30 september 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 418/2026

Hinn 30. september 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 418/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26070088

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 17. júlí 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Jamaíku (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. júlí 2026, um brottvísun og endurkomubann til Íslands í 16 ár, sbr. c-lið 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Til vara krefst kærandi þess að máli kæranda verði vísað til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun. Til þrautavara krefst kærandi þess að endurkomubann hans verði stytt í eitt ár.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um dvalarleyfi fyrir barn, sbr. 71. gr. laga um útlendinga, 6. desember 2019 og fékk útgefið dvalarleyfi 25. maí 2020. Dvalarleyfið hefur verið endurnýjað í nokkur skipti, síðast með gildistíma til 16. mars 2025. Kærandi hefur lagt fram umsókn um endurnýjun þess dvalarleyfis sem er til meðferðar hjá Útlendingastofnun.

Með dómi Hæstaréttar nr. 27/2024, frá 18. desember 2024, var kærandi dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga. Brot gegn ákvæðinu getur varðað allt að 16 árum. Kæranda var birt tilkynning um hugsanlega brottvísun 26. maí 2026 en tilkynningin var byggð á röngum lagagrundvelli. Kærandi lagði fram andmæli vegna tilkynningarinnar 28. maí 2025. Hinn 29. júní 2026 var kæranda birt ný tilkynning um hugsanlega brottvísun þar sem fram kom að Útlendingastofnun hefði til skoðunar að gera honum að sæta brottvísun á grundvelli c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga. Í tilkynningunni var vísað til refsidóms kæranda og fyrri dvalar hans hér á landi. Kæranda var veittur þriggja daga frestur til að leggja fram andmæli. Kærandi lagði fram andmæli 2. júlí 2026.

Hinn 9. júlí 2025 tók Útlendingastofnun ákvörðun um brottvísun og endurkomubann kæranda til sextán ára. Í ákvörðuninni vísaði Útlendingastofnun til refsidóms kæranda og taldi að skilyrði c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga væru uppfyllt. Þá komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að 102. gr. laga um útlendinga stæði ekki í vegi fyrir ákvörðuninni. Með vísan til e-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga væri frestur kæranda til sjálfviljugrar heimfarar felldur niður. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 15. júlí 2026. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála 17. júlí 2026 og lagði fram greinargerð og fylgiskjöl samhliða kæru.

III. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi vísar til aðstæðna sinna og fyrirliggjandi málsatvika. Kærandi hafi verið sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga með dómi Landsréttar, sem hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar. Kærandi vísar til þess að hann hafi sótt um endurupptöku málsins en Endurupptökudómstóll hafi hafnað umsókninni með úrskurði nr. 2/2026. Kærandi hafi á öllum stigum málsins neitað sök en hafi til skoðunar að leita til Mannréttindadómstóls Evrópu. Kærandi hafi hafið afplánun í byrjun janúar 2026 og sé nú í afplánun á áfangaheimilinu Vernd. Kærandi vísar þá til málsmeðferðar Útlendingastofnunar og byggir á því að verulegir efnislegir annmarkar séu á hinni kærðu ákvörðun auk þess sem málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi ekki verið í samræmi við stjórnsýslulög.

Kærandi gerir athugasemd við málsmeðferð Útlendingastofnunar er varðar andmælarétt kæranda. Hinn 29. júní 2026 hafi lögmaður kæranda fengið sent afrit af bréfi Útlendingastofnunar um tilkynningu á hugsanlegri brottvísun. Lögmaður kæranda hafi 1. júlí 2026 spurst fyrir um hvort búið væri að birta kæranda bréfið svo lögmaður væri upplýstur um við hvaða dag skyldi miða hinn þriggja daga andmælafrest. Útlendingastofnun hefði greint frá því að fresturinn hefði liðið frá þeim degi sem tilkynningin hefði borist lögmanninum. Kærandi gerir athugasemd við að honum hafi fyrst að morgni 1. júlí 2026 verið gert viðvart um að málið væri til meðferðar og hafi þá aðeins verið um 40 klukkustundir eftir af andmælafrestinum. Kærandi vísar til álits Umboðsmanns alþingis í máli nr. 5261/2008 þar sem umboðsmaður hafi komist að þeirri niðurstöðu að þriggja daga andmælafrestur í brottvísunarmáli gagnvart fanga, sem reyni á flókið lagalegt mat á stjórnarskrárvörðum réttindum og Mannréttindasáttmála Evrópu, væri of skammur og bryti gegn 13. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi byggir á því að meginþungi andmæla hans hafi varðað áhrif brottvísunar á friðhelgi einkalífs hans sem varin sé af 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrár og 1. mgr. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi litið framhjá þessari þungamiðju málsins og vikið sér undan því að leggja heildarmat í málinu.

Kærandi telur ákvörðun Útlendingastofnunar haldna annmörkum sem hver og einn leiði til ógildingar á ákvörðuninni. Kærandi áréttar að brottvísun og endurkomubann útlendinga sé ekki meðal þeirra refsinga sem lög heimili að sé beitt sem refsingu fyrir brot gegn almennum hegningarlögum. Kærandi vísar til þess að brottvísun samkvæmt 99. gr. laga um útlendinga feli í sér úrræði sem stjórnvöldum sé heimilt að grípa til þegar það sé nauðsynlegt til að halda uppi almannaöryggi. Beiting ákvæðisins þurfi að taka mið af því hvort áframhaldandi búseta útlendings í landinu sé talin raska hagsmunum samfélagsins og íbúanna. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi vikið sér framhjá því mati að kanna framangreint.

Kærandi vísar til þess að Útlendingastofnun hafi ekki lagt mat á hvort 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga stæði í vegi fyrir brottvísun hans. Kærandi vísar til þess að Útlendingastofnun beri að skoða öll atvik málsins. Kærandi hafi verið nítján ára þegar atvik málsins gerðust en fram að því hafi hann ekki komið við sögu lögreglu og ferill hans hafi verið hnökralaus, að frátaldri sakfellingu. Kærandi vísar til þess að hann hafi alist upp hjá móður sinni og móðurömmu í heimaríki. Hann hafi lítið þekkt föður sinn en hitt hann aðeins stuttar stundir með löngu millibili fram að sex ára aldri. Faðir hans hafi verið búsettur í Bandaríkjunum og sé enn. Hann hafi þekkt föðurömmu sína sem hafi verið búsett í heimaríki. Þegar móðir kæranda hafi farið frá heimaríki hafi kærandi orðið eftir hjá móðurömmu sinni. Kærandi hafi svo farið til að sameinast móður sinni og fengið dvalarleyfi. Hann hafi strax hafið framhaldskólanám og vinnu með námi. Kærandi hafi útskrifast með sveinspróf í matreiðslu og fengið atvinnu á veitingastað. Hann hafi hafið afplánun í janúar 2026 og vinnuveitandi hans hyggist ráða hann til starfa að lokinni afplánun. Þá hafi móðir kæranda og stjúpfaðir hans eignast son á meðan dvöl kæranda hafi staðið hér á landi. Móðuramma hans hafi flust til Íslands árið 2025 og sé búsett með íslenskum eiginmanni sínum. Kærandi telur að með ákvörðun Útlendingastofnunar hafi lítið verið gert úr tengslum kæranda við landið. Ekki hafi verið tekið tillit til þess að kærandi hafi verið barn þegar hann hafi verið búsettur í heimaríki og verið í umönnun einstaklinga sem nú séu búsettir á Íslandi. Kærandi hafi komið til Íslands sem barn og á þeim sjö árum sem hann hafi dvalið hér hafi föðuramma hans látist og með henni hafi tengsl kæranda við heimaríki horfið. Kærandi hafi ekki hitt föður sinn frá því að hann var sex ára að frátaldri jarðaför föðurömmu hans.

Kærandi vísar til þess að ákvörðunin hafi veruleg og óafturkræf áhrif á fjölskyldu hans. Sterk tilfinningatengsl séu milli kæranda og móður hans. Hún hafi gert eiginmanni sínum það ljóst að ef kæranda verði brottvísað muni hún flytja frá Íslandi til að halda fjölskyldunni saman. Verði það niðurstaðan muni það valda hjónaskilnaði og hálfbróðir kæranda muni flytjast til ókunnugs lands og búa þar fjarri föður sínum. Vegna þessara aðstæðna sé ljóst að brottvísun fæli í sér ósanngjarna ráðstöfun, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Af dómaframkvæmd Mannréttindadómstólsins verði ráðið að útlendingar sem komið hafi til aðildarríkis sem börn á grundvelli fjölskyldusameiningar njóti sérstakrar verndar gegn brottvísun. Kærandi vísar til dóms Mannréttindadómstólsins í máli nr. 1638/03 frá 23. júní 2008 í máli Maslov gegn Austurríki. Í málinu felist leiðbeinandi viðmið og eigi einkum við mál er varði fullorðið ungt fólk sem hafi ekki stofnað til fjölskyldu. Kærandi byggir á því að brottvísun sé andstæð meðalhófi og fari gegn 1. mgr. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu með vísan til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu nr. 41643/19 í máli Abde gegn Danmörku. Kærandi telur að líta beri til dvalar hans eftir atvik máls kæranda og vísar til fyrrnefnds álits Umboðsmanns alþingis.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Á grundvelli c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi úr landi sem hefur dvalarleyfi ef hann hefur verið dæmdur hér á landi til refsingar eða til að sæta öryggisráðstöfunum fyrir háttsemi sem getur varðað fangelsi lengur en eitt ár eða oftar en einu sinni verið dæmdur til fangelsisrefsingar á síðustu þremur árum. Í athugasemdum við ákvæðið kemur fram að um sé að ræða nánast sömu heimildir og í 98. gr. og er vísað til athugasemda við 98. gr. hvað það varðar. Í athugasemdum við d-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, sem kveður á um sambærilega heimild, kemur fram að það sé refsirammi samkvæmt lögum sem skipti máli. Samkvæmt framangreindu beri stjórnvöldum að líta til refsinga samkvæmt lögum við beitingu ákvæðisins, en ekki dæmdrar refsingar í hverju tilfelli.

Samkvæmt fyrrnefndum dómi Hæstaréttar var kærandi sakfelldur og dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga. Brot gegn ákvæðinu geta varðað sektum eða fangelsi allt að sextán árum. Í héraðsdómi var háttsemi kæranda heimfærð undir blygðunarsemisbrot, sbr. 209. gr. almennra hegningarlaga og refsing ákveðin níu mánuðir, skilorðsbundin til tveggja ára. Með dómi Landsréttar nr. 179/2024, dags. 23. febrúar 2023, var kærandi hins vegar sakfelldur fyrir nauðgun, sbr. áðurgreint hegningarlagaákvæði. Var háttsemi hans heimfærð undir „önnur kynferðismök“ í skilningi 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga og honum gert að sæta fangelsi í tvö ár. Fyrir Hæstarétti var niðurstaða Landsréttar um heimfærslu brotsins staðfest auk niðurstöðu dómsins um refsingu kæranda.

Í greinargerð áréttar kærandi að brottvísun og endurkomubann útlendinga sé ekki meðal þeirra refsinga sem lög heimili að sé beitt sem refsingu fyrir brot gegn almennum hegningarlögum. Kærandi vísar til þess að brottvísun samkvæmt 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga feli í sér úrræði sem stjórnvöldum sé heimilt að grípa til sé það nauðsynlegt til að halda uppi almannaöryggi í landinu. Beiting ákvæðisins þurfi að taka mið af því hvort áframhaldandi búseta útlendings í landinu sé talin raska hagsmunum samfélagsins og íbúanna. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi vikið sér framhjá því mati að kanna framangreint.

Þess ber að geta að c-liður 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga gerir ekki að skilyrði fyrir beitingu ákvæðisins að áframhaldandi dvöl útlendings hér á landi teljist fela í sér ógn við almannaöryggi eða allsherjarreglu. Við beitingu ákvæðisins er því ekki lagt til grundvallar að brottvísun samkvæmt ákvæðinu sé einvörðungu heimil sé um slíka ógn að ræða. Ákvæðið áskilur að útlendingur hafi verið dæmdur til að sæta refsingu fyrir háttsemi sem getur varðað fangelsi lengur en eitt ár. Ekki er gerð athugasemd við mat Útlendingastofnunar hvað þetta varðar.

Kærandi vísar til þess að héraðsdómur hafi heimfært brotið undir blygðunarsemisbrot. Landsréttur hafi hinsvegar sakfellt kæranda fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga, sem staðfest var af Hæstarétti. Fyrir liggur að kærandi hefur verið sakfelldur fyrir háttsemi sína og brotið heimfært undir 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga á tveimur dómstigum. Ekki verður fallist á að það hafi þýðingu fyrir beitingu c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga að kærandi hafi ekki verið sakfelldur í héraðsdómi fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga. Ekki verður talið að það rýri alvarleika brots kæranda. Dómur Hæstaréttar í máli kæranda er endanleg úrlausn um mál hans og verða málsástæður kæranda fyrir dómi og niðurstaða Hæstaréttar ekki endurskoðuð af kærunefnd útlendingamála. Samkvæmt upplýsingum frá kæranda hefur Endurupptökudómur jafnframt hafnað beiðni um endurupptöku málsins.

Samkvæmt framangreindu hefur kærandi verið dæmdur til tveggja ára fangelsisrefsingar fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga. Brot gegn ákvæðinu getur varðað fangelsi allt að sextán árum. Að því virtu er skilyrðum brottvísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga fullnægt.

Kærandi gerir athugasemd við málsmeðferð Útlendingastofnunar er varðar andmælarétt kæranda. Kærandi vísar til álits Umboðsmanns alþingis í máli nr. 5261/2008 þar sem umboðsmaður hafi komist að þeirri niðurstöðu að þriggja daga andmælafrestur í brottvísunarmáli gagnvart fanga, sem reyni á flókið lagalegt mat á stjórnarskrárvörðum réttindum og Mannréttindasáttmála Evrópu, væri of skammur og bryti gegn 13. gr. stjórnsýslulaga. Kæranda var fyrst birt röng tilkynning um fyrirhugaða brottvísun 21. maí 2026 þar sem honum var veittur sjö daga frestur til að leggja fram andmæli. Kærandi lagði fram andmæli vegna þess 29. maí 2026 en þau lutu m.a. að tengslum kæranda við landið. Í kjölfarið var kæranda birt önnur tilkynning um fyrirhugaða brottvísun með rafrænum hætti 29. júní 2026 sem byggði á réttum grundvelli og var kæranda veittur þriggja daga frestur til að leggja fram andmæli. Kærandi lagði fram andmæli 2. júlí 2026 og ekki verður annað ráðið en að Útlendingastofnun hafi litið til þeirra sjónarmiða sem þar komi fram. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að andmælafrestur kæranda í seinni tilkynningu um fyrirhugaða brottvísun hafi verið of stuttur. Kærandi hefur haft nægt ráðrúm til þess að leggja fram andmæli við meðferð málsins og lagt fram greinargerð fyrir kærunefnd.

Í 102. gr. laga um útlendinga er kveðið á um vernd gegn frávísun og brottvísun og takmarkanir á ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. skal brottvísun ekki ákveða ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda eða nánustu aðstandendum er unnt að líta til 71. gr. stjórnarskrár og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu. Í dómaframkvæmd hefur Mannréttindadómstóll Evrópu vísað til þeirrar viðurkenndu meginreglu þjóðaréttar að ríki hafi, með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar sínar, rétt til að stjórna aðgengi erlendra ríkisborgara að landsvæði sínu og dvöl þeirra þar. Þá hefur dómstóllinn lagt til grundvallar að aðildarríki mannréttindasáttmálans hafi vald til þess að brottvísa útlendingi sem hefur hlotið dóma fyrir refsiverð afbrot enda sé það nauðsynlegt með tilliti til allsherjarreglu, svo sem í máli Üner gegn Hollandi (46410/99) frá 18. október 2006. Þó verði að horfa til þess hvort ákvörðunin skerði rétt viðkomandi til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu samkvæmt 8. gr. mannréttindasáttmálans. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um, stefna að lögmætu markmiði, og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans. Þau sjónarmið sem mannréttindadómstóll Evrópu hefur lagt til grundvallar í málum af þessum toga eru t.a.m. eðli þess brots sem viðkomandi hefur gerst sekur um, lengd dvalar viðkomandi í því ríki sem tekur ákvörðun um brottvísun og félags-, menningar- og fjölskyldutengsl viðkomandi við dvalarríki og heimaríki, sbr. t.d. mál Balogun gegn Bretlandi (nr. 60286/09) frá 4. október 2013 og Ndidi gegn Bretlandi (nr. 41215/15) frá 14. september 2017. Dómstóllinn hefur almennt veitt ríkjum talsvert svigrúm til mats þegar kemur að brottvísun aðila vegna alvarlegra afbrota með vísan til allsherjarreglu þótt aðili hafi fjölskyldutengsl við ríkið, sbr. t.d. mál Üner gegn Hollandi.

Svo sem að framan er rakið hefur kærandi dvalið hér á landi í um sjö ár eða frá árinu 2019 en hann kom hingað til lands 17 ára á grundvelli dvalarleyfis fyrir barn maka Íslendings og verið búsettur hér á landi á þeim grundvelli frá þeim tíma. Fram að þeim tíma hafi kærandi alist upp í heimaríki hjá móður sinni en þegar móðir hans hafi flust til Íslands hafi hann verið búsettur hjá móðurömmu sinni um tíma þar til hann hafi komið hingað til lands. Samkvæmt gögnum málsins sé móðir kæranda í hjúskap með íslenskum ríkisborgara og eigi þau eitt sex ára barn saman sem sé hálfsystkini kæranda. Þá kemur fram í greinargerð kæranda að amma kæranda hafi flust hingað til lands og gifst íslenskum ríkisborgara. Kærandi byggir á því að tengsl hans við heimaríki séu nú lítil þar sem hann eigi ekki lengur fjölskyldu þar en föðuramma hans, sem hafi verið búsett þar í landi, sé látin. Kærandi hefur stundað verkmenntaskólanám hér á landi þar sem hann hefur sérhæft sig í matreiðslu auk þess sem hann hefur unnið samhliða námi en fyrir liggur staðfesting í gögnum málsins um framangreint. Með vísan til alls þess sem að framan hefur verið rakið verður ekki framhjá því litið að fjölskyldutengsl kæranda við landið eru nokkuð rík en ekki er þó um að ræða nánustu aðstandendur kæranda í skilningi 17. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 102. gr. laganna. Kærandi á hér hvorki maka né börn. Bera gögn málsins með sér að kærandi hafi aðlagast samfélaginu með tilliti til menntunar og atvinnu hér á landi. Þess er þó getið að kærandi lagði fram umsókn um dvalarleyfi fimm mánuðum áður en hann náði 18 ára aldri og grundvallaðist dvöl kæranda á því að hann væri í námi eða atvinnu, sbr. 4. mgr. 71. gr. laga um útlendinga. Gögn málsins bera með sér að kærandi eigi ekki önnur mál í kerfum lögreglunnar. Aftur á móti ber að líta til þess að kærandi er sakfelldur fyrir alvarleg brot gegn 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga þar sem hann var dæmdur til að tveggja ára fangelsisrefsingar. Brot gegn ákvæðinu getur varðað fangelsisrefsingu allt að 16 árum. Þá er til þess að líta að brot kæranda átti sér stað um einu og hálfu ári eftir komu hans til landsins og var kærandi fullorðinn einstaklingur þegar brotið átti sér stað. Þá beindist brot kæranda að lífi, heilsu og friðhelgi brotaþola, sem var undir lögaldri.

Við matið er tekið mið af því að kærandi kom hingað til lands [...] og eru tengsl hans við heimaríki af þeim sökum nokkuð sterk en samkvæmt gögnum málsins bjó hann þar í landi þar til hann fluttist hingað til lands. Breytir það ekki framangreindu mati að kærandi eigi ekki nána ættingja í heimaríki en fyrir liggur að kærandi hefur búið lengur í heimaríki en hér á landi. Kærandi vísar til þess að ákvörðun um brottvísun hafi veruleg og óafturkræf áhrif á fjölskyldu hans. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi og fjölskylda hans geti ekki sameinast í sameiginlegu heimaríki kæranda og fjölskyldumeðlima hans. Að teknu tilliti til framangreinds verður talið, þrátt fyrir að kærandi hafi töluverð tengsl hér á landi og hafi sýnt aðlögun að samfélaginu, að alvarleiki brots hans vegi þyngra. Samkvæmt framangreindu eru tengsl kæranda við landið ekki slík að í brottvísun hans felist ósanngjörn ráðstöfun gagnvart honum eða nánustu aðstandendum hans í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Í því samhengi er einnig litið til þess að í ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu felst ekki skilyrðislaus réttur til fjölskyldulífs á Íslandi, heldur er stjórnvöldum heimilt að mæla fyrir um takmarkanir á réttinum, sbr. áðurnefndan dóm Üner gegn Hollandi. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga standi í vegi fyrir brottvísun hans.

Samkvæmt 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga skal endurkomubann að jafnaði ekki vara lengur en fimm ár og eigi skemur en tvö ár. Þó geti endurkomubann varað lengur en fimm ár þegar útlendingur telst ógn við öryggi ríkisins, almannaöryggi eða allsherjarreglu. Við ákvörðun um lengd endurkomubanns skuli litið til einstaklingsbundinna aðstæðna hverju sinni. Í hinni kærðu ákvörðun var kæranda gert að sæta endurkomubanni til sextán ára. Sterk tengsl kæranda við landið með tilliti til stórfjölskyldu, mennta- og atvinnutengsla og aðlögun kæranda að íslensku samfélagi hafa þegar verið rakin. Gögn málsins benda til þess að kærandi eigi einn dóm að baki vegna háttsemi sinnar árið 2021 en að öðru leyti eigi hann ekki frekari mál hjá lögreglu eða sögu um önnur afbrot. Kærandi var ungur karlmaður þegar brotið átti sér stað en rúm fimm ár eru liðin frá brotinu og tæp tvö ár eru liðin frá dómi Hæstaréttar. Bera gögn málsins jafnframt með sér jákvæða aðlögun kæranda að samfélaginu eftir þann tíma. Með vísan til þess og málsatvika í heild sinni verður talið rétt að stytta endurkomubann kæranda í átta ár.

Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga skal að jafnaði veita útlendingi frest í 7-30 daga til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Samkvæmt e-lið ákvæðisins er m.a. heimilt að veita styttri frest eða fella hann niður í tilvikum þegar útlendingi er vísað úr landi á grundvelli 99. gr. laga um útlendinga. Að teknu tilliti til framangreindrar niðurstöðu er rétt að fella frest kæranda til sjálfviljugrar heimfarar niður með vísan til e-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til 4. mgr. 101. gr. laga um útlendinga hefst endurkomubann kæranda þann dag sem hann er færður úr landi.

Samantekt, athugasemdir og leiðbeiningar

Kærandi hefur lagt fram framburðarskýrslu brotaþola hjá lögreglu sem innihalda viðkvæmar persónuupplýsingar sem kærandi fékk aðgang að vegna reksturs þess máls fyrir dómstólum. Þau gögn hafa ekki þýðingu við úrlausn máls kæranda hjá kærunefnd útlendingamála og hefur verið eytt úr málaskrárkerfum nefndarinnar.

Að öllu framangreindu virtu verður hin kærða ákvörðun hvað varðar brottvísun kæranda frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um útlendinga og niðurfellingu frests til þess að yfirgefa landið sjálfviljugur staðfest. Endurkomubann kæranda skal vera átta ár.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

Endurkomubann kæranda skal vera átta ár.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

The re-entry ban shall be eight years.

Þorsteinn Gunnarsson

Vera Dögg Guðmundsdóttir

Var efnið hjálplegt?