03 nóvember 2026
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 42/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 29. júlí 2026

í máli nr. 42/2026:

Rafmiðlun hf.

gegn

Nýjum Landspítala ohf.

Fagtækni hf.

Raftákn ehf. og

Víkingbátar ehf.

 

Lykilorð

Kröfu um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar hafnað.

Útdráttur

Kærunefnd útboðsmála hafnaði kröfum um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt í útboði varnaraðila, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 9. júlí 2026 kærði Rafmiðlun hf. (hér eftir „kærandi“) útboð Nýs Landspítala ohf. (hér eftir „varnaraðili“) nr. I4084 auðkennt „Rafkerfi fyrir meðferðarkjarna K2 til 4. hæð“.

Kærandi krefst þess að ákvörðun varnaraðila 30. júní 2026 að velja sameiginlegt tilboð Fagtækni hf., Raftákn ehf. og Víkingbáta ehf. (hér eftir „hagsmunaaðilar“) verði ógilt. Þá krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum og varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað. Loks krefst kærandi þess að samningsgerð verði stöðvuð um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru verði af einhverjum ástæðum ekki fallist á sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar.

Varnar- og hagsmunaaðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Varnaraðili lagði fram athugasemdir 17. júlí 2026 og hagsmunaaðilar 22. sama mánaðar.

Varnaraðili krefst þess að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt og öllum kröfum kæranda hafnað. Hagsmunaaðilar gera sömu kröfur.

Með erindi 17. júlí 2026 óskaði kærunefnd útboðsmála eftir að varnaraðili legði fram tiltekin gögn sem hafði verið vísað til í athugasemdum hans. Varnaraðili svaraði erindinu sama dag og afhenti umbeðin gögn.

 

I

Í grein 1.1 í útboðsskilmálum kom fram að varnaraðili óskaði eftir tilboðum í útboði á rafkerfum í kjallara K2 til 4. hæðar meðferðarkjarna sem yrði hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut í Reykjavík. Verkþættir sem féllu undir útboðið væru mjög umfangsmiklir og sneru að frágangi rafkerfa á um 55 þúsund fermetrum. Þá var í greininni gert nánar grein fyrir verkþáttunum en þar var m.a. um að ræða hefðbundnar lág og smáspennulagnir, ljósabúnað og lýsingarkerfi, ljósastýringarkerfi, helstu smáspennukerfi og deilihönnun ýmissa smáspennukerfa, til að mynda hússtjórnarkerfis.

Í grein 1.3.10 sagði að tæknileg og fagleg geta bjóðenda (einn eða fleiri saman) skyldi vera það trygg að hann gæti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart varnaraðila. Fyrirtæki væri heimilt að byggja á fjárhagslegri, tæknilegri og faglegri getu annarra aðila óháð lagalegum tengslum við þá, sbr. 76. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.  Bjóðandi skyldi greina frá verkum með hátt umfang og flækjustig, sem hann hefði unnið á síðastliðnum fimm árum. Þá kom eftirfarandi fram í greininni:

 

Til sambærilegra verka teljast umfangsmikil og flókin mannvirki t.d. sjúkrahús þar sem þriðja stigs þjónusta er veitt, skólar og aðrar opinberar byggingar, hótel, verslunarmiðstöðvar og skrifstofuhúsnæði með 8.000 m² byggingarmagn eða meira sem unnin hafa verið á undanförnum 5 árum.

 

Þá kom fram í greininni að bjóðandi skyldi skila formblaði A4 fyrir hvert og eitt verkefni sem hann hygðist nota sem staðfestingu á reynslu sinni. Meðal upplýsinga um einstök verkefni skyldi bjóðandi greina frá helstu kennitölum og áskorunum við framkvæmd viðkomandi verka (fermetratölu bygginga/mannvirkja, framkvæmdatíma og kostnað). Einnig skyldi koma fram hvort og hvaða verk hefðu verið unnin samkvæmt aðferðarfræði BIM.

Í grein 1.3.9 komu fram kröfur til fjárhagsstöðu bjóðenda. Þar kom meðal annars fram að rekstrarumfang í starfsemi bjóðanda á því sviði sem útboðið tæki til skyldi að lágmarki vera þannig að ársvelta (rekstrartekjur) á ári í starfsemi bjóðanda á því sviði sem útboðið tæki til skyldi að lágmarki vera 2.000 milljón krónur. Til staðfestingar á þessari kröfu átti bjóðandi að leggja fram áritaða ársreikninga síðastliðinna þriggja ára. Ef ársreikningur 2025 lægi fyrir bæri að skila honum ásamt reikningum áranna 2023 og 2024. Annars skyldi skila ársreikningum áranna 2022-2024. Ársreikningar skyldu vera án athugasemda um rekstrarhæfi.

Þá kom fram í greininni að við mat á rekstrarumfangi í þeim tilvikum þar sem fleiri en eitt fyrirtæki stæðu sameiginlega að tilboði skyldi litið til samanlagðrar ársveltu (rekstrartekna) allra fyrirtækja sem að tilboði stæði. Jafnframt kom fram í greininni að eftirfarandi „viðbótarskilyrði“ ættu við ef fleiri en eitt fyrirtæki stæðu saman að tilboði:

 

Ef fleiri en tveir aðilar standa saman að tilboði skal samanlögð ársvelta(rekstrartekjur) tveggja stærstu fyrirtækjanna að lágmarki nema 75% af ofangreindum veltukröfum.

 

Allir aðilar að sameiginlegu tilboði skulu taka virkan þátt í að veita þá þjónustu sem samið er um, annað hvort almennt eða sjá um tilteknar undirgreinar verkefnisins.

 

Aðilar að sameiginlegu tilboði skuli hver og einn ráða yfir sérþekkingu á viðkomandi verkefni og geti sýnt fram á reynslu sem nýtist verkefninu.

 

Í grein 1.3.13 kom fram að varnaraðili áskildi sér rétt til að óska eftir tilteknum upplýsingum, þar með talið yfirlýsingu um heildarveltu bjóðanda og, eftir því sem við ætti, veltu á því sviði sem félli undir samninginn á síðustu þremur fyrirliggjandi fjárhagsárum.

Tilboð voru opnuð 9. júní 2026 og bárust fimm tilboð í útboðinu. Hagmunaaðilar áttu lægsta tilboðið að fjárhæð 6.032.339.749 krónum og þar á eftir kom tilboð kæranda að fjárhæð 6.200.000.000 kr. Þá nám kostnaðaráætlun varnaraðila 6.685.156.348 krónum. Allar umræddar fjárhæðir voru án virðisaukaskatts.

Varnaraðili tilkynnti um val á tilboði hagsmunaaðila 29. júní 2026. Í tilkynningunni kom meðal annars fram að biðtími samningsgerðar hæfist 30. júní 2026 og lyki 9. júlí 2026 og að heimilt væri að ganga til samninga við hagsmunaaðila frá og með 10. júlí 2026.

Kærandi sendi bréf til varnaraðila 1. júlí 2026 og óskaði þar eftir tilteknum upplýsingum varðandi tilboð hagsmunaaðila og mat varnaraðila á tilboðinu. Þá óskaði kærandi eftir rökstuðningi fyrir ákvörðun varnaraðila um val tilboðsins. Varnaraðili svaraði erindinu 3. júlí 2026 og sendi viðbótarupplýsingar til kæranda 8. sama mánaðar.

 

II

Kærandi byggir meðal annars á að hagsmunaaðilar uppfylli ekki skilyrði greinar 1.3.9 og vísar sérstaklega til þess að tveggja milljarða króna velta hafi samkvæmt greininni öll þurft að vera vegna starfsemi á því sviði sem útboðið tæki til. Aðeins einn hagsmunaaðili sinni frágangi rafkerfa en aðrir aðilar tilboðsins séu verkfræðistofa og bátasmiðja. Þá sé með öllu útilokað að leggja mat á þetta skilyrði út frá ársreikningum félaganna og hafi varnaraðili ekki veitt skýringar á matinu að þessu leyti. Þá byggir kærandi jafnframt á að hagsmunaaðilar hafi ekki uppfyllt skilyrðið um reynslu af sambærilegu verki og vísar meðal annars til þess að þau verk sem Fagtækni hf. hafi tilgreint sem sambærileg verk uppfylli ekki skilyrði útboðsgagna, meðal annars þar sem hluta þeirra sé ólokið og þau séu ekki yfir 8.000 fermetrum. Þá gerir kærandi jafnframt aðrar athugasemdir.

Varnaraðili byggir í meginatriðum á að ákvörðun hans um val á tilboði hagsmunaaðila hafi verið lögmæt og í samræmi við útboðsgögn. Krafa greinar 1.3.9 um lágmarksveltu hafi lotið að rekstrarumfangi en ekki fjárhagslegu hæfi og hafi hagsmunaaðilar uppfyllt skilyrðið um lágmarksveltu. Starfsemi bæði Fagtækni hf. og Raftákns ehf. falli undir fagsvið útboðsins og þar sem þessi fyrirtæki séu með yfir 2 milljarða veltu séu kröfur útboðsskilmála um rekstrarumfang í sambærilegum verkefnum ótvírætt uppfyllt. Varnaraðili hafnar því að hagsmunaaðilar hafi ekki uppfyllt kröfur um tæknilega og faglega getu við opnun tilboða. Fyrir liggi að hagsmunaaðilar hafi reynslu af fjölda sambærilegra verkefna, meðal annars af umfangsmiklum og flóknum mannvirkjum og mannvirkjum með 8000 m2 byggingarmagn eða meira og vísar varnaraðili þessu til stuðnings til tiltekinna fylgigagna. Ekki verði séð að athugasemdir kæranda við einstök verk sem tilgreind voru í rökstuðningi varnaraðila séu til þess fallnar að hnekkja því mati.  Sömuleiðis hafni varnaraðili því að þátttaka hagsmunaaðila hefði verið minni háttar í hluta umræddra verka en í þessu samhengi skipti máli að frágangur rafkerfa hafi ekki verið eini þáttur útboðsins. Þá hafi hvergi í útboðsgögnum komið fram krafa um að sambærilegum verkum skyldi lokið né að viðkomandi aðili hefði unnið slík verk einn.

Hagsmunaaðilar byggja í meginatriðum að þeir hafi fullnægt öllum hæfisskilyrðum útboðsins og hafi gert það frá upphafi. Í samhengi við kröfur greinar 1.3.9 segja hagsmunaaðilar að öll velta Fagtækni hf. og Raftákns ehf. sé vegna starfsemi á því sviði sem útboðið taki til. Þá hafi umtalsverður hluti veltu Víkingbáta síðastliðin ár verið vegna starfsemi á því sviði sem útboðið taki til, bæði við smíði báta sem kalli á hönnun og uppsetningu flókinna rafkerfa en ekki síður sem verktaki sem hafi aðstoðað Fagtækni hf. og Eignarhaldsfélagið Ögur ehf. við flókin og umfangsmikil verkefni síðastliðin ár. Hagsmunaaðilar hafna röksemdum kæranda um að útboðsverkið felist eingöngu í raflagnavinnu á þegar hönnuðu verki enda geri kafli 1.1 í útboðslýsingu ráð fyrir verki sem sé langt umfram raflagnavinnu. Hagsmunaaðilar byggja jafnframt á að þeir hafi uppfyllt skilyrði greinar 1.3.10 varðandi tæknilega og faglega getu og gera grein verkreynslu sína og hvað fólst í tilteknum verkefnum sem hagsmunaaðilar telja sambærileg verk í skilningi greinarinnar.

 

III

A

Kæra málsins hafði í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar. Í 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup kemur fram að ef ákvörðun um val tilboðs er kærð innan lögboðins biðtíma sé gerð samnings óheimil þar til kærunefnd útboðsmála hefur endanlega leyst úr kærunni. Samkvæmt 2. mgr. getur kærunefnd, hvort heldur að kröfu varnaraðila eða að eigin frumkvæði, ákveðið að aflétta banni við samningsgerð, en við slíka ákvörðun gilda ákvæði 110. gr. eftir því sem við á. Í því felst að einungis á að viðhalda stöðvun hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögum um opinber innkaup eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.

 

B

Kærandi byggir meðal annars á að hagsmunaaðilar hafi ekki uppfyllt þær kröfur sem voru gerðar samkvæmt grein 1.3.10 til tæknilegrar og faglegrar getu bjóðenda í útboðinu en efni greinarinnar er nánar rakið í kafla I hér að framan.  Samkvæmt fyrirmælum greinarinnar bar bjóðendum að setja fram upplýsingar um sambærileg verk á eyðublaði sem var meðfylgjandi útboðsgögnum.

Að mati kærunefndar útboðsmála verður á þessu stigi málsins litið svo á að verk hafi þurft að vera með byggingarmagn að 8.000 m2 eða meira til að teljast vera sambærilegt verk í skilningi greinarinnar. Jafnframt að verki hafi þurft að vera lokið enda kom þar fram að bjóðandi ætti að gera grein fyrir verkum sem hann „hefði unnið“ á síðastliðnum fimm árum.

Kærunefnd útboðsmála hefur farið yfir þau gögn sem liggja fyrir um reynslu hagsmunaaðila af sambærilegum verkum á þessu stigi málsins.

Í fyrsta lagi er um að ræða fjögur útfyllt eyðublöð með upplýsingum um verk Fagtækni hf. sem nefndin gerir ráð fyrir að hafi verið meðfylgjandi tilboði hagsmunaaðila. Verkin eiga það sammerkt að vera undir 8.000 m2 í byggingarmagni og verður því á þessu stigi málsins að líta svo á að þau hafi ekki talist sambærileg í skilningi greinar 1.3.10.

Í öðru lagi er um að ræða tvo verkefnalista með annars vegar upplýsingum um verk Fagtækni hf. og hins vegar upplýsingum um verk Raftákns hf. Svo sem fyrr segir áttu bjóðendur í útboðinu að setja fram upplýsingar um sambærileg verk á þar til gerðum eyðublöðum. Umrædd framsetning er ekki í samræmi við fyrirmæli útboðsgagna og vantar þar ýmsar upplýsingar sem átti að tilgreina samkvæmt eyðublöðunum. Þá liggur ekki fyrir hvort gögnin hafi verið meðfylgjandi tilboði hagsmunaaðila í útboðinu eða verið aflað síðar.

Að mati kærunefndar útboðsmála er ekki fyllilega skýrt af málatilbúnaði varnaraðila hvaða verk hagsmunaaðila hann telur uppfylla skilyrði greinar 1.3.10. Í svari við upplýsingabeiðni kæranda vísaði varnaraðili þó sérstaklega til sjö verka, nánar tiltekið: (1) Korputún 1, (2) Boðaþing 11, (3) Kársnesskóli (4) Frystihús Samherja, (5) Bílastæðahús Nýs Landspítala, (6) Austurhöfn 2 og (7) Parliament Hótel.

Að mati kærunefndar útboðsmála er vandséð að framangreind verk uppfylli skilyrði þess að teljast sambærileg verk í skilningi greinar 1.3.10.

Verk nr. 1 er í vinnslu samkvæmt verkefnalista Fagtækni hf. og virðist því vera ólokið. Þá eru verk nr. 2 og 3 bæði undir 8.000 m2 en sömu verk voru tilgreind á fyrrgreindum eyðublöðum.

Verk nr. 4 og 5 virðast síðan vera verk sem er að finna á verkefnalista Raftákns hf. Í þessu samhengi skal þess getið að á umræddum lista eru tilgreind tvö verk sem félagið hefur unnið fyrir Samherja og er óljóst til hvors verksins varnaraðili vísaði til í svarinu sínu til kæranda. Þá koma hvorki fram upplýsingar um stærð umræddra verka fyrir Samherja né hvenær þau voru unnin.

Verk nr. 6 er að finna í verkefnalista Fagtækni hf. en þar kemur einungis fram að verkið hafi lotið að heildarkerfi raflagna og að um hafi verið að ræða 71 lúxusíbúð. Þá er að mati nefndarinnar ekki fyllilega ljóst hvar finna má upplýsingar um verk nr. 7 en á verkefnalista Fagtækni hf. er að finna upplýsingar um verkið „Nordica Hilton Reykjavík“. Samkvæmt lýsingu á verkinu var þar um að ræða vinnu við heildarkerfi raflagna og að hótelið væri 9 hæðir með 260 herbergjum og öðrum rýmum. Á listanum er hvorki að finna upplýsingar um stærð umræddra verka né hvenær þau voru unnin.

Svo sem fyrr greinir var ekki gerð grein fyrir stærð tiltekinna verka í umræddum listum en þær stærðir koma fram í svörum varnaraðila við upplýsingabeiðni kæranda. Varnaraðili virðist þannig hafa óskað eftir frekari upplýsingum þessu tengdu frá hagsmunaaðilum en á þessu stigi málsins liggur ekki fyrir hvernig var staðið að þeirri upplýsingaöflun.

Samkvæmt framangreindu er að mati nefndarinnar vandséð að þau verk sem hagsmunaaðilar tilgreindu á framlögðum eyðublöðum hafi uppfyllt skilyrði þess að teljast sambærileg verk í skilningi greinar 1.3.10. Þá liggur fyrir að upplýsingagjöf varðandi önnur verk var ekki í samræmi við fyrirmæli útboðsgagna auk þess sem vandséð er að þau verk sem varnaraðili tilgreindi sérstaklega í svari sínu til kæranda hafi uppfyllt skilyrði greinar 1.3.10.

 

C

Framangreindu til viðbótar var í grein 1.3.9 meðal annars gerð sú krafa til fjárhagsstöðu bjóðanda að ársvelta (rekstrartekjur) á ári í starfsemi bjóðanda á því sviði sem útboðið tæki til skyldi að lágmarki vera 2.000 milljón krónur, sbr. til hliðsjónar 1. mgr. 71. gr. laga nr. 120/2016, og átti að skila árituðum ársreikningum vegna síðastliðinna þriggja ára þessu til staðfestingar. Þá kom fram í greininni að ef fleiri en eitt fyrirtæki stæðu sameiginlega að tilboði skyldi litið til samanlagðrar ársveltu (rekstrartekna) allra fyrirtækja sem að tilboði stæðu.

Af ársreikningum hagsmunaaðila verður ráðið að samanlagðar rekstrartekjur þeirra á árunum 2023-2025 hafi náð umræddu lágmarksumfangi ef einungis er litið til rekstrartekna samkvæmt fyrirliggjandi ársreikningum félaganna. Á hinn bóginn verður fallist á með kæranda að ekki liggi fyrir hvort þessar rekstrartekjur séu vegna starfsemi á því sviði sem útboðið tekur til, líkt og var gert að skilyrði samkvæmt grein 1.3.9. Í þessu samhengi má benda á að nauðsynlegt er að horfa til rekstrartekna Víkingbáta ehf. á árinu 2023 til þess að umræddri lágmarkskröfu sé mætt vegna þess árs en í ársreikningi félagsins vegna þess árs kemur fram að tilgangur þess sé „trefjabátasmíði“.

Þá verður ekki ráðið af gögnum málsins að varnaraðili hafi framkvæmt sérstaka greiningu á framangreindu atriði en samkvæmt grein 1.3.13 áskildi varnaraðili sér meðal annars rétt til að óska eftir yfirlýsingu um veltu á því sviði sem félli undir samninginn á síðustu þremur fyrirliggjandi fjárhagsárum.

Samkvæmt öllu framangreindu verður að telja, eins og mál þetta liggur fyrir á þessu stigi, að verulegar líkur hafi verið leiddar að broti gegn lögum nr. 120/2016 sem leitt geti til ógildingar á ákvörðun varnaraðila um val á tilboði í hinu kærða útboði, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016. Er kröfum varnar- og hagsmunaaðila um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar, sem komst á með kæru í máli þessu, því hafnað.

 

Ákvörðunarorð

Hafnað er kröfum um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar í útboði varnaraðila, Nýs Landspítala ohf., nr. I4084 auðkennt „Rafkerfi fyrir meðferðarkjarna K2 til 4. hæð“.

 

Reykjavík, 29. júlí 2026.

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Auður Finnbogadóttir

Var efnið hjálplegt?