýn í áætlanir og mælingar á fæðuöryggi í heiminum. Fiskimáladeild FAO þakkaði Íslandi sérstaklega fyrir þeirra framlag og þá sérþekkingu sem Íslendingar hafa komið með til FAO. Þá var yfirvöldum á Íslandi einnig þakkað fyrir að hýsa fund fiskimálanefndarinnar sem haldinn var á Íslandi í febrúar sl. Yfirmaður fiskimála sýndi ráðherra nýútgefna íslenska bók sem fjallar um alla þá Íslendinga sem starfað hafa hjá FAO frá stofnun hennar. Ráðherra fékk einnig afhenta bók að gjöf með fiskuppskriftum frá fiskimáladeildinni.
Þar að auki hélt Matvæladreifing Sameinuðu þjóðanna (WFP) kynningu en hún er sú stofnun innan Sameinuðu þjóðanna sem sér um matvæladreifingu og neyðaraðstoð á heimsvísu. Hún er stærsta mannúðarstofnun heims sem berst gegn hungri og vinnur að því að tryggja fæðuöryggi. Íslenskum yfirvöldum var þakkað það framlag sem þau hafa veitt en Ísland er í efstu sætum yfir framlög Per Capita hjá WFP.
Þetta er í fyrsta sinn sem Hanna Katrín heimsækir stofnun Sameinuðu þjóðanna í Róm en vonandi mun hún koma fljótlega aftur til að kynna sér nánar hin fjölmörgu verkefni stofnananna.