02 nóvember 2026
/
Utanríkisráðuneytið

Ísland tekur sæti í ráðgjafaráði Ted Stevens norðurslóðamiðstöðvarinnar

{image.Description}
Gautur Sturluson, varnarmálafulltrúi Íslands í Bandaríkjunum, Sturla Sigurjónsson sendiherra og Randy „Church“ Kee, framkvæmdastjóri Ted Stevens norðurslóðamiðstöðvarinnar, handsala samkomulagið að lokinni undirritun.

Varnarmálafulltrúi Íslands í Bandaríkjunum hefur undirritað samkomulag við Ted Stevens Center for Arctic Security Studies (TSC) í Alaska um þátttöku Íslands í starfsemi miðstöðvarinnar.

Með samkomulaginu tekur Sturla Sigurjónsson sendiherra við hlutverki norðurslóðaráðgjafa (e. Arctic Chair) fyrir hönd Íslands hjá miðstöðinni og fær sæti í ráðgjafaráði hennar, ásamt fulltrúum annarra norðurskautsríkja utan Rússlands, og tekur virkan þátt í stefnumótun og samstarfi um öryggis- og varnarmál á norðurslóðum.

TSC er þekkingar- og fræðasetur á vegum bandaríska varnarmálaráðuneytisins og sinnir rannsóknum, fræðslu og samstarfi um öryggis- og varnarmál á norðurslóðum. Þá er miðstöðin mikilvægur vettvangur fyrir samstarf sérfræðinga frá Bandaríkjunum, aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins og öðrum samstarfsríkjum.

Samstarfið styrkir tengsl Íslands við Bandaríkin og undirstrikar mikilvægi landsins í öryggis- og varnarmálum á norðurslóðum og í Norður-Atlantshafi.

Var efnið hjálplegt?