Skipar starfshóp um leigutryggingar og eftirlit á leigumarkaði
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað starfshóp um leigutryggingar og eftirlit á leigumarkaði.
Breyttu fyrirkomulagi leigutrygginga er meðal annars ætlað að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi á leigumarkaði, einfalda og skýra kröfuferla þegar leigusali gerir kröfu í tryggingarfé, auka fyrirsjáanleika um endurgreiðslu tryggingarfjár og fækka ágreiningsmálum.
Hlutverk starfshópsins er að gera tillögu að breyttu fyrirkomulagi leigutrygginga ásamt nýju eftirlitshlutverki Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) á leigumarkaði, svo sem við vottun kröfuferla. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum til ráðherra í formi frumvarps til laga um breytingu á húsaleigulögum snemma á næsta ári.
Aðgerðir til að styrkja stöðu leigjenda og bæta leigumarkaðinn
Starfshópurinn er skipaður í samræmi við boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum sem kynntar voru í vor, auk aðgerða til að styrkja stöðu leigjenda og bæta leigumarkaðinn.
Starfshópurinn er svo skipaður:
Lísa Margrét Sigurðardóttir, formaður
Anna Lilja Sigurðardóttir, fulltrúi Alþýðusambands Íslands,
Júlíana Guðmundsdóttir, fulltrúi BHM, BSRB og Kennarasambands Íslands,
Hildur Ýr Viðarsdóttir, fulltrúi Húseigendafélagsins,
Erna Ösp Einarsdóttir, fulltrúi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar,
Jóhann Páll Einarsson, fulltrúi Neytendasamtakanna,
Erlendur Kristjánsson, fulltrúi Samtaka atvinnulífsins,
Þorsteinn Ingi Valdimarsson, fulltrúi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu,
Yngvi Ómar Sigrúnarson, fulltrúi Samtaka leigjenda á Íslandi.
Með starfshópnum starfar Kristín Sandra Karlsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.