03 nóvember 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Raunhæf framfærsluskilyrði fyrir umsóknir um dvalarleyfi

{image.Description}

Dómsmálaráðuneytið hefur birt drög að reglugerð í samráðsgátt þar sem kveðið er skýrt á um trygga framfærslu þeirra sem sækja um dvalarleyfi eða íslenskan ríkisborgararétt. Markmiðið er að tryggja að þeir sem setjast hér að geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum en þurfi ekki að reiða sig á félagslega aðstoð. Framfærslugeta getur jafnframt verið sterk vísbending um að einstaklingur hafi komið sér fyrir í íslensku samfélagi og myndað raunveruleg tengsl við landið.

Ákveðin fjárhæð bundin í reglugerð

Í lögum um útlendinga er nú þegar gerð krafa um að sá sem sækir um dvalarleyfi þurfi að sýna fram á trygga framfærslu þann tíma sem hann vill dveljast hér á landi. Lögin heimila ráðherra að kveða nánar á um kröfuna í reglugerð. Sambærilega heimild er að finna í lögum um íslenskan ríkisborgararétt en hvorug heimildin hefur verið nýtt hingað til.

Þetta yrði því í fyrsta skipti sem ákveðin upphæð væri bundin í reglugerð. Sambærilegar reglur gilda á öðrum Norðurlöndum.  Fram til þessa hefur Útlendingastofnun sjálf birt viðmið á vef sínum sem samsvarar grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurvíkurborgar eða 259.951.

Í skýrslu starfshóps um dvalarleyfi sem gefin var út í nóvember var bent á að viðmiðin á Íslandi væru mjög lág og tækju ekki mið af fjölskyldustærð. Þá væri erfitt að sannreyna hvort fjármunir umsækjenda væru nægir eða í eigu þeirra.

Reglugerðin breytir ekki skilyrðum fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða mannúðarsjónarmiða. Þá falla engin leyfi sjálfkrafa úr gildi við gildistöku heldur munu reglurnar eiga við þegar sótt er um leyfi og þegar óafgreiddar umsóknir eru afgreiddar.

Framfærsluskilyrði gerð skýr og fyrirsjáanleg

Í reglugerðardrögunum er lagt til að grunnfjárhæð framfærslu verði 501.186 þúsund krónur, miðað við núverandi viðmiðunarfjárhæðir. Við ákvörðun fjárhæðarinnar er stuðst við meðaltal þriggja viðmiða sem stjórnvöld notast þegar við í íslensku velferðarkerfi; frítekjumark húsnæðisbóta, örorkulífeyrir með heimilisuppbót og tekjumark skerðingar barnabóta hjá einstæðu foreldri.

Hjón þurfa 1,6 falda grunnfjárhæð til að uppfylla skilyrðin og 150 þúsund krónur bætast við fyrir hvert barn. Þetta er breyting frá því sem verið hefur þar sem engin viðbótarkrafa hefur verið gerð vegna barna. Með reglugerðinni verður því í fyrsta sinn tekið sérstaklega mið af því að umsækjendur verða að geta séð fyrir börnum sínum til að uppfylla skilyrði um framfærslugetu.

Með reglugerðinni verða framfærsluskilyrðin skýrari, raunhæfari og fyrirsjáanlegri, bæði fyrir umsækjendur og stjórnvöld.

Reglugerðin er unnin í nánu samráði við Útlendingastofnun, kærunefnd útlendingamála og úrskurðarteymi ráðuneytisins í ríkisborgaramálum. Efni hennar var jafnframt borið undir félags-og húsnæðismálaráðuneytið.

 

FjölskyldaHlutfall

Í
dag

Með reglugerðinniBreyting
Einstaklingur1,0259.951 kr.501.186 kr.+93%

Einstætt
foreldri með 1 barn

1,3

259.951
kr.

651.541
kr.

+151%
Einstætt foreldri með 2 börn1,6259.951 kr.801.897 kr.+208%

Barnlaus
hjón

1,6

415.922
kr.

801.897
kr.

+93%
Hjón með 1 barn1,9415.922 kr.952.253 kr.+129%

Hjón
með 2 börn

2,2

415.922
kr.

1.102.609
kr.

+165%
Hjón með 3 börn2,5415.922 kr.1.252.964 kr.+201%
Námsmenn og doktorsnemar0,75259.951 kr.375.890 kr.+45%

Ungt fólk 18 til 25 ára sem hefur haft
samfellt dvalarleyfi hér frá barnæsku og býr í foreldrahúsum

0,5129.976 kr.250.593 kr.+93%
Var efnið hjálplegt?